Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 8. apríl 2022.
Mál nr. S-7363/2020:
Héraðssaksóknari
(Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)
gegn
X,
(Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Y,
(Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Z,
Þ ehf. og
Æ LLC
Lykilorð
Útdráttur
Ákærðu sýknaðir af fjársvikum og peningaþvætti.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 11. mars sl., var höfðað með ákæru héraðssaksóknara, 4. nóvember 2020 á hendur „X, kt. […], […], Reykjavík, Y, kt. […], […], […], félaginu Z, kt. […], með skráð lögheimili að […], Reykjavík (fyrirsvarsmaður ákærði X), einkahlutafélaginu Þ, kt. […], […], […] (fyrirsvarsmaður ákærði Y) og bandaríska félaginu Æ, skráðu í […] í Bandaríkjunum 23. júlí 2018 undir skráningarnúmerinu […] (fyrirsvarsmaður ákærði Y) fyrir fjársvik og peningaþvætti gegn ákærðu X og Y og gegn hinum ákærðu félögum, en þó til vara ákærða Y að því er varðar kröfu á hendur Æ, til upptöku samkvæmt VII. kafla A. almennra hegningarlaga nr. 19/1940:
I
Á hendur ákærðu X og Y, ákærða X sem forstöðumanni Z og stjórnarformanni og prókúruhafa í félaginu Z, kt. […], og ákærða Y sem stjórnarmanni og prókúruhafa í Z:
A
Fyrir fjársvik með því að hafa í sameiningu frá áliðnu ári 2015, en þó einkum frá október 2017, og fram á fyrri hluta árs 2019 styrkt og hagnýtt sér þá röngu hugmynd starfsmanna íslenskra stjórnvalda að Z uppfyllti skilyrði fyrir skráningu trúfélags samkvæmt lögum nr. 108/1999, um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, og þar með að trúfélagið skyldi sem skráð trúfélag eiga hlutdeild í álögðum tekjuskatti og rétt til fjárframlaga úr ríkissjóði samkvæmt ákvæðum laga nr. 91/1987, um sóknargjöld o.fl. Á þeim grunni fékk trúfélagið frá október 2017 til janúar 2019 samtals 36 sinnum reglulega greidd frá ríkissjóði inn á bankareikning Z nr. […] hjá […] sóknargjöld vegna áranna 2016, 2017 og 2018 að fjárhæð samtals 84.727.320 krónur. Með þessu ollu ákærðu íslenska ríkinu verulegri fjártjónshættu og fjártjóni í reynd.
Blekkingar ákærðu lutu nánar tiltekið að því að innan Z væri, í samræmi við skilyrði laga nr. 108/1999 fyrir skráningu trúfélags, lögð stund á átrúnað eða trú í virkri og stöðugri starfsemi, að það hefði náð fótfestu hér á landi og að í því væri kjarni félagsmanna sem tæki þátt í starfsemi þess og styddi lífsgildi þess í samræmi við kenningar þær sem trúfélagið var stofnað um. Í raun fór hins vegar ekki fram á vegum trúfélagsins nein eiginleg trúariðkun eða tengd starfsemi sem gat samræmst með réttu þessum lagaskilyrðum. Fjármunum sem runnu til trúfélagsins frá ríkissjóði var í raun ekki varið til eða í þágu eiginlegrar trúariðkunar eða tengdrar starfsemi í skilningi þessara lagaskilyrða heldur með öðrum og óskyldum hætti og þar á meðal ráðstafað til eða í eigin þágu ákærðu, sem fóru einir með prókúru trúfélagsins, ráðstöfun fjármuna þess og stjórn þess í reynd.
Engu að síður blekktu ákærðu á fyrrgreindu tímabili starfsmenn þeirra stjórnvalda sem fara með lagaframkvæmd, eftirlit og umsýslu á þessu sviði, einkum þá hjá sýslumanninum á […] og Fjársýslu ríkisins, um að trúfélagið uppfyllti fyrrgreind lögbundin skilyrði skráningar sem trúfélag og um leið til að greiða út til þess fyrrgreind sóknargjöld. Ákærðu komu þeim blekkingum sínum fram bæði með athöfnum og athafnaleysi og fólust þær helst í eftirfarandi háttsemi: Ákærðu létu allan þennan tíma hjá líða að upplýsa stjórnvöld um að trúfélagið uppfyllti í reynd ekki lagaskilyrði fyrir skráningu sem trúfélag og átti þar með ekki rétt á fjárframlögum úr ríkissjóði á fyrrgreindum lagagrundvelli. Einnig veittu ákærðu fjárgreiðslum frá Fjársýslu ríkisins athugasemdalaust viðtöku af hálfu trúfélagsins, margítrekað og á löngu tímabili, þrátt fyrir að það ætti ekki lögmætt tilkall til þeirra. Þá útbjó ákærði X og sendi röng eða villandi gögn og upplýsingar til stjórnvalda varðandi trúfélagið og málefni þess, einkum þá til fyrrnefnds sýslumannsembættis, Þjóðskrár Íslands og fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra. Hann stóð jafnframt að því að gefa út, einkum á heimasíðu trúfélagsins, rangar eða villandi yfirlýsingar um málefni þess sem voru til þess fallnar að styðja og viðhalda opinberlega gagnvart almenningi sömu röngu hugmynd um trúfélagið og ákærðu komu fram með fyrrnefndum blekkingum gagnvart stjórnvöldum í tengslum við lögskipti trúfélagsins við þau. Með því að stuðla þannig að því að opinber ásýnd trúfélagsins væri í samræmi við þá röngu hugmynd sem ákærðu styrktu og hagnýttu hjá stjórnvöldum stuðlaði ákærði X þannig um leið og enn frekar að því, með óbeinum hætti, að styrkja villu stjórnvalda um trúfélagið.
Til vara er ákærða Y gefin að sök hlutdeild í fjársvikum meðákærða X með liðsinni í verki við framkvæmd þeirra samkvæmt ofangreindu sem og við undirbúning þeirra, svo sem með því að standa ásamt meðákærða X að breytingum á samþykktum félagsins, mótteknum svo breyttum hjá fyrirtækjaskrá RSK 3. desember 2015, sem miðuðu að því efnislega að einskorða og festa til framtíðar öll yfirráð í félaginu, þar með yfir fjárreiðum þess almennt og ráðstöfun sóknargjalda sérstaklega, hjá sitjandi stjórn félagsins og þáverandi stjórnarmönnum og girða jafnframt fyrir að aðrir en þáverandi stjórnarmenn eða trúnaðarmenn þeirra gætu komist til áhrifa innan félagsins sem forstöðumaður eða stjórnarmenn.
B
Fyrir peningaþvætti með því að hafa í sameiningu, á tímabilinu október 2017 til apríl 2019, aflað trúfélaginu Z samtals 84.727.320 króna ávinnings af fjársvikabrotum ákærðu samkvæmt ákærukafla I-A, svo sem þar er nánar lýst, og á sama tíma geymt, flutt, umbreytt og nýtt, þar á meðal að töluverðum hluta í eigin þágu, þann ávinning sem og leynt honum og upplýsingum um uppruna hans, staðsetningu og ráðstöfun, allt með eftirtalinni nánar tilgreindri meðferð og ráðstöfun ávinningsins. Á fyrrgreindu tímabili fluttu ákærðu og gerðu ráðstafanir til að leyna eða leyna uppruna, staðsetningu og ráðstöfun stórs hluta ávinningsins með því að ákærði Y millifærði í aðskilin skipti í desember 2017, janúar, apríl, ágúst, september og október 2018 og mars 2019 samtals (nettó) tæplega 46,4 milljónir króna af bankareikningi meðákærða félagsins Z inn á bankareikning meðákærða Þ ehf. nr. […] hjá […] en innstæða og greiðsluflæði þess bankareiknings átti á öllu þessu tímabili að langmestum hluta rót að rekja til fjármuna sem stöfuðu frá Z. Skráður eigandi Þ ehf. var bandarískt félag, A, í raunverulegri eigu ákærða Y. Ákærðu gerðu einnig ráðstafanir með löggerningum fyrir hönd Þ ehf. og A annars vegar og Z hins vegar þar sem látið var líta svo út að Þ ehf. stæði í lánaviðskiptum við Z og jafnframt að Z hefði keypt Þ ehf. af A. Frá Þ ehf. var stór hluti fyrrgreindrar fjárhæðar, samtals tæplega 39,6 milljónir króna, eftir umbreytingu hverju sinni í bandaríkjadali, fluttur til útlanda með fimm símgreiðslum í janúar-febrúar og júlíágúst 2018. Annars vegar runnu samtals 270.000 bandaríkjadalir inn á reikning Þ ehf. nr. […] hjá verðbréfafyrirtæki skráðu í Bretlandi, […], þar sem þeir voru síðan geymdir eða umbreytt í fjármálagerninga. Engar aðrar innlagnir voru á þann reikning fyrrgreindu tímabili. Hins vegar runnu samtals 103.844 bandaríkjadalir inn á bankareikning ákærða Y nr. […] hjá bankanum […] í […] í […] en innstæða og greiðsluflæði á þeim reikningi var á atvikatíma málsins hverfandi fyrir utan fjármuni sem stöfuðu frá Þ ehf. Af þessum reikningi voru samtals 80.000 bandaríkjadalir síðan fluttir í tveimur færslum í ágúst og september 2018 inn á reikning meðákærða félagsins Æ, í raunverulegri eigu ákærða Y nr. […] hjá bandarísku verðbréfafyrirtæki í […] í Bandaríkjunum, […], móðurfélagi fyrrnefnds bresks verðbréfafyrirtækis með sama nafni. Ákærði Y hafði skömmu áður staðið að opnun þess reiknings 15. ágúst 2018. Þeir fjármunir voru síðan geymdir á þessum reikningi Æ eða umbreytt í fjármálagerninga en engar aðrar innlagnir voru á þann reikning á atvikatíma málsins. Það sem eftir stóð af fjármunum frá Þ ehf. á bankareikningi ákærða Y hjá […] var að stærstum hluta nýtt í ýmsar útgreiðslur af þeim reikningi fram