Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Brottrekstur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. febrúar 2024

E-395/2023

A og B (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn Hundaræktarfélagi Íslands (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður)

Stefnendur kröfðust ógildingar á úrskurði siðanefndar Hundaræktarfélags Íslands. Með úrskurðinum var stefnendum m.a. vísað brott úr félaginu í 15 ár. Í dóminum kom fram að heimild til brottvísunar félagsmanns úr almennu félagi færi eftir samþykktum þess og öðrum félagsreglum. Einnig að brottvísun félagsmanns úr almennu félagi og önnur viðurlög á hendur honum væri að verulegu leyti á sjálfsforræði félagsins. Var það niðurstaða dómsins með hliðsjón af valdmörkum dómstóla gagnvart forræði almennra félaga á málefnum félagsins, að ekki hefði verið sýnt fram á að siðnefnd Hundaræktarfélags Íslands hafi með úrskurði sínum farið úr fyrir valdsvið sitt eða heimildir laga og reglna sem gilda um starfsemi félagsins. Var Hundaræktarfélagið sýknað af öllum kröfum stefnenda.