Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Ábyrgð við gjaldþrot
A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi 4. desember 2003. Bótauppgjör fór fram 13. apríl 2005 á grundvelli matsgerðar sem þá lá fyrir og aðilar öfluðu sameiginlega. Tók A við bótum úr hendi T hf. með fyrirvara varðandi varanlegan miska og varanlega örorku. A aflaði á árinu 2011 einhliða annarrar matsgerðar. Á grundvelli hennar krafði hann T hf. um bætur umfram það sem hann hafði þegar fengið greitt og byggði á því að með matsgerðinni væri sýnt fram að heilsufar hans hafi versnað frá fyrra mati. T hf. og B töldu fyrri matsgerð ekki hafa verið hnekkt með þeirri síðari og að kröfur A væru fyrndar sbr. 99. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Hæstiréttur taldi síðari matsgerðina ekki hnekkja þeirri fyrri sem málsaðilar hefðu aflað sameiginlega og samið um að leggja til grundvallar bótauppgjörinu. Hafi A því ekki sýnt fram á að hann hafi öðlast viðbótarkröfu á hendur T hf. og B vegna þess að heilsufar hans hafi versnað frá því fyrra matið fór fram. Af því leiddi og að A hefði heldur ekki sýnt fram á að ófyrirséðar breytingar hafi orðið á heilsufari hans frá fyrra mati í skilningi 11. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Þá taldi Hæstiréttur kröfu A um miskabætur samkvæmt a. lið 1. mgr. 26. gr. laganna fyrnda. Í árslok 2005 hafi legið fyrir allar upplýsingar um heilsufar A sem gerðu honum kleift að leita fullnustu kröfu sinnar sbr. 99. gr. laga nr. 50/1987 en málið hafi verið höfðað 23. júní 2011. Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sýknu T hf. og B.