í ársbyrjun 2019 en þá stóðu tæpir 3 þúsund bandaríkjadalir eftir af innstæðu hans. Meðferð og ráðstöfun ákærðu á ofangreindum fjármunum sem þeir fluttu á bankareikning Þ ehf. frá Z fólst að öðru leyti einnig í því að kaupa einingar í verðbréfasjóði hjá […] fyrir samtals um 19,5 milljónir króna og selja þær aftur fyrir svipaða fjárhæð og að kaupa hlutabréf í hlutafjárútboðum […] og […], hvort tveggja í nafni Þ ehf. Þá runnu fjármunir með millifærslum frá Þ ehf. til ákærðu sjálfra og félags ákærða X, B ehf., kt. […], nánar tiltekið samtals (nettó) 5.960.285 krónur til ákærða Y og 1.200.000 krónur til ákærða X auk 500.000 króna til B ehf. Þann hluta ávinningsins sem ekki var fluttur til Þ ehf. heldur var geymdur á bankareikningi Z fluttu, umbreyttu og nýttu ákærðu í fyrsta lagi með fjölmörgum millifærslum af bankareikningnum og einni reiðufjárúttekt að fjárhæð 2 milljónir króna í október 2017 og í öðru lagi með reiðufjárúttektum og gjaldfærslum af bankareikningnum gegnum notkun ákærðu á debetkortum tengdum bankareikningnum sem gefin voru út til ákærðu hvors fyrir sig. Hvað varðar hið fyrrnefnda, millifærslur ákærðu af bankareikningnum, millifærðu ákærðu samtals 2.658.775 krónur inn á eigin bankareikninga, þar af 1.712.331 krónu til ákærða Y en 946.444 krónur til ákærða X. Einnig millifærðu ákærðu 250.000 krónur á bankareikning félags ákærða X, B ehf. Ákærðu ráðstöfuðu einnig af bankareikningnum samtals rúmlega 6,6 milljónum króna í svonefndar […], samtals rúmlega 9,7 milljónum króna í greiðslu lögfræðikostnaðar, samtals 2,4 milljónum króna í styrkgreiðslur til góðgerðafélaga og samtals rúmlega 2,3 milljónum króna í ýmsar aðrar greiðslur og kostnað, þar á meðal vegna almannatengsla- og fjarskiptaþjónustu. Hvað varðar hið síðarnefnda, reiðufjárúttektir og gjaldfærslur ákærðu með debetkortum tengdum bankareikningnum, tóku ákærðu annars vegar samtals 6.422.685 krónur í reiðufé út af bankareikningnum gegnum debetkort sín, þar af ákærði X 5.602.685 krónur en ákærði Y 820.000 krónur. Hins vegar gjaldfærðu ákærðu samtals 4.434.088 krónur, þar af ákærði X 4.055.965 krónur og ákærði Y 378.123 krónur, af bankareikningnum með notkun debetkorta sinna við kaup á ýmsum vörum og þjónustu, svo sem hjá veitingahúsum, áfengisverslunum, eldsneytisstöðvum, matvöruverslunum og fjarskiptafyrirtækjum svo og vegna ferðakostnaðar og ýmissa annarra útgjaldaliða.
Þann 7. maí 2019 nam innstæða á bankareikningi Z 1.275.491 krónu og var sú fjárhæð haldlögð þann dag. Þann 2. apríl 2019 nam innstæða fyrrgreinds bankareiknings Þ ehf. 4 krónum.
II
Háttsemi ákærðu samkvæmt ákærukafla I-A telst varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en háttsemi ákærða Y til vara við sömu lagagrein, sbr. 1. mgr. 22. gr. laganna.
Háttsemi ákærðu samkvæmt ákærukafla I-B telst varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
III
Krafist er upptöku á eftirfarandi eignum samkvæmt ákvæðum VII. kafla A. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, einkum 69. gr., 69. gr. b. og 69. gr. f.:
A
Ákærða félagið Z, kt. […], sæti upptöku á 1.275.491 krónu, ásamt áföllnum vöxtum til upptökudags, sem embætti héraðssaksóknara lagði hald á 7. maí 2019 af bankareikningi félagsins nr. […] hjá […].
B
Ákærða Þ ehf., kt. […], sæti upptöku á:
Hlutabréfum í […] að nafnvirði 2.275 krónur sem embætti héraðssaksóknara lagði hald á 8. maí 2019 af vörslusafni félagsins nr. […] hjá […].
Söluandvirði hlutabréfa í […], 563.909 krónum með áföllnum vöxtum til upptökudags, en embætti héraðssaksóknara lagði hald hlutabréfin á 8. maí 2019 af vörslusafni félagsins nr. […] hjá […].
Öllum eignum á reikningi félagsins nr. […] hjá breska verðbréfafyrirtækinu […], staðsettu í […] í Bretlandi, sem kyrrsettar voru ásamt áfallandi vöxtum og arði með kyrrsetningargerð sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu nr. […] þann 8. júlí 2019 og námu 30. september 2020 andvirði 271.387,35 bandaríkjadala.
C
Ákærða félagið Æ, skráð í […] í Bandaríkjunum 23. júlí 2018 með skráningarnúmer […] og í raunverulegri eigu ákærða Y, sæti upptöku á öllum eignum á reikningi félagsins nr. […], hjá bandaríska verðbréfafyrirtækinu […], staðsettu í […] í […] í Bandaríkjunum, sem kyrrsettar voru ásamt áfallandi vöxtum og arði með kyrrsetningargerð sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu nr. […] þann 8. júlí 2019 og námu 30. september 2020 andvirði 75.438,85 bandaríkjadala.
Til vara er þess krafist ákærði Y sæti upptöku á 100% eignarhlut sínum í fyrrnefndu félagi, Æ.
Röksemdir sem málsóknin er byggð á, sbr. d.-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008.
Um upptökukröfur samkvæmt ákærukafla III.
Samhengis vegna eru eftirfarandi atriði sett fram til nánari skýringar upptökukröfum samkvæmt ákærukafla III og atvikum að baki þeim.
Meðferð og ráðstöfun ákærðu X og Y á ávinningi af fjársvikabrotum samkvæmt ákærukafla I.A er rakin í aðalatriðum í ákærukafla I.B um peningaþvætti. Upptökukröfur samkvæmt ákærukafla III miða að því að endurheimta þann hluta þess ávinnings sem enn er fyrir hendi eða raunhæft má telja að unnt kunni að vera að endurheimta. Að því er varðar fjármuni sem standa á reikningum félaganna Þ ehf. og Æ hjá verðbréfafyrirtækinu […] í Bretlandi og Bandaríkjunum, sbr. ákærukafla III.B.3 og III.C, kom í ljós á fyrstu stigum rannsóknar málsins sá flutningur á fjármunum til útlanda sem þar um ræðir. Upplýstust þau atvik svo nánar við frekari rannsókn, sbr. nánar í ákærukafla I.B.
Að beiðni embættisins á fyrstu stigum rannsóknar var af hálfu […] í Bretlandi fallist á að kyrrsetja til bráðabirgða, þ.e. uns fyrir lægi formleg ákvörðun viðeigandi erlendra yfirvalda um réttarbeiðni íslenskra yfirvalda um kyrrsetningu fjármunanna, allar eignir á þessum reikningum Þ ehf. og Æ. Þeir eru raunar báðir endanlega varslaðir hjá móðurfyrirtækinu […] í Bandaríkjunum. Ljóst er að allar eignir á reikningunum verða raktar til ávinnings ákærðu af brotum samkvæmt ákærukafla I, eins og nánar kemur fram í ákæru og gögnum málsins. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu kyrrsetti að kröfu embættisins allar eignir á báðum reikningum í júlí 2019. Bandarískum yfirvöldum var svo send réttarbeiðni, dags. 3. september 2019, þar sem óskað var eftir gögnum fyrir báða reikningana og jafnframt sett fram ósk um að allar eignir á þeim yrðu kyrrsettar með formlegri ákvörðun þarlendra yfirvalda, sbr. nánar í gögnum málsins.
Gögn um reikningana sem óskað var eftir bárust embættinu frá bandarískum yfirvöldum í október 2020 og eru meðal gagna málsins. Úrvinnslu réttarbeiðninnar varðandi ósk um kyrrsetningu er hins vegar ekki lokið við útgáfu ákæru. Nánar verður því upplýst um framgang eða lyktir þess þáttar réttarbeiðninnar undir meðferð málsins fyrir dómi.
Meðákærða félagið Æ er skúffufélag, skráð í […] í Bandaríkjunum. Fram kom við rannsókn að það sé í 100% eigu ákærða Y sem endanlegs eiganda og lúti stjórn hans. Félagið var stofnsett og komst í eigu ákærða Y skömmu áður en ákærði Y lét stofna fyrir það umræddan reikning hjá […]. Í beinu framhaldi af því runnu hinir viðkomandi fjármunir inn á þann reikning, sbr. nánari lýsingu í ákærukafla I.B. Fyrir utan þessa fjármuni sýna yfirlit reikningsins engar aðrar innlagnir eða eignir. Ljóst þykir jafnframt að félagið hefur ekki í reynd stundað neinn eiginlegan rekstur eða starfsemi heldur einungis gegnt því hlutverki sem ákæran og gögn málsins endurspegla, þ.e. verið skráð fyrir erlendum vörslureikningi og eignum þar sem eiga alfarið rót að rekja til ávinnings af brotum ákærðu X og Y í málinu.“
Í framhaldsákæru héraðssaksóknara, dagsettri 15. febrúar 2021, á hendur ákærðu kemur fram að hún er gefin út í tilefni af því að frekari upplýsingar komu fram eftir útgáfu fyrrnefndrar ákæru um eignir sem efni þykja til að krefjast upptöku á í sakamáli Héraðsdóms Reykjavíkur nr. S-7363/2020. Þar segir að eftirfarandi ákæra sé gefin út með vísan til 1. mgr. 153. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, og ákæru embættis héraðssaksóknara 4. nóvember 2020 til upptöku fjármuna á hendur ákærða Y. Í þinghaldi 27. maí 2021 afturkallaði ákæruvaldið framhaldsákæruna.
