Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Óbeinn eignarréttur
G kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var að afmá færslu skjals, eignaskiptayfirlýsingar, sem þinglýst var í fasteignabók embættis varnaraðila S. Með hinni umdeildu eignaskiptayfirlýsingu var kveðið á um innbyrðis skiptingu leiguréttinda milli aðildarfélaga B sem áttu orlofshús á tilgreindri lóð sem B leigði af G. Í úrskurði Landsréttar var rakið að B hefði tekið tilgreinda lóð á leigu til 72 ára frá 1. ágúst 1969 að telja. Samkvæmt því fari B með lóðarleiguréttindi yfir lóðinni, sem teljist samkvæmt reglum eignaréttar til óbeinna eignarheimilda. Þessum réttindum sé B heimilt að ráðstafa enda fari það ekki gegn því sem kveðið er á um í lóðarleigusamningnum. Samkvæmt samningnum væru heimildum B til að ráðstafa framangreindum lóðarleiguréttindum engin sérstök takmörk sett. Með hinni umdeildu eignaskiptayfirlýsingu hefði verið kveðið á um innbyrðis skiptingu leiguréttinda milli aðildarfélaga B sem áttu orlofshús á lóðinni án þess að sú skipting hefði áhrif á eignarrétt G að landinu en ekki væri um að ræða skiptingu lóðar í skilningi 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Árið 2008 gerðu O og þáverandi eigandi jarðarinnar H með sér samning um leigu á spildu úr landi jarðarinnar sem brunnsvæði fyrir vatnsveitu sem þjónar meðal annars Stykkishólmsbæ. L hf. eignaðist jörðina á nauðungarsölu en seldi hana síðar B ehf. Ágreiningur málsins laut að kröfu B ehf. um viðurkenningu þess að leigusamningurinn væri óskuldbindandi gagnvart sér þar sem réttindi samkvæmt honum hefðu fallið niður við útgáfu afsals til L hf. vegna ákvæða 2. mgr. 56. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu. Í dómi Hæstaréttar var talið að í samræmi við meginreglu 2. mgr. 56. gr. laga nr. 90/1991 féllu niður við útgáfu afsals þau réttindi sem stofnað hafði verið til á grundvelli samningsins með sama hætti og önnur óbein eignarréttindi sem á því tímamarki hafði verið stofnað til yfir jörðinni H. Var því fallist á dómkröfu B ehf. þess efnis að leigusamningurinn væri óskuldbindandi gagnvart honum sem núverandi eiganda jarðarinnar.