Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 30. júní 2006.
Mál nr. S-155/2006:
Ár 2006, föstudaginn 30. júní, er á dómþingi Héraðsdóms Suðurlands sem háð er að Austurvegi 4, Selfossi, kveðinn upp í málinu nr. S-155/2006:
(Gunnar Örn Jónsson lögmaður)
gegn
Tonni Langbo Hansen
svofelldur
d ó m u r :
(enginn)
Lykilorð
Fangelsi. Gripdeild. Hegningarauki. Skilorðsrof. Umferðarlagabrot. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og gripdeild. Refsing ákveðin fangelsi í níu mánuði. Dæmdur var upp skilorðsdómur og refsing ákveðin sem hegningarauki að hluta.
Mál þetta, sem þingfest var 26. júní sl. og dómtekið samdægurs, er höfðað með þremur ákærum lögreglustjórans á Selfossi, á hendur Tonni Langbo Hansen, kt. 000000-0000, með lögheimili í Danmörku, nú til dvalar að Hótel Eddu, Laugarvatni. Málin voru sameinuð við þingfestingu málsins.
Málið er í fyrsta lagi höfðað gegn ákærða með ákæru dagsettri 16. febrúar 2006 ,,fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa síðdegis miðvikudaginn 8. febrúar 2006 ekið bifreiðinni PS 073 sviptur ökurétti vestur Suðurlandsveg, rétt austan við gatnamót Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar’’ Ákæruvaldið segir þessa háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
Málið er í öðru lagi höfðað gegn ákærða með ákæru dagsettri 26. júní 2006 ,,fyrir eftirtalin brot framin í Reykjavík:
- Umferðarlagabrot, með því að hafa í eftirgreind skipti ekið bifreiðinni PS 073 sviptur ökuréttindum:
1.1. Laugardaginn 12. nóvember 2005 vestur Sæbraut við Snorrabraut.
1.2. Að morgni sunnudagsins 5. febrúar um Hverfisgötu.
- Fíkniefnalagabrot, með því að hafa á sama stað og tíma og greinir í lið 1.1. í bifreiðinni PS 073 haft í vörslum sínum 0,90 g af hassi sem lögregla fann við leit.
- Gripdeildir, með því að hafa í eftirgreind skipti dælt bensíni á bifreiðina PS 073 og ekið á brott án þess að greiða fyrir það:
3.1. Fimmtudaginn 11. nóvember 2005 á bensínafgreiðslustöð Shell, Laugavegi, bensín að andvirði kr. 1.511.
3.2. Laugardaginn 4. febrúar 2006 á bensínafgreiðslustöð Shell, Kleppsvegi, bensín að andvirði kr. 4.681.’’ Ákæruvaldið segir háttsemi ákærða samkvæmt 1. tl. varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, háttsemi ákærða samkvæmt 2. tl. varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, sbr. lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og háttsemi ákærða samkvæmt 3. tl. varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Málið er í þriðja lagi höfðað gegn ákærða með ákæru dagsettri 26. júní 2006 ,,fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa skömmu eftir miðnætti föstudaginn 24. júní 2006 ekið bifreiðinni UD 581 óvátryggðri og sviptur ökurétti vestur Biskupstungnabraut, rétt vestan við Þrastalund í Grímsnesi.’’ Ákæruvaldið segir þessa háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. og 93. gr. sbr. 92. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
Ákæruvaldið krefst þess að ákærði verði dæmdur til refsingar og að gerð verði upptæk framangreind fíkniefni, sem haldlögð voru, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Ákærði kom fyrir dóm við þingfestingu málsins og játaði ákærur réttar. Hann kvaðst þó ekki hafa verið eigandi fíkniefnanna sem fundust við leit í bifreið hans. Með málið var farið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Í þinghaldi 26. júní sl. leiðrétti sækjandi ákæru dagsetta 26. júní sl. vegna umferðarlagabrots 24. júní 2006, á þann veg að brotið sé framið laugardaginn 24. júní 2006. Í ákæru dagsettri 26. júní sl., lið 3.1., er brot ákærða sagt framið fimmtudaginn 11. nóvember 2005, en í lögregluskýrslu og gögnum máls segir að brot ákærða hafi verið framið fimmtudaginn 10. nóvember 2005.
