Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Aðstoðarmaður héraðsdómara
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem málinu var vísað frá dómi. U og E höfðu lýst kröfum við gjaldþrotaskipti W en höfðu síðar afturkallað kröfurnar í kjölfar skuldajöfnuðar. Að mati héraðsdóms yrði málið ekki rekið fyrir dómi eftir reglum XXIV. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. þegar svo háttaði til. Í úrskurði Landsréttar kom fram að hinn kærði úrskurður hefði verið kveðinn upp af aðstoðarmanni dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Við meðferð málsins hefði ekki verið fylgt reglum um málsmeðferð sem kveðið væri á um í XXIV. kafla laga nr. 21/1991, þrátt fyrir að málið lægi fyrir dóminum á þeim grunni, enda hefði þing verið sótt af hálfu beggja aðila við þingfestingu en þeim hins vegar ekki gefinn kostur á að skila greinargerð í samræmi við 177. gr. laganna. Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla gæti dómstjóri falið aðstoðarmanni önnur dómstörf en þau að fara með og leysa að efni til úr hvers konar einkamálum þar sem vörnum væri haldið uppi. Málið væri rekið fyrir dómi eftir reglum 5. þáttar laga nr. 21/1991 sem fjalli um meðferð ágreiningsmála fyrir dómstólum og báðir aðilar hefðu sótt þing við þingfestingu. Þegar svo stæði á brysti aðstoðarmann héraðsdómara vald til að leysa úr málinu. Yrði því ekki hjá því komist að ómerkja hinn kærða úrskurð og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar og uppkvaðningu úrskurðar að nýju.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem mál var fellt niður og A gert að greiða B og C málskostnað. Hafði A gert kröfu um að málskostnaður yrði felldur niður en B og C kröfðust málskostnaðar úr hendi A. Í úrskurði Landsréttar kom fram að hinn kærði úrskurður hefði verið kveðinn upp af aðstoðarmanni dómara. Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla gæti dómstjóri falið aðstoðarmanni önnur dómstörf en þau að fara með og leysa að efni til úr hvers konar einkamálum þar sem vörnum væri haldið uppi. Með efni máls væri meðal annars vísað til þess þáttar dómsmáls sem snúi að efnislegum réttindum og skyldum milli aðilanna. Ákvörðun málskostnaðar falli þar undir. Samkvæmt þessu hefði aðstoðarmann dómara brostið vald til að leysa úr ágreiningi aðila um málskostnað. Yrði því ekki hjá því komist að ómerkja hinn kærða úrskurð og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar og uppkvaðningu úrskurðar að nýju.
Úrskurður héraðsdóms í máli KÁ svf. gegn SK um málskostnað var ómerktur þar sem málið hafði verið tekið fyrir í þinghaldi sem háð var af aðstoðarmanni héraðsdómara og tekið til úrskurðar af honum.