Málið var þingfest í héraðsdómi 14. desember 2020. Með úrskurði héraðsdóms […] var kröfu ákærðu um frávísun málsins, aðallega á þeim grundvelli að ekki væru uppfyllt skilyrði c- og d-liða 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, hafnað. Með úrskurði […] um kröfu ákærðu um að af hálfu ákæruvaldsins verði lagt fram erindi héraðssaksóknara frá skrifstofu fjármálagreiningar lögreglu, dagsett 4. desember 2018, og jafnframt sú tilkynning sem erindið byggist á, hafnað. Var úrskurðinn staðfestur í Landsrétti […]. Þá var, með úrskurði […], hafnað kröfu ákæruvaldsins um að ákærðu vikju af dómþingi á meðan meðákærði gæfi skýrslu við aðalmeðferð málsins, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 88/2008. Loks var með úrskurði […] hafnað kröfu ákærðu um frávísun málsins á þeim grundvelli að […].
Upphaflega var fyrirhugað að hefja aðalmeðferð málsins 16. nóvember 2021. Í þinghaldi 16. september 2021 höfðu verjendur ákærðu ekki enn gefið upp ákvörðun sína um það hvort þeir ætluðu að skila greinargerð vegna ákærðu. Veitti dómari þeim þá frest í viku frá þeim degi til að taka afstöðu til þess hvort greinargerð yrði skilað. Í þinghaldi 30. september 2021 er bókað að ekki hafi, af hálfu verjenda ákærðu, komið fram afstaða til þess hvort þeir ætli að skila greinargerð vegna málsins en þeim hafi í þinghaldi 16. september sl. verið gefinn viku frestur til að upplýsa um ætlun sína hvað þetta varðar. Var þá upplýst af hálfu beggja verjenda ákærðu að líklega yrði greinargerð ekki skilað. Dómari ákvað þá að verjendur fengju frest til 1. nóvember 2021 til að skila greinargerð vegna ákærðu, væri það ætlun þeirra. Hvorugur verjenda ákærðu mætti í boðað þinghald kl. 11:00, þann 1. nóvember, og höfðu þeir ekki boðað forföll sín. Var þá haft samband við þá og þeir hvattir til að mæta strax í dóminn. Voru verjendur ákærðu mættir í dóminn kl. 11:19 og var þinghaldi þá fram haldið. Hvorugur verjenda gat gefið réttlætanlega skýringu á fjarvist sinni. Lögðu verjendur ekki fram greinargerð í samræmi við þann frest sem þeir höfðu áður fengið og óskuðu eftir frekari fresti til að leggja fram greinargerð. Var festur framlengdur til 18. janúar 2022 og var aðalmeðferð málsins jafnframt frestað til 23. febrúar 2022. Lögðu verjendur fram greinargerð sína 18. janúar 2022. Vegna veikinda ákærða Y var aðalmeðferðinni frestað til 25. febrúar sl. Er framkoma verjenda ákærðu í tengslum við greinargerðarskil aðfinnsluverð og einnig vanræksla þeirra á að mæta í þinghald á tilsettum tíma 1. nóvember sl.
I
Af hálfu ákærðu voru lagðar fram skriflegar greinargerðir, samkvæmt heimild í 1. mgr. 165. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ákærði X krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af ákæru héraðssaksóknara en til vara að hann verði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa. Hið ákærða Z krefst jafnframt sýknu og að kröfum samkvæmt III. kafla A í ákærunni verði hafnað. Þá krefst verjandi ákærðu hæfilegra málsvarnarlauna að mati dómsins, sem greiðist úr ríkissjóði, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði Y krefst þess að hann verði sýknaður af ákæru héraðssaksóknara og að synjað verði, með eða án frávísunar, um framkomnar upptökukröfur á hendur honum. Ákærðu Þ ehf. og Æ krefjast þess að synjað verði um framkomnar upptökukröfur, með eða án frávísunar. Þá krefjast verjendur ákærðu, hvor um sig, málskostnaðar að meðtöldum virðisaukaskatti samkvæmt framlagðri tímaskýrslu verjenda eða að mati dómsins, sem greiðist úr ríkissjóði, að hluta eða í heild.
Byggja ákærðu sýknukröfu sína aðallega á því að háttsemin teljist vera ósönnuð og að ekki séu uppfyllt þau efnisskilyrði sem þurfi að vera fyrir hendi svo sakfellt verði fyrir brot gegn 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II
Málsatvik
Samkvæmt málsgögnum má rekja upphaf rannsóknar málsins til erindis sem embætti héraðssaksóknara barst frá skrifstofu fjármálagreiningar lögreglu (SFL) á grundvelli 7. gr. reglugerðar nr. 175/2016 um meðhöndlun tilkynningar um ætlað peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka 4. desember 2018. Varðaði tilkynningin hugsanlegt peningaþvætti ákærðu Y og X og Z. Í upphafi beindist rannsóknin að því að afla upplýsinga um bankareikninga ákærðu hjá fjármálastofnunum í því skyni að greina fjármagnsfærslur á milli einstaklinganna og lögaðilans. Voru ákærðu handteknir og gerðar húsleitir á heimilum þeirra og þá m.a. haldlögð gögn sem talin voru hafa þýðingu í málinu, tölvur og farsímar. Á heimili Y fundust m.a. yfirlit yfir reikninga Þ ehf. hjá […] í Bretlandi og í Bandaríkjunum.
Z var 28. janúar 2013 viðurkennt til skráningar sem trúfélag samkvæmt 2. gr. laga um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög nr. 108/1999, hjá innanríkisráðuneytinu, sem þá hafði það hlutverk með höndum að annast skráningu trú- og lífsskoðunarfélaga á grundvelli laganna, en þann 1. janúar 2015 tók Sýslumaðurinn á […] við því hlutverki. Var C viðurkenndur forstöðumaður félagsins og var hann ásamt ákærðu í stjórn félagsins. Þann 24. apríl 2013 var móttekin hjá ríkisskattstjóra (RSK) umsókn um skráningu og úthlutun kennitölu vegna félagsins. Við stofnun félagsins var ofangreindur C skráður stjórnarformaður félagsins en ákærðu með prókúru.
Áður en félagið var skráð sem trúfélag var umsókn um skráningu tvisvar hafnað að svo stöddu og lögðu ákærðu í kjölfar þess fram frekari gögn umsókninni til stuðnings. Í fyrra skiptið var umsókn hafnað með bréfi ráðuneytisins 10. apríl 2012. Þar kemur fram að umsóknin hefði verið send nefnd á grundvelli 4. mgr. 4. gr. laganna til umsagnar. Taldi nefndin að félagið fullnægði ekki skilyrðum um lágmarksfjölda og að ekki yrði nægilega ráðið í það af gögnum málsins að félagið hefði náð fótfestu og hverjar trúarkenningar félagsins væru nákvæmlega, eða/og hvernig það hygðist iðka trú sína með þeim hætti að fullnægði skyldum laga nr. 108/1999. Í síðara skiptið var það með bréfi 21. september 2012. Var þá talið að félagsmenn væru orðnir nægilega margir en enn skorti á að síðarnefnda atriðið væri uppfyllt.
Samkvæmt skráningu í fyrirtækjaskrá RSK er tilgangur Z: Að boða […] Þá liggja fyrir gögn um lög og samþykktir félagsins þar sem fram kemur að þeim hafi þrisvar verið breytt auk þess sem ætlunin hafi verið að gera frekari breytingar. Ávallt var ákvæði 4. gr. á sama veg hvað varðaði markmið og tilgang Z; að reglubundnar samkomur skyldu haldnar þar sem […] . Þá skyldi […].
Í fyrstu útgáfu laganna kom fram í 5. gr. þeirra að stjórn félagsins skyldi skipuð 3–9 mönnum sem kosnir skyldu á aðalfundi. Þá sagði í 6. gr. að stjórn félagsins réði málefnum þess, tæki ákvarðanir um starfsemi og bæri ábyrgð á fjárreiðum þess. Með annarri útgáfu frá því í desember 2015 var 5. gr. breytt á þann veg að kosið skyldi um stjórn félagsins á stjórnarfundi en ekki aðalfundi. Jafnframt var bætt við 6. gr. að stjórn félagsins bæri ábyrgð á ráðstöfun sóknargjalda og annarra tekna. Eru 5. og 6. gr. óbreyttar í þriðju útgáfunni. Í fyrstu útgáfunni kemur fram í 11. gr. að aðalfundur hafi æðsta vald í málefnum félagsins en þetta er tekið út í annarri og þriðju útgáfu en bætt við í 5. gr. að stjórn fari með æðsta vald félagsins. Samkvæmt 12. gr. í fyrstu útgáfunni skyldi kjósa stjórn félagsins á aðalfundum og einnig kom þar fram að á aðalfundi væri hægt að biðja stjórn að gera grein fyrir störfum sínum, en þetta var fellt út í annarri útgáfu.
Samkvæmt samþykktum hefur hlutverk stjórnar verið óbreytt en hún skal hafa eftirlit með að bókhald sé fært samkvæmt gildandi lögum og reglum, hafa eftirlit með fjármunum, rekstri, mannahaldi og að fjárhagsáætlun sé fylgt. Þá skal skoðunarmaður gera upp bókhald og semja ársreikning og gera skilmerkilega grein fyrir ársreikningum á stjórnarfundi en í annarri útgáfu er hvað þetta varðar talað um löggiltan endurskoðanda. Þá ber stjórn að kynna sér nákvæmlega fjárreiður félagsins og sjá til þess að þær séu í góðu horfi.