Um málavexti vísast til ákæruskjala. Sannað er að ákærði framdi brot þau sem greinir í ákærum og þar eru réttilega færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir viðurlagaákvörðun 19. apríl 2004, þar sem honum var gert að greiða 145.000 króna sekt fyrir ölvunarakstur og akstur án ökuréttinda og hann sviptur ökurétti í 10 mánuði frá 19. apríl 2004. Ákærði gekkst undir viðurlagaákvörðun 8. júní 2005 fyrir ölvunarakstur og var sviptur ökurétti í tvö ár frá 8. júní 2005. Ákærði hlaut 45 daga fangelsisdóm skilorðsbundinn í tvö ár, 5. október 2005, fyrir brot gegn 244. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga. Ákærða var gert að greiða 60.000 króna sekt fyrir að aka sviptur ökurétti 14. október 2005. Þá hlaut hann 45 daga fangelsisdóm skilorðsbundinn í tvö ár, fyrir þjófnað og að aka sviptur ökurétti, 25. nóvember 2005. Loks var ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi, þar af 5 mánuði skilorðsbundna til þriggja ára, og sviptur ökurétti ævilangt með dómi 24. febrúar sl. Var ákærða þar gerð refsing fyrir mörg brot, þar af fyrir að hafa fjórtán sinnum ekið sviptur ökurétti, tvö ölvunarakstursbrot, tvö hraðakstursbrot, tvo nytjastuldi, þrjá þjófnaði, eignaspjöll og brot gegn 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 10. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Vísað var til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við ákvörðun refsingar, svo og til þess að ákærði hefði með háttsemi sinni rofið skilorð dóma sem hann hlaut 5. október 2005 og 25. nóvember 2005 og var skilorð beggja dómanna dæmt upp og ákærða ákvörðuð refsing í einu lagi fyrir öll brotin. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Brot ákærða sem ákært er fyrir í ákæru dagsettri 16. febrúar og 26. júní fyrir brot framin í Reykjavík eru framin áður en dómurinn frá 24. febrúar sl. gekk. Ber því að ákvarða refsingu ákærða í máli þessu sem hegningarauka samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga. Með broti sínu samkvæmt ákæru dagsettri 26. júní fyrir umferðarlagabrot framið 24. júní sl. hefur ákærði rofið skilorð dómsins frá 24. febrúar sl. Ákærði rauf með öðrum brotum sínum, sem ákært er fyrir nú, skilorð dómanna frá 5. október og 25. nóvember sl. Skilorð það hefur þegar verið dæmt upp. Samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga ber að dæma upp skilorðshluta dómsins frá 24. febrúar 2006 og gera ákærða refsingu í einu lagi fyri þann hluta og þau brot sem hann er nú sakfelldur fyrir. Þá ber einnig að líta til ákvæðis 77. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar.
Ákærði hefur margítrekað brotið gegn ákvæði 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga með því að aka sviptur ökurétti og hefur honum þrívegis áður verið gerð refsing fyrir slíkt brot. Þá hefur ákærði áður gerst sekur um auðgunarbrot. Ákærði hefur játað brot sín án undandráttar. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði. Ákærða var fyrst gerð skilorðsbundin refsing 5. október 2005, aftur 25. nóvember 2005 og loks 24. febrúar 2006. Svo sem að framan greinir hefur hann með brotum sínum ítrekað rofið skilorð sem honum hefur verið gert að sæta. Ekki þykir því fært að skilorðsbinda refsingu hans nú.
Ákærði sæti upptöku á haldlögðum fíkniefnum.
Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.
Ásta Stefánsdóttir, settur héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Tonni Langbo Hansen, sæti fangelsi í níu mánuði.
Upptæk eru gerð 0,90 grömm af hassi.
Ásta Stefánsdóttir.