Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Arkitektar

Landsréttur birt 21. desember 2018

243/2018

THG Arkitektar ehf og Halldór Guðmundsson (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður) gegn Framkvæmdasýslu ríkisins (Erlendur Gíslason lögmaður, Jón Eðvald Malmquist lögmaður, 2. prófmál)

F undirbjó hönnunarsamkeppni um hönnun hjúkrunaríbúða að Boðaþingi nr. 11 og 13 í Kópavogi sem Kópavogsbær og velferðarráðuneytið hugðust byggja. T ehf. og H höfðu annast hönnun hjúkrunaríbúða að Boðaþingi nr. 5 og 7 sem teknar voru í notkun á árinu 2010, ásamt þjónustubyggingu í húsi nr. 9. Eftir það höfðu þeim verið falin ýmis verkefni tengd þróun deiliskipulags og undirbúningi að hönnun frekari mannvirkja á byggingarreitnum. T ehf. og H fengu lagt lögbann við því að hönnunarsamkeppnin færi fram. Ekki var talið að fyrir hefði legið samningur eða bindandi yfirlýsing um að T ehf. og H væri falin heildstæð hönnun allra mannvirkja á umræddum byggingarreit. Ekki var fallist á að heildstæð hönnun H hafi þegar orðið til þannig að þau verkefni sem T ehf. og H höfðu unnið að stæðu því í vegi að halda mætti hönnunarsamkeppni um fyrirhugaðar framkvæmdir. Þá var ekki fallist á að óhjákvæmilegt væri að framkvæmd hönnunarsamkeppninnar fæli í sér brot gegn höfundarréttindum þeirra. Af þeim sökum var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu T ehf. og H um viðurkenningu á því að F væri óheimilt, á grundvelli 44. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, að láta fara fram opinbera hönnunarsamkeppni um hönnun hjúkrunaríbúða að Boðaþingi nr. 11 og 13 í Kópavogi og um að fella úr gildi lögbann sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lagði við því að F léti fara fram opinbera hönnunarsamkeppni um hönnun hjúkrunaríbúðanna.