Sú breyting var gerð á stjórn félagsins á aðalfundi þess 20. desember 2013 að X varð formaður hennar en meðstjórnendur Y og D, […]. Skyldi Y jafnframt vera forstöðumaður þar til X hefði aldur til, eða til […]. Samkvæmt framlögðum gögnum var tilkynning um breytta stjórn send fyrirtækjaskrá og var hún móttekin þar 23. desember 2013. Fyrirtækjaskrá RSK barst 2. apríl 2019 tilkynning um breytingu á stjórn félagsins. Samkvæmt henni var skráður formaður stjórnar E og meðstjórnendur F og X, sem jafnframt átti að vera prókúruhafi, en tilkynningin var ekki talin uppfylla formskilyrði og var því ekki samþykkt. Með framlögðu bréfi sýslumannsins, dagsettu 27. febrúar 2014, til C á heimilisfang að […], vegna félagsins, var minnt á skil árlegrar skýrslu félagsins, sbr. 5. gr. laga nr. 108/1999, og einnig með ítrekunarbréfi, dagsettu 10. október 2014. Samkvæmt framburði C fyrir dómi er um að ræða heimilisfang þar sem hann var með aðra starfsemi og hafi hann í kjölfar bréfsins haft samband við sýslumann og sagt honum að hann hefði enga aðkomu að félaginu og engar upplýsingar um starfsemi þess eða stjórn.
Þann 15. apríl 2015 var birt í Lögbirtingablaðinu auglýsing sýslumanns þar sem fram kom að ekki væri vitað um neina starfsemi á vegum félagsins og hvorki væri kunnugt um hver væri forstöðumaður þess né hverjir skipuðu stjórn þess. Skoraði hann því á alla þá er teldu sig veita félaginu forstöðu eða sitja í stjórn þess að gefa sig fram innan tiltekins frests. Í kjölfar þess gaf G sig fram og kvaðst hann fara fyrir hópi manna sem hefðu reynt að starfa í félaginu og vildu halda starfsemi þess áfram. Var hann skráður forstöðumaður félagsins 1. júní 2015. Í kjölfar þess óskaði G eftir því við Fjársýslu ríkisins að greiðslu sóknargjalda til félagsins yrði frestað. Óumdeilt er að G og þeir einstaklingar sem stóðu að baki honum þegar hann var skráður forsvarsmaður félagsins höfðu það að markmiði að […]. Í kjölfar þess að […].
Eftir að ákærðu bárust upplýsingar um skráningu G sem forstöðumanns var þess krafist að sú skráning yrði leiðrétt og X skráður forstöðumaður. Var ákvörðun um skráningu G síðan kærð til dómsmálaráðuneytisins. Með úrskurði ráðuneytisins 12. janúar 2017 var ákvörðun sýslumanns um að skrá G sem forstöðumann felld úr gildi en kröfu ákærðu um að X yrði skráður sem forstöðumaður vísað frá og til umfjöllunar hjá sýslumanni þar sem málið hefði ekki verið nægilega upplýst þegar ákvörðunin var tekin. Í úrskurðinum segir að tilefni sé til að ætla að félagið uppfylli ekki lengur skilyrði þess að vera skráð sem trúfélag og hafi sýslumanni því borið að bregðast við því og afla frekari upplýsinga á grundvelli rannsóknarskyldu sinnar áður en áskorun var birt í Lögbirtingablaði og G skráður forstöðumaður. Þá segir í úrskurðinum að gögn málsins gefi tilefni til þess að sýslumaður kanni sérstaklega hvort trúfélagið uppfylli enn skilyrði þess að vera skráð trúfélag, en það er á ábyrgð trú- og lífsskoðunarfélaganna sjálfra að tilkynna til sýslumanns þær breytingar sem verða á félaginu, s.s. varðandi stjórn þess eða forstöðumann. Einnig segir í úrskurðinum að auk þeirrar óvissu sem ríki um það hver sé forstöðumaður félagsins og beri ábyrgð á því að farið sé að ákvæðum laga nr. 108/1999 sé óvissa um það hvort félagið uppfylli skilyrði laga til að vera skráð trúfélag og hver komi fram fyrir hönd félagsins, framkvæmi athafnir og taki við sóknargjöldum. X var skráður forstöðumaður trúfélagsins á ný í október 2017. Í kjölfar þess fékk félagið greidd sóknargjöld eins og í ákæru greinir.
Fyrir liggja gögn um ráðstöfun þeirra fjármuna sem trúfélaginu bárust vegna greiðslu sóknargjalda og rakin eru í ákæru. Þá liggja fyrir skýrslur trúfélagsins samkvæmt 5. gr. laga nr. 108/1999 vegna áranna 2015 til 2018. Einnig liggja fyrir gögn sem staðfesta haldlagningu og eftir atvikum kyrrsetningu fjármuna og annars sem krafist er upptöku á. Meðal rannsóknargagna eru einnig skattskýrslur ákærðu, gögn um skráningu félagsins og stjórnarfundi, tilkynning til RSK um breytingu á heimilisfangi félagsins í […], móttekin 3. desember 2015, ársreikningar og netspjall, sem talið er vera á milli C og Y og fór fram á tímabilinu febrúar til apríl 2013. Þá liggja fyrir […] frá því á árinu 2015 í kjölfar þess að auglýsingin var birt í Lögbirtingablaðinu.
Ákærði X gaf skýrslur vegna málsins 7. maí og 6. desember 2019 og var þá hluti rannsóknargagna borinn undir hann. Í fyrri skýrslunni kvaðst hann á árinu 2018 hafa starfað hjá Z og B ehf. og þegið laun hjá báðum félögunum. Einnig hefði hann fengið laun frá Z á árinu 2019 og þá starfað hjá félaginu í verktöku. Ákærði kvaðst hafa gengt forstöðumennsku hjá Z frá seinni hluta ársins 2014. Hann og […], meðákærði Y, hefðu stofnað Z til að endurvekja […] sem væri byggð á […] gildum. Félagið hefði verið til húsa í […] og þá deilt húsnæði með B ehf. en fengi nú póst félagsins heim til sín að […]. Einungis hann og Y hefðu unnið fyrir félagið en kostnaður félagsins væri breytilegur á milli mánaða. Launagreiðslur á árinu 2018 hefðu verið verkatakagreiðslur til hans og Y og lægi mikil vinna að baki þessum greiðslum.
Ákærði kvaðst hafa haft það hlutverk að sjá um fjárreiður félagsins, sbr. 6. gr. samþykkta þess. Bókhald hefði verið haldið en hann myndi ekki hvort það hefði tekið til alls sem var gert. Þá hefði hann sjálfur gert ársskýrslur fyrir félagið. Hvað varðaði breytingu á stjórn félagsins 1. janúar 2019 þá hefðu D og Y viljað hætta í stjórn en erlendir aðilar hefðu lýst yfir áhuga á því að koma inn í stjórn félagsins. Kvaðst hann ekki muna hvort hann hefði sjálfur fyllt út tilkynningu um breytingu á stjórn og beiðni um kennitölur fyrir H og I en kvaðst sennilega hafa fengið vegabréfin hjá þeim. Kvaðst hann ekki geta tjáð sig um það að tvö af vegabréfum stjórnarmanna hefðu verið ógilt nokkrum dögum eftir að þeim var framvísað við umsóknina. Þá sagði hann leiðréttingu á ársskýrslu hafi verið gerð vegna deilna á árunum 2015 til 2017 sem urðu til þess að fjármunir voru frystir en síðan greiddir út í október 2017. Sagði hann rekstrarkostnað samkvæmt lið 4 vera eins og venjulegan rekstrarkostnað hjá félagi, t.d. net, síma og annað. Hann hefði sjálfur að mestu haldið utan um bókhald félagsins en vildi ekki tjá sig um framburð Y þess efnis að löggiltur endurskoðandi hefði gert ársreikninga fyrir félagið.
Kvaðst ákærði telja að um […] væru nú í félaginu en erfitt væri að fá fólk til að vera virkt. Lítill kjarni sækti samkomur félagsins en upplýsingar um þær hefði verið hægt að nálgast t.d. með því að hafa samband við forstöðumann. Félagið væri með heimasíðu þar sem einstaklingar gætu fyllt út form til að sækja um […]. Ef viðkomandi reyndist vera á lista yfir meðlimi í félaginu væru honum […]. Áætlaði hann að 5–10 milljónir króna hefðu verið […]. Hvað varðaði athafnir á vegum félagsins þá kvaðst ákærði bæði hafa gift og skírt. Hvað aðrar athafnir varðaði þá hefði það aðallega verið […] sem byggðist á […] sem væri einnig […] til heiðurs […]. Á samkomunni væru […]. Hann minntist þess ekki að þessar samkomur hefðu verið auglýstar sérstaklega en félagar hefðu getað haft samband við hann. Þá kom fram hjá honum að bók væri í vinnslu vegna Z sem innihéldi […].
Ákærði sagði Z vera í bankaviðskiptum við […] og það ætti enga bankareikninga erlendis. Bæði hann og Y væru með prókúru og debetkort á bankareikninginn en engin kreditkort væru skráð á félagið. Hvað varðaði greiðslur til Þ ehf. í lok desember 2017 þá sagði ákærði að lánalínusamningur væri á milli félaganna. Eitthvað af greiðslunum til Y á árinu 2017 hefði verið vegna […]-auglýsinga og herferða og greiðslur vegna lögfræðiþjónustu væru vegna deilna við sýslumann um vinnubrögð hans. Aðrar reiðufjárúttektir á því ári væru greiðslur fyrir heimasíðugerð en hann myndi ekki hvaða fyrirtæki hefðu séð um að gera hana. Aðrar úttektir væru t.d. greiðslur til […] vegna aðstoðar við textagerð, greiðslur til […] vegna dreifingar á bæklingum, greiðslur til […] vegna hönnunar á „logo“ og bæklingum og greiðslur til […] vegna ráðgjafar við […]. Hvað varðaði útborganir af reikningi félagsins árið 2018 sagði ákærði að greiðslur til hans væru laun. Greiðslur til Þ ehf. byggðust á lánalínusamningi milli félaganna, greiðslur til Y væru að öllum líkindum laun og greiðslur vegna lögfræðiþjónustu væru fyrir lögmannsþjónustu. Greiðslur til […] væru vegna þess sama og árið áður og greiðslur til […] og […] væru vegna nets og síma fyrir forstöðumann. Hvað varðaði árið 2019 þá væru greiðslur til hans og Y launagreiðslur og það sama ætti við og árið á undan hvað varðaði greiðslur vegna lögfræðiþjónustu. Greiðslur til B ehf. væru vegna leigu á húsnæðinu í […] og að öðru leyti ættu við sömu skýringar og vegna fyrri ára.
