Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Ómerking úrskurðar héraðsdóms að hluta
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna loka óvígðrar sambúðar. Ágreiningur aðila í tengslum við fjárskipti þeirra hafði áður komið til kasta dómstóla og af þeim sökum vísaði héraðsdómur tveimur kröfuliðum A frá dómi. Landsréttur tók fram í úrskurði sínum að þar sem héraðsdómur hefði ekki leyst efnislega úr þessum kröfum gæti A ekki haft þær uppi fyrir Landsrétti en tók til greina varakröfu A um að fella hinn kærða úrskurð úr gildi varðandi þessa kröfuliði. Þá staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu héraðsdóms að hafna þeirri kröfu A að viðurkennt yrði að B bæri að greiða henni helming af eftirstöðvum áhvílandi veðskuldar á tilgreindri fasteign auk helmings allra afborgana frá afsalsdegi til greiðsludags. Einnig ómerkti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að taka ekki til greina kröfu A þess efnis að nánar tilteknir innbúsmunir kæmu í hlut hennar. Loks vísaði Landsréttur frá héraðsdómi kröfu B um húsaleigu úr hendi A fyrir búsetu í tilgreindri fasteign yfir tiltekið tímabil.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu L um húsleit á heimili X og leitar í farsíma X sem L hafði þegar haldlagt. Fram kom í úrskurði Landsréttar að heimild brysti til að kæra úrskurðinn um annað en þær rannsóknaraðgerðir sem ekki hefðu farið fram. Í kröfu L hafi þess ekki verið getið hvort þess væri krafist að hún sætti meðferð fyrir dómi án þess að X yrði kvödd á dómþing en héraðsdómari hafi allt að einu tekið hana til meðferðar án þess að kveða X fyrir dómþing. Þá yrði ekki ráðið af þingbók málsins hvort L hefði verið boðaður til þinghaldsins eða að gætt hafi verið ákvæða 2. mgr. 84. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Taldi Landsréttur að meðferð málsins í héraði hefði verið svo áfátt að óhjákvæmilegt væri að ómerkja hinn kærða úrskurð og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar varðandi þær rannsóknaraðgerðir sem enn væru ekki um garð gengnar en að öðru leyti var því vísað frá Landsrétti.