Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lykilorð: Bankaleynd

Landsréttur birt 30. september 2025

675/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Rannsókn. Bankaleynd.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fjármálafyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka- og fjármálaviðskipti X.

Landsréttur birt 16. júní 2025

441/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Rannsókn. Bankaleynd.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fjármálafyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka- og fjármálaviðskipti X, þar með talið bankareikninga, verðbréfa- og afleiðuviðskipti, lánaviðskipti, greiðslukortaviðskipti, peningasendingar og bankahólf á tilteknu tímabili og allar upplýsingar sem þau fjármálafyrirtæki kynnu að hafa um þau viðskipti.

Landsréttur birt 6. desember 2024

957/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Birkir Már Árnason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fjármálafyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka- og fjármálaviðskipti X, þar með talið bankareikninga, verðbréfa- og afleiðuviðskipti, lánaviðskipti, greiðslukortaviðskipti, gjaldeyriskaup, peningasendingar og bankahólf á tilteknu tímabili og allar upplýsingar sem þau fjármálafyrirtæki kynnu að hafa um þau viðskipti.

Landsréttur birt 15. október 2024

803/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bryndís Gyða Michelsen lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Bankaleynd. Rannsókn.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem tilgreindum fjármálafyrirtækjum var gert að láta L í té nánar tilgreindar upplýsingar um banka- og fjármálaviðskipti X vegna tilgreinds tímabils.

Landsréttur birt 19. september 2024

737/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka- og fjármálaviðskipti X, þar á meðal bankareikninga, verðbréfa- og afleiðsluviðskipti, lánaviðskipti og greiðslukortaviðskipti, gjaldeyriskaup, peningasendingar og bankahólf.

Landsréttur birt 19. september 2024

734/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Bankaleynd. Rannsókn.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka- og fjármálaviðskipti X, þar á meðal bankareikninga, verðbréfa- og afleiðuviðskipti, lánaviðskipti og greiðslukortaviðskipti, gjaldeyriskaup, peningasendingar, peningaúttektir og bankahólf.

Landsréttur birt 16. maí 2024

416/2024

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)

X kærði úrskurð héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fjármálafyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka- og fjármálaviðskipti X, þar með talið bankareikninga, verðbréfa- og afleiðuviðskipti, lánaviðskipti og greiðslukortaviðskipti, gjaldeyriskaup, peningasendingar og bankahólf vegna tímabilsins 20. apríl til 15. maí 2024. Þar sem rannsóknaraðgerðirnar höfðu þegar farið fram var málinu vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 7. nóvember 2023

762/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka-og fjármálaviðskipti X, þar með talið bankareikninga, verðbréfa-og afleiðuviðskipti, lánaviðskipti, greiðslukortaviðskipti, gjaldeyriskaup, peningasendingar og bankahólf.

Landsréttur birt 7. nóvember 2023

757/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka-og fjármálaviðskipti X, þar með talið bankareikninga, verðbréfa-og afleiðuviðskipti, lánaviðskipti, greiðslukortaviðskipti, gjaldeyriskaup, peningasendingar og bankahólf.

Landsréttur birt 19. september 2023

656/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum fyrirtækjum var gert að láta L í té allar upplýsingar um banka-og fjármálaviðskipti X, þar með talið bankareikninga, verðbréfa-og afleiðuviðskipti, lánaviðskipti, greiðslukortaviðskipti, gjaldeyriskaup, peningasendingar og bankahólf.

Landsréttur birt 20. febrúar 2020

94/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um aðgang að upplýsingum um banka- og fjármálaviðskipti X í tilefni af rannsókn L á meintum brotum X er sneru að peningaþvætti samkvæmt 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í úrskurði Landsréttar kom fram að L hefði haldið því fram að X hefði margoft komið við sögu hjá lögreglu undanfarin ár vegna meintra brota. Ekki yrði gerð sú krafa til L á þessu stigi málsins að hann sýndi fram á að X væri undir grun um eitthvert tiltekið refsivert brot á almennum hegningarlögum eða öðrum lögum annað en peningaþvætti. Rökstuddur grunur væri um að X hefði brotið gegn 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga. Við mat á því hvort rétt væri að heimila þá upplýsingaöflun sem krafa L lyti að vægust á annars vegar sjónarmið um friðhelgi einkalífs X og hins vegar þeir mikilvægu almannahagsmunir sem fælust í skilvirkum rannsóknum á alvarlegum brotum svo sem peningaþvætti. Að teknu tilliti til þeirra gagnstæðu hagsmuna og með hliðsjón af því alvarlega broti sem X væri grunaður um féllst Landsréttur á kröfu L.

Hæstiréttur birt 14. desember 2012

684/2012

Glitnir hf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Jón Sigurðsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á beiðni L um að dómkvaddir yrðu matsmenn til að svara spurningum um efnahag bankans G hf. á ákveðnu tímabili. Í dómi Hæstaréttar var fallist á að metið yrði hversu miklum hluta eigin fjár G hf. tilteknar lánveitingar hefðu numið á tímabilinu og hvert hefði verið vægi hvers láns um sig í eiginfjárhlutfalli bankans. Eins skyldu metin ótilgreind lán sem hefðu sömu einkenni. Heimilað var að óska mats á áhrifum allra lánveitinga til tiltekinna eigenda G hf. á tímabilinu en tekið fram að matsmenn skyldu ekki meta áhrif lánveitinga til annarra en þeirra aðila sem gagngert voru taldir upp í matsspurningu. Að virtum svörum við þessum spurningum var fallist á að óskað yrði mats á því hvert eiginfjárhlutfall G hf. hefði verið á tilteknum dögum. Á hinn bóginn skyldi ekki metið hvort þá hefðu verið fyrir hendi önnur atriði sem hefðu átt að hafa áhrif á útreikninga á eign fé og eiginfjárhlutfalli G hf. Fallist var á að leitað yrði mats á lausafjárstöðu G hf. á ákveðnum dögum að teknu tilliti til nánar tilgreindra upplýsinga.