Hvað varðaði debetkortagreiðslur af reikningi félagsins árið 2017 þá sagði ákærði að greiðsla með skýringunni „[…]“ væri ferðakostnaður vegna ferða erlendis, m.a. til að kynna sér hvað önnur trúfélög væru að gera. Greiðslur tengdar mat og drykk væru vegna samkoma á vegum trúfélagsins og reiðufjárúttektir kvaðst hann telja að hefðu verið til að greiða kostnað vegna heimasíðugerðar. Greiðslur til […] taldi hann vera vegna samkoma á vegum trúfélagsins, t.d. vegna […]. Hvað varðaði árið 2018 þá sagði ákærði að greiðsla til […] væri líklega styrkur, greiðsla til […] væri vegna kaupa á skrifstofubúnaði fyrir félagið og til […] vegna kaupa á fatnaði vegna mögulegra útiathafna. Eldsneytisúttektir væru vegna starfa hans fyrir félagið og greiðslur tengdar ferðakostnaði væru ferðakostnaður vegna félagsins. Greiðslur í matvöruverslunum væru „kaffikostnaður“ félagsins, greiðslur tengdar mat og drykk, t.d. til […] og […], væru vegna kaupa á matarkortum sem hægt væri að nota fyrir sjálfboðaliða félagsins. Greiðslur til […] tengdust […]. Úttektir í reiðufé væru mestallar laun til hans og eitthvað til Y og færslur tengdar fjarskiptum væru vegna síma forstöðumanns. Færslur tengdar […] væru vegna athafna og einnig vegna víns sem geymt væri á skrifstofu félagsins til að bjóða fólki sem kæmi þar við. Hvað varðaði greiðslur vegna ársins 2019 þá væru greiðslur til […] vegna skrifstofuvara, til […] væru styrkur, til […] vegna fatakaupa fyrir forstöðumann fyrir mögulegar athafnir og eldsneytiskaup vegna starfa hans fyrir félagið. Greiðslur tengdar ferðakostnaði og matvöruverslunum sagði ákærði vera kostnað tengdan rekstri félagsins. Hvað varðaði greiðslur tengdar mat, drykk og fjarskiptum ætti það sama við og árið áður, greiðslur til […] væru vegna athafna og úttektir í reiðufé væru hans laun.
Ákærði sagði að félagið hefði keypt Þ ehf. á árinu 2018 á 500.000 krónur og það hefði lánað Þ ehf. fjármuni með lánalínusamningi. Þ ehf. héldi utan um fjármuni félagsins og sæi Y um það og stýrði Þ ehf. Spurður um inn- og útborganir af bankareikningi Þ ehf. kvaðst hann ekki muna eftir greiðslum til B ehf. Greiðsla til hans hefði átt að fara í viðskipti en hluta hennar hefði verið skilað í banka og greiðsla til J hefði verið vegna kaupa á félagi. Vísaði ákærði á Y hvað varðaði greiðslur til […] og greiðslur á erlendan bankareikning Y. Þá sagði ákærði að reiðufjárúttekt af reikningi félagsins, en sama fjárhæð var síðan lögð inn á reikning B ehf., væri launagreiðsla til hans.
Í skýrslutökunni af ákærða 6. desember 2019 sagði hann að Z hefði orðið til árið 2013 til að iðka […] trú og vekja athygli á henni. […] trú væri […] og Z væri útgáfa af henni. Kvaðst hann ekki minnast þess að hafa komið að pappírsvinnu vegna skráningar félagsins. Spurður hvernig […] færi fram sagði hann að fólk […] og færi með […] sem […] hefði samið. Viðburðurinn hefði farið fram á veitingastöðum eða börum eða þar sem það var talið vera hentugast. Sá viðburður hefði verið auglýstur á töflu félagsins í […] og á heimasíðu félagsins auk þess sem fólk hefði getað haft samband og fengið tímasetningu. Borið var undir ákærða vottorð úr fyrirtækjaskrá um stjórn félagsins og sagði ákærði að sýslumaður hefði vitað hverjir voru í stjórn félagsins en hann hefði þá sjálfur verið í stjórninni. Á þessum tíma hefði verið starfsemi í félaginu þó meðlimir hefðu verið fáir en þeir hefðu einungis verið þrír fyrstu árin eftir stofnun þess. Sagði hann hóp sem hefði talið sig hafa yfirtekið félagið hafa verið í sambandi við sýslumann áður en áskorunin var gefin út. Spurður um þann fjölda sem hefði skráð sig í félagið á þeim grunni að […] sagði ákærði að það væri ekki endilega tenging á milli skráningar fólks og […]. […] hefði einnig vakið áhuga fólks á því starfi sem var í gangi í félaginu. Sagði ákærði að hugmyndir um […] hefðu áður komið upp hjá þeim og þá sem […].
Ákærði sagði Y hafa skilað inn ársreikningi vegna ársins 2017. Taldi hann að þar væri villa hvað varðaði hluthafa en engir hluthafar væru í félaginu þar sem um væri að ræða trúfélag. Hann teldi ársreikninginn hafa gefið rétta mynd af stöðu félagsins á þessum tíma. Kvaðst hann nú vera forstöðumaður félagsins. D væri ekki lengur í stjórn félagsins og vildi hann ekki tjá sig um það hvort fleiri en hann og Y væru nú í stjórninni. Kvaðst ákærði ekki muna hvort hann hefði fyllt út eða skilað inn gögnum vegna breytingar á stjórn félagsins á árinu 2019 þar sem erlendir aðilar tóku þar sæti.
Ákærði kvaðst sjá um viðburði og almennan rekstur félagsins. Mikill tími hefði farið í að vernda trúfélagið fyrir starfsmanni Sýslumannsins á […]. Y væri stjórnarmaður og aðstoðaði hann en hann bæri ekki ábyrgð á neinu sérstöku. Hann kvaðst ekki geta útskýrt hvaða hugsun hefði verið að baki þeim breytingum sem hefðu verið gerðar á samþykktum félagsins. Spurður um lánalínusamning á milli Z og Þ ehf. sagði ákærði að þetta hefði verið rætt við lögfræðing svo allt væri rétt gert. Ætlunin hefði verið að fjárfesta í íslenskum hlutabréfum, t.d. […] og […], en hann vissi að eitthvað af fjármununum væri á vörslureikningi. Félagið Æ hefði séð um heimasíðu Z. Sagði hann líklega rétt að Þ ehf. ætti það félag. Borið var undir hann skjal sem ber heitið „opin reikningslánalína“, dagsett 12. október 2017, og kvaðst ákærði halda að þetta væri ekki fullklárað skjal heldur drög þar sem ekki væri vottur eða annað á því. Þá kvaðst ákærði ekki muna hvert hefði verið tilefni annarra samkoma samkvæmt samantekt félagsins yfir samkomur 2018, en félagsmenn hefðu verið að koma saman og iðka trú sína. Borið var undir ákærða yfirlit yfir reikning Þ ehf. hjá […] yfir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2019. Kvaðst ákærði halda að um væri að ræða fjármuni sem hefðu farið á milli félaganna með lánalínunni. Spurður hvort um væri að ræða fjármuni félagsins vísaði ákærði á Y. Var ákærða kynnt að sama dag hefði verið tekin samsvarandi fjárhæð í reiðufé af reikningi félagsins og sagði ákærði að úttektin hefði annaðhvort verið laun til hans eða skuld sem hefði verið gerð upp við B ehf. Bornar voru undir ákærða færslur af reikningi Z og kvað hann greiðslurnar hafa verið í þágu félagsins.
Ákærði Y gaf skýrslur vegna málsins 7. maí 2019 og 5. desember 2019. Í fyrri skýrslunni kvaðst ákærði ekki skilja sakargiftir og því lítið geta tjáð sig um þær en ekkert óeðlilegt hefði átt sér stað í trúfélaginu. Hann væri nú markaðsstjóri hjá […] og hefði verið á árunum 2017 til 2019. Á þessum tímabili hefði hann einnig fengið verktakagreiðslur frá trúfélaginu en starf hans þar hefði aðallega snúist um tölvumál. Ákærði sagði tilganginn með félaginu vera rekstur trúfélags og iðkun […] trúar. Kvaðst hann ekki vita hve margir væru virkir félagar í félaginu. Þá sagði hann félagið vera að vinna að bók sem yrði gefin út og hefði það einnig gefið út annað efni um trúarbrögðin. Kvaðst hann ekki muna nákvæmlega hver aðkoma hans að félaginu hefði verið. Þó nefndi ákærði að hann hefði sinnt gagnavinnslu vegna heimasíðu félagsins og sinnt verkefnum vegna bókaútgáfunnar sem hefðu falist í heimildaleit og samskiptum við þann sem var að vinna bókina. Sagði hann félagið hafa verið í samskiptum bæði við félög og einstaklinga erlendis sem hefðu áhuga á […]. Félagið hefði nú ekki fastan samastað og vissi hann ekki hvar gögn félagsins væru nú, en það hefði áður leigt í […] og deilt aðstöðu með öðru félagi. Giftingar og ýmislegt hefði farið fram í […] og einnig hefði farið fram skírn. Spurður um […] sagði hann að […] en hann myndi ekki hve margir hefðu […]. Hann sagði athöfnina […] hafa farið fram víða og telja að haldið hefði verið utan um það einhvers staðar. Hefði hann […]. Sagði ákærði að bókhald hefði verið fært fyrir félagið af utanaðkomandi aðila og endurskoðandi séð um ársreikninga. Spurður kvaðst ákærði mögulega hafa séð ársskýrslu félagsins vegna ársins 2017 og leiðrétta skýrslu vegna sama árs og taldi hann að þetta hefði verið í samræmi við ársreikninga félagsins en hann gæti ekki svarað því hver gerði þessar skýrslur. Hann hefði vitað að leiðréttri skýrslu var skilað en eitthvað hefði ekki verið fært inn á réttan lykil. Spurður um tilkynningu á heimasíðu félagsins […] um brotthvarf forstöðumanns sagði ákærði að leitað hefði verið eftir aðstoð ráðningarfyrirtækis. Þegar sýslumaður óskaði eftir því að félagið fengi ekki greidd frekari sóknargjöld hefði það truflað ráðningu nýs forstöðumanns. Var ákærða kynnt tilkynning til fyrirtækjaskrár um breytingu á stjórn félagsins móttekna 23. apríl 2019. Ákærði sagði að þeir erlendu aðilar sem þá hefði átt að skrá í stjórnina hefðu tekið við í stjórn félagsins og sætu enn í stjórn þess en sjálfur sæti hann þar ekki lengur.
