Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Aðildaskortur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2025

E-627/2025

Steindór ehf (Einar Hugi Bjarnason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður)

Deilt var um gildi ákvæða í samningi milli málsaðila þar sem kveðið var á um skyldu stefnanda til að greiða stefnda gjald fyrir breytt og aukið byggingarmagn á lóð í eigu stefnanda og kauprétt F hf. á einni íbúð í fyrirhugaðri byggingu á lóðinni á föstu verði. Hafnað var kröfu stefnanda um endurgreiðslu á endurgjaldi sem hann innti af hendi á grundvelli umdeildra samningsákvæða og jafnframt varakröfu stefnanda um viðurkenningu á því að þessi ákvæði væru óskuldbindandi fyrir hann. Sömu leiðis var hafnað kröfu stefnanda um greiðslu mismunar á kaupverði á íbúð sem F keypti og ætluðu markaðsverði sömu eignar og varakröfu hans um að kaupréttarákvæði samningsins væri óskuldbindandi fyrir hann. Þá var stefndi sýknaður af þrautavarakröfu stefnanda, um breytingu á kaupréttarákvæðinu þar sem sú krafa var talin beint að röngum aðila.