Ákærði sagði félagið hafa verið með bankareikning í […] og væru engir erlendir bankareikningar tengdir félaginu. Neitaði ákærði að tjá sig um það hvort hann hefði prókúru á reikning félagsins. Borin voru undir ákærða skjöl varðandi útborganir af reikningi félagsins árið 2017. Sagði hann greiðslu til Þ ehf. skýra sig sjálfa. Hlutverk félagsins væri að styrkja framtíðarstarfsemi sína, þ.e. ávaxta fjármuni félagsins. Var ákærða kynnt að samkvæmt ársreikningi Þ ehf. væri hann skráður eigandi félagsins A og kvaðst hann ekki muna eftir því. Varðandi greiðslu til hans sjálfs af reikningnum kvaðst hann ekki geta sagt neitt um þetta og að það hlyti að koma fram í ársreikningi, og ekki geta svarað því hvort þetta væru laun eða endurgreiðsla á útlögðum kostnaði. Varðandi […] á árinu sagði ákærði að þetta hefði verið einfalt; fólk hefði […] . Greiðslur vegna lögfræðiþjónustu á árinu tengdust baráttu félagsins við sýslumann. Kvaðst hann ekki geta útskýrt reiðufjárúttektir og vísaði í ársreikning félagsins. Varðandi aðrar greiðslur sagði ákærði að greiðsla til […] væri vegna almannatengsla, til […] vegna dreifingar á markaðsefni og til […] vegna hönnunar á markaðsefni. Hvað varðaði útborganir af reikningi félagsins á árinu 2018 þá kvaðst ákærði, hvað varðaði greiðslur til X, telja að hann hefði fengið einhverjar verktakagreiðslur. Greiðslur til Þ ehf. væru væntanlega samkvæmt samkomulagi milli Þ ehf. og félagsins um ávöxtun fjármuna. Hann hefði verið eini starfsmaður Þ ehf. og séð um að ávaxta féð fyrir trúfélagið. Varðandi greiðslur til hans sjálfs þá hefði hann fengið einhverjar verktakagreiðslur á árinu. Greiðslur fyrir lögfræðiþjónustu væru vegna áframhaldandi baráttu við sýslumann og skaðabótamáls gegn íslenska ríkinu. Aðrar útborganir á árinu, t.d. til […] og […] væru vegna internets og símakostnaðar en hann myndi ekki hvort félagið hefði greitt slíkt fyrir hann sjálfan. Þetta væri allt vegna reksturs félagsins. Hvað varðaði greiðslur af reikningnum árið 2019 sagði ákærði að það væri ekki hans að svara vegna greiðslna X. Hvað varðar greiðslur til Þ ehf. þá þyrfti hann að rifja það betur upp og hvað varðaði hann sjálfan þá gæti verið að það hefðu verið gerðar upp verktakagreiðslur við hann. Gæti hann lítið tjáð sig um aðrar útborganir. Þá voru bornar undir ákærða debetkortagreiðslur af reikningnum árið 2017 og kvaðst hann lítið geta tjáð sig um þær og vísaði á ársreikning. Greiðslur tengdar mat og drykk gerði hann ráð fyrir að væru hluti rekstrarkostnaðar félagsins og tengdust mögulega samkomum hjá því. Þá gæti hann ekki útskýrt úttektir í reiðufé en sagði greiðslur til […] vera veitingar fyrir félagið. Hvað varðaði debetkortagreiðslur á árinu 2018 vísaði ákærði í framburð vegna fyrra árs og sagði þetta tengjast rekstri félagsins. Hann vissi lítið um færslur vegna eldsneytisstöðva en forstöðumaður hefði haft bifreið til umráða. Hann gæti ekkert sagt um greiðslur tengdar ferðakostnaði eða matvöruverslunum. Hvað varðaði úttektir á reiðufé kvaðst ákærði ekki geta rakið þær. Reikningar vegna fjarskipta væru rekstrarkostnaður og greiðslur til […] vegna veitinga fyrir félagið. Hvað varðaði debetkortagreiðslur vegna ársins 2019 kvaðst ákærði ekki vita um hvaða greiðslu væri að ræða með skýringunum „[…]“ eða færslur tengdar ferðakostnaði. Sömu skýringar ættu við hvað varðaði eldsneytiskostnað. Þá gæti hann ekki gefið skýringar á færslum tengdum matvöruverslunum og sjálfur hefði hann ekki verslað í […]. Greiðslur tengdar mat og drykk tengdust mögulega fundum með safnaðarmeðlimum. Greiðslur tengdar fjarskiptum væru vegna síma og internets.
Ákærði sagði Þ ehf. hafa verið stofnað árið 2003 og hann komið að stofnun þess og verið daglegur stjórnandi félagsins. Félagið hefði fyrst og fremst ávaxtað fjármuni fyrir trúfélagið og sami aðili hefði væntanlega séð um bókhald beggja félaganna en hann vissi ekki nafn viðkomandi. Þá vissi hann ekki hver hefði gert ársreikning Þ ehf. vegna ársins 2017. Borin var undir ákærða samantekt og greining vegna inn- og útborgana af bankareikningi Þ ehf. á rannsóknartímabilinu. Hvað varðaði greiðslur til hans sjálfs kvaðst hann þurfa að skoða það nánar og kanna hvort hann hefði fengið laun frá félaginu á tímabilinu. Kaup á hlutabréfum í […] og […] tengdust ávöxtun á fjármunum trúfélagsins sem væru í vörslum Þ ehf. en […] væri verðbréfafyrirtæki. Þetta hefði ekki farið beint í gegnum trúfélagið þar sem það hefði vantað verðbréfanúmer. Spurður um […] kvaðst hann telja að fjármunirnir hefðu farið þaðan til […]. Greiðslur frá […] inn á reikning Þ ehf. væru þjónustugreiðslur vegna markaðsvinnu en ákærði kvaðst ekki vera með skýringar á greiðslum frá B ehf. til Þ ehf., en B ehf. væri á vegum X.
Borin var undir ákærða skýrsla vegna greiðslna frá trúfélaginu inn á reikning Y og ráðstöfun greiðslna í framhaldinu. Spurður hvort hann hefði notað fjármuni félagsins til að greiða inn á sitt persónulega kreditkort kvaðst ákærði ekki geta áttað sig á öllum þess greiðslum en þær hefðu verið annaðhvort verktakagreiðslur eða endurgreiðslur á útlögðum kostnaði. Hann hefði lagt út fyrir ýmsu fyrir félagið.
Í skýrslutöku 5. desember 2019 sagði ákærði að félagið hefði verið stofnað til að iðka […] trú og það hefði verið eini ásetningur þeirra við stofnun félagsins. Væru þeir í samskiptum við aðra […] erlendis. Vildi ákærði ekki svara spurningu rannsakara um helgidaga og trúarsiði og vísaði á forstöðumann hvað varðaði boðanir á samkomur. Spurður um áskorun sýslumanns sem birtist í Lögbirtingablaðinu kvaðst hann ekki hafa verið í stjórn félagsins á þessum tíma. Sýslumanni hefði verið ljóst hverjir voru í stjórn félagsins. Alltaf hefði verið starfsemi í félaginu og trúariðkun. Kvað hann sig hafa grunað að hópur manna, í samráði við starfsmann sýslumanns, væri að reyna að […]. Vildi ákærði ekki svara því hvort hann og þeir sem honum tengdust hefðu haft fyrirætlanir um að […]. Hann vissi ekki hvers vegna fólk skráði sig í félagið; til að […] eða […]. Þeir hefðu ákveðið að efna loforðið um […]. Ákærði kvaðst ekki muna hvers vegna aflýsa hefði átt aðalfundi árið 2015. Kvaðst hann ekki vita hvort gerður hefði verið ársreikningur vegna þess árs, en það hefði verið á könnu X.
Ákærði sagði X vera forstöðumann félagsins í dag og vildi ekki tjá sig um það hvort hann væri sjálfur í annarri formlegri stöðu hjá félaginu en að vera stjórnarmaður. Þá kvaðst hann ekki vilja tjá sig um breytingar á stjórn félagsins á árinu 2019. Hann sagði félagið Æ vera dótturfélag Þ ehf. síðan félagið eignaðist Þ ehf. Æ sæi um fjárfestingar eins og Þ ehf. Borin voru undir ákærða skjöl er varða útborganir, annars vegar vegna debetkortagreiðslna og hins vegar greiðslna sem tengdar voru sérstaklega notendanafni ákærða eða debetkorti á hans nafni, og kaus ákærði að tjá sig ekki um þær. Ákærði var spurður um greiðslur sem fóru frá Þ ehf. inn á […] og kvaðst hann telja að þetta væru greiðslur frá Æ og að fjármunir á reikningi þess félags hjá […] hefðu komið af sínum reikningi og upphaflega verið færðir þangað frá Þ ehf. Við rannsókn málsins voru teknar vitnaskýrslur af C og K auk skýrslu af D, […], en hún hafði þá réttarstöðu sakbornings. Ekki er ástæða til að rekja efni þessara skýrslna.
III
Framburður ákærðu og vitna fyrir dómi
Ákærði X kvaðst lítið geta lýst aðdraganda þess að sótt var um skráningu trúfélagsins á árinu 2012 og vísaði á ákærða Y og C hvað það varðaði. Þeir hefðu séð um skráninguna en hann síðar komið inn í stjórnina og þá hefði vaknað áhugi hjá honum. Sjálfur hefði hann ekki verið að iðka trúarbrögð í anda […] á þessum tíma. Þá hefði hann ekki skrifað þau gögn sem fylgdu umsókn og ekki vita annað um tengsl við móðurkirkju í […] en að þar væri iðkuð sama trú og teldi hann að Y tengdist henni. Gæti hann heldur ekki svarað fyrir það hvers vegna áhersla hefði verið lögð á fjárhagsáætlun og bókhald í umsóknarferli. Þá hefðu þeir fengið mikið af fyrirspurnum frá erlendum aðilum og teldi hann að einhverjir þeirra hefðu iðkað þessi trúarbrögð með virkum hætti. Var ákærða kynnt að í upplýsingum til ráðuneytisins vegna skráningar trúfélagsins kæmi fram að starfsemi félagsins, svo sem reglulegt samkomuhald og annað sem gæfi til kynna að starfsemi þess væri stöðug og virk, og venjulegir fundir meðlima, skyldu að jafnaði haldnir að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Kvaðst ákærði ekki muna hvort starfsemi félagsins hefði verið í samræmi við þetta á árinu 2012. Þá kvaðst hann telja að C hefði safnað meðlimum og tekið saman félagatal sem sent hefði verið með nýrri umsókn eftir að þeirri fyrstu var hafnað. Kvaðst ákærði ekki vita hvort allt þetta fólk hefði verið virkt. Var ákærða kynnt að með þriðju umsókninni, sem send var 11. október 2012, hefðu verið sendar frekari upplýsingar um helgisiði og athafnir, les- og bænahóp, og það hve oft þetta færi fram. Sagði ákærði að á þessum tíma gæti vel verið að þetta hefði farið svona fram en þeir hefðu m.a. oft hist í […] til að fræðast um efnið og pæla. C og Y hefðu einnig tekið þátt í þessu og hugsanlega fleiri.
Ákærði kvaðst ekki vita neitt um fyrirliggjandi netspjall á milli Y og C en sagði að stofnun trúfélagsins hefði ekki verið gerð af léttúð af þeirra hálfu. C hefði verið forstöðumaður þegar félagið var skráð. Hann hefði viljað gegna þessari stöðu auk þess sem hann hefði verið með hóp af fólki sem hafði áhuga á þessu. Staðfesti ákærði að hann og Y hefðu þá verið í stjórn og hann og C með prókúru. Þá kvaðst ákærði kannast við undirritun sína á þeim skjölum sem send voru RSK vegna félagsins, þ. á m. lögum og samþykktum.
Ákærði kvaðst ekki vita hvers vegna ákveðið hefði verið í lögum félagsins að stjórnarmenn og forstöðumaður væru kosnir á aðalfundi, að aðalfundur hefði æðsta vald í málefnum félagsins og að lögum væri einungis hægt að breyta á aðalfundi. Teldi ákærði að þetta hefði verið staðlað á þessum tíma en síðar verið breytt. Það sama ætti við um skipan mála hvað varðaði fjármál félagsins í 5. kafla laganna en hann vissi ekki hvort þessu hefði verið fylgt í störfum félagsins. Borin var undir ákærða tilkynning til RSK frá 20. desember 2013 þar sem D kom inn í stjórnina fyrir C og sagði ákærði að C hefði viljað losna út. Þar með hefði afskiptum C af félaginu lokið. D hefði tekið þátt í starfseminni eftir að hún kom í félagið og m.a. tekið ákvarðanir á óformlegum stjórnarfundum. Þá kvaðst ákærði ekki geta svarað því hvers vegna aðalfundi sem halda átti í maí 2015 hefði verið aflýst með löngum fyrirvara en hugsanlega vegna búsetu Y og D […]. Þá kvaðst hann ekki kunna skýringar á því hvers vegna fundargerðir vegna aðalfunda 2013 og 2014 hefðu ekki verið undirritaðar. Ákærði kvaðst ekki vita hvort skráning vegna ársins 2013, þegar þrír meðlimir voru skráðir í félagið samkvæmt þjóðskrá, væri rétt og ekki vita hvers vegna þeir einstaklingar sem voru á lista með umsókn árið 2012 hefðu ekki verið skráðir félagar, og vísaði á Y hvað það varðaði. Gerði hann ráð fyrir að á tímabilinu frá því að félagið var skráð á árinu 2013 og fram á fyrri hluta ársins 2015 hefði verið starfsemi í félaginu. Hefðu m.a. hann, Y og C hist í […]. Kvaðst ákærði ekki hafa vitað af fyrirspurnunum sem sýslumaður sendi í […] og hefði C ekki látið þá vita af þessu.
Ákærði kvaðst heldur ekki hafa vitað af áskorun sýslumannsins í Lögbirtingablaðinu þegar hún birtist en frétt af henni í nóvember 2015 þegar þeir heyrðu að […] og hefði […]. […]. Hugmyndin um […] . Þeir hefðu […] . Hann og Y hefðu reynt að gera gott úr þessu en helst viljað […]. Hefði hann reynt að ræða við einn úr þessum hópi en þeir ekki viljað ræða við þá. Hefði hann ætlað að segja þeim að þeir gætu ekki gert þetta þar sem […].
Ákærði sagði að lögheimili félagsins hefði verið fært í […] í desember 2015. Þar hefðu hann og Y verið með skrifstofu vegna annars félags og samnýtt húsnæðið. Þeir hefðu hist á vegum trúfélagsins og […]. Ákærði kvaðst kannast við að fundur hefði verið haldinn 4. nóvember 2015 og kannast við undirritun sína á fundargerð. Fundurinn hefði verið óformlegur og hefði þurft að breyta samþykktum til að tryggja félagið þar sem […]. Þegar ákvarðanir voru teknar hefði það oftast verið á óformlegum fundum en það síðan ritað upp. Kvaðst ákærði ekki muna hvort þetta hefði verið aðalfundur. Spurður hvers vegna lögum hefði verið breytt þannig að stjórnin færi með æðsta vald og kysi nýja stjórnarmenn sagði ákærði að það hefði þurft að tryggja að […]. Hefðu þeir ákveðið að gera þetta eins og önnur trúfélög, eins og t.d. þjóðkirkjan, sem væri með biskup, en hann væri ekki kosinn á aðalfundi. Hefðu þeir ekki talið óeðlilegt að stjórn félagsins kysi stjórn. Ákærða var kynnt að ákvæðum um löggiltan endurskoðanda hefði ekki verið breytt en þau aðlöguð að stjórnarfundi þar sem gera hefði þurft grein fyrir ársreikningum og sagði ákærði þá að reynt hefði verið að nota endurskoðanda en síðan fengin annar sem sýndi þeim hvernig þetta væri gert. […] og því erfitt að fá löggiltan endurskoðanda. Ársreikningur hefði verið gerður vegna áranna 2017 og 2018 og bókhald haldið með einhverjum hætti, ekki mjög skipulagt. Kvaðst ákærði ekki vita hvers vegna bókhaldið hefði ekki fundist við rannsókn málsins. Þeir hefðu ráðið lögmann og falið honum m.a. að sjá um almenn samskipti við stjórnvöld. Lögmaðurinn hefði ekki verið í félaginu og ótengdur því. Hann hefði t.d. sótt um lóð fyrir félagið en ákærði sjálfur samið texta umsóknarinnar.
Var ákærða kynnt að samkvæmt 5. gr. laga nr. 108/1999 skal trúfélag senda árlega skýrslu til sýslumanns og gera grein fyrir breytingum á félagatali og ráðstöfun á fjármunum félags og þeim upplýsingum sem þarf að veita við umsókn og skráningu. Samkvæmt því þurfi að koma fram hvaða lög og reglur gildi um fjármál félagsins og ráðstöfun fjármuna þess, starfsemi félagsins og reglulegt samkomuhald og annað. Var ákærða kynnt að í skýrslu vegna ársins 2015 sem móttekin var hjá sýslumanni 29. mars 2016 kæmi fram að haldnar hefðu verið samkomur og reglulegir fundir í félaginu og hann spurður hvaða. Ákærði sagði að reynt hefði verið að halda reglulega fundi til að fræðast, hittast og tala um þetta áður en […]. Sagði hann að það hefðu verið mistök að upplýsa ekki í skýrslunni um lagabreytingarnar 3. desember 2015. Þá var ákærða kynnt að í skýrslu vegna ársins 2016 kæmi fram að aðrar tekjur hefðu verið 718.002 krónur og sagði ákærði að þeir hefðu lánað þetta til félagsins, m.a. vegna lögmannskostnaðar, en það verið núllað út á endanum. Þær 32 reglulegu samkomur sem nefndar væru í skýrslunni hefðu verið haldnar en þeir hefðu reynt að halda einhverri starfsemi gangandi þó að þeir hefðu verið undir […]. Hann hefði lítið getað gert þar sem hann hefði ekki verið viðurkenndar forstöðumaður af sýslumanni. Hann hefði ekki getað fengið meðlimalista og ekki gift eða skírt. Sagði hann að verið gæti að fleiri en þeir sem voru í stjórninni hefðu verið á þessum samkomum. Staðfesti ákærði að leiðréttri skýrslu vegna ársins 2016 hefði verið skilað um tveimur árum síðar, eða 31. mars 2019. Ástæðan hefði verið sú að starfsmaður sýslumanns hefði talið að það þyrfti að breyta því hvenær sóknargjöldin bærust. Í skýrslu vegna ársins 2016 hefði komið fram að þeir ættu rétt á 32 milljónum króna og því hefði þurft að skila leiðréttri skýrslu en þetta hefði verið greitt síðar.
Ákærða var kynnt að skýrsla vegna ársins 2017 hefði verið móttekin 4. apríl 2018 og staðfesti hann að henni hefði verið skilað. Aðrar tekjur að fjárhæð 804.000 krónur væri eitthvað svipað og áður. Þá kvaðst hann litlar skýringar hafa á rekstrarkostnaði að fjárhæð 4.335.884 krónur en þessi skýrsla hefði verið leiðrétt að frumkvæði þeirra. Þá kvaðst hann ekki muna hvað „óvenjulegur liður 35.684.528 krónur“ væri en þetta hefði verið leiðrétt og skildi hann ekki hvers vegna þetta fór svona frá honum. Þær 36 samkomur sem skráðar væru í skýrslunni væru „reglulegur hittingur“ þar sem hann, Y og einhverjir fleiri hefðu mætt. Þarna hefðu þeir enn verið að berjast við sýslumann en þeir hefðu þurft að bíða í níu mánuði eftir niðurstöðu. Aldrei hefði verið gerð krafa um nánari upplýsingar um þessar samkomur, eins og hvenær eða hvar þær voru haldnar. Var ákærða kynnt að leiðréttri skýrslu vegna ársins 2017 hefði verið skilað inn 31. mars 2019 og vísaði ákærði í fyrri svör hvað það varðaði hvers vegna hún hefði verið leiðrétt. Neitaði ákærði því að þetta væri í samhengi við það að greiðslur til trúfélagsins hefðu verið frystar. Leiðréttingin væri til að færa alla summuna á árið 2017 í stað þess að skipta henni milli ára. Var ákærða kynnt að rekstrarkostnaður hefði hækkað í leiðréttri skýrslu úr fjórum og upp í 14 milljónir króna. Vísaði ákærði hvað þetta varðaði í ársreikning og sagði þetta sundurliðað þar. Þá var ákærði spurður hvers vegna „óvenjulegir liðir“ væru þarna orðnir núll í stað 36 milljónir króna og kvaðst ákærði ekki getað svarað því en þetta hefði verið leiðrétt að eigin frumkvæði. Einnig var borinn undir hann nýr liður sem kom inn í skýrsluna „aðrar eignir sem máli skipta“, rúmar 46.625 000 krónur, og var ákærði spurður hvernig þessi fjárhæð væri fundin út og sagði hann: „eignir félagsins“. Spurður hvort þetta væri mismunur á tekjum og gjöldum sagði ákærði að það væri eitthvað í þá áttina; væri lánalína og peningar. Ákærði sagði að 41 samkoma, […], á ýmsum dagsetningum væru trúarlegar samkomur og fjöldi og aðrar upplýsingar væru réttar. Kostnaðurinn væri vegna matar og drykkjar og hefði hann ákveðið dagsetningarnar og viðstaddir hefðu verið bæði meðlimir og aðrir en hópurinn hefði ekki verið stór. Reynt hefði verið að vekja athygli fólks sem var á staðnum. Að einhverju leyti hefðu það verið sömu manneskjurnar sem mættu en hann vildi ekki nafngreina þær. Að einhverju leyti hefði verið boðað á samkomur, í suma hringt og einnig hefðu verið tilkynningar á heimasíðu félagsins um […] og hægt að hafa samband við þá. Einnig hefði verið auglýst á auglýsingatöflu inni á skrifstofu þeirra í […]. Var ákærða kynnt að við rannsókn hefði ekki fundist tilkynning með tímasetningu og sagði ákærði þá að þeir hefðu ekki verið mikið að auglýsa hvar hann væri vegna […]. Þessar samkomur hefðu snúist um ýmislegt, t.d. […], sem þeir hefðu verið að spá í að gefa út. Staðfesti ákærði að hann hefði framkvæmt tvær hjónavígslur og vissi að […].
Þá sagði ákærði að stjórnin hefði starfað með verkfræðingum, byggingarverktökum og hönnuðum vegna byggingar fyrir trúfélagið, […], til að fá sem kostnaðaráætlunum vegna hönnunar hennar. Unnar hefðu verið áætlanir og teikningar. Árið 2015 hefði […]-sjóður verið stofnaður og hugmyndin verið að þegar […]. Ákærði sagði að ört vaxandi áhugi hefði verið á félaginu víða um heim og verið að stofna félög víða. Væri […] yfir starfseminni á heimsvísu og taldi hann að á þessum tíma hefði það verið Y.
Ákærði var spurður um ráðgerð stjórnarskipti árið 2019 og kynnt að samkvæmt gögnum væri talið að hann hefði sótt um kennitölu til þjóðskrár fyrir einstaklinga á utangarðsskrá, E, F, H og I, og staðfesti ákærði það. Kvaðst ákærði hafa verið í samskiptum við lögmann á […] sem hefði aðstoðað hann við að finna stjórnarmenn en þau hefðu ætlað að hætta í stjórn. Lítill áhugi hefði verið á þessu. Þau hefðu boðið vitninu L að vera forstöðumaður en hann hafnað því og einnig beðið […] um að finna forstöðumann. Myndi hann ekki hvort hann hefði verið í sambandi við þetta fólk og rætt við það um að það tæki sæti í stjórninni áður en sótt var um kennitölur fyrir það. Þau hefðu vitað af þessu þar sem þau hefðu rætt við […]. Var ákærða kynnt að eina tengingin við […] væri vegna E og sagði ákærði að hann hefði skilið það svo að þau hefðu öll verið á vegum […]. Ákærði kvaðst hafa samið texta tilkynningar sem birt var […] þar sem fram kom að hann væri að hætta. Væri þarna verið að vísa til stjórnar sem hefði átt að taka við en ekkert hefði orðið úr því. Var ákærða kynnt að þá hefði ekki verið búið að tilkynna RSK um nýja stjórn en það hefði verið gert í apríl og engin gögn hefðu komið fram um aðalfund í september 2018 eins og þar væri vísað til. Kvaðst ákærði ekki vita hvort þetta væru réttar upplýsingar. Kvaðst ákærði ekki vita hvers vegna stjórn hefði verið kjörin á aðalfundi þegar gildandi lög félagsins frá því í desember 2015 kváðu á um að stjórn skyldi kosin á stjórnarfundi. Þá var ákærða kynnt að tilkynning um breytingu á stjórn hefði verið móttekin 23. apríl 2019 hjá sýslumanni og 2. apríl 2019 hjá RSK og kæmi þar fram að framangreindir einstaklingar sætu í stjórn. Sagði ákærði annaðhvort hann eða Y hafa skráð og sent tilkynninguna og vissi hann ekki hvers vegna beðið var í fjóra mánuði með að senda hana. Vissi hann ekki hver skrifaði undir f.h. útlendinganna en teldi að hann eða Y hefðu skráð kennitölur þeirra. Myndi hann ekki hvort haldinn hefði verið stjórnarfundur 1. janúar 2019. Vísaði hann á Y varðandi það hvort fyrir hefði legið umboð frá útlendingunum til að skrifa undir. Var ákærða kynnt að samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í […] hefðu þau rætt við I og F og hefði hvorugur þeirra komið til Íslands. Þá hefði komið fram að skilríki þeirra hefðu verið misnotuð. Ákærði kvaðst hafa verið í góðri trú um að þetta hefði verið í lagi.
Ákærði kannaðist við að á þremur árum hefðu runnið inn á bankareikning Z um 84 milljónir króna vegna sóknargjalda og taldi að aðrar greiðslur hefðu ekki runnið inn á þennan bankareikning, sem einungis hann og Y hefðu verið með aðgang að. Hefði hann verið með debetkort vegna reikningsins og líklega með númerið […] og hefði Y einnig verið með debetkort.
Borið var undir ákærða skjal sem hefur að geyma samantekt á innborgunum á reikning Z hjá […] nr. […] á árunum 2017 til og með 2019 ásamt greiningu á ráðstöfun þess fjár á sama tímabili og honum kynnt að þar væri jafnframt vísað til annarra gagna sem samantektin byggðist á. Kom ákærði ekki með neinar tölulegar athugasemdir við það hvernig þessu var ráðstafað. Var ákærða kynnt að í samantektinni væri greint á milli reiðufjár og debetkortanotkunar og að greiddar hefðu verið samtals 46,4 milljónir króna á þessum tíma til Þ ehf. Sagði ákærði að félagið hefði verið notað til að sjá um vörslu fjármuna og ávöxtun þeirra. Lánalínusamningur hefði verið gerður á milli félagsins og Z til að tryggja að þessi peningar næðust alltaf til baka. Þá var ákærða kynnt að millifærslur og reiðufjárúttektir væru 1,7 milljónir króna til Y en um 900.000 krónur til hans. Reiðufjárúttektir hjá gjaldkera og með debetkorti væru tvær milljónir króna sem hann hefði tekið út árið 2017 og 6,4 milljónir króna sem teknar hefðu verið út með debetkorti. Var ákærði spurður í hvað þetta fé hefði farið. Vísaði ákærði til þess sem hann sagði um ráðstöfun fjármunanna í skýrslu sinni hjá lögreglu og hvað varðaði fjármuni sem runnu til Þ til fyrri skýringa.
Var ákærða kynnt að við húsleit hefði fundist óundirrituð fundargerð vegna stjórnarfundar Z sem sagður væri haldinn 10. október 2017, sem væri þremur dögum eftir að ríkið greiddi um 50 milljónir króna til Z, og hefðu hann, Y og D sótt fundinn samkvæmt fundargerð. Var ákærði spurður hvers vegna skjalið væri ekki undirritað og sagði ákærði að fundir hefðu ekki verið formlegir heldur hefði verið rætt um það sem þyrfti að ræða og fundargerðir ritaðar. Teldi hann að fundurinn hefði verið haldinn þennan dag og ákvörðun tekin um það sem greinir í fundargerðinni. Staðfesti ákærði að ákveðið hefði verið að kaupa Þ ehf. og um leið gera lánalínusamning við félagið. Hefði það átt að halda utan um eignir og fjármuni Z. Með þessu hefði verið ætlunin að tryggja að þessir fjármunir væru alltaf í eigu trúfélagsins. Hvað varðaði Æ vísaði ákærði á Y. Hvað varðaði tölvupóst sem Y er talinn hafa sent […] 14. ágúst 2018 í tengslum við stofnun bankareiknings fyrir Æ hjá […] og fylgiskjal þar með „Member Certificate“ fyrir Æ þar sem fram kemur að félagið hafi verið stofnað 23. júlí 2018 vísaði ákærði einnig á Y, en sagði dagsetningu á fundargerð vera rétta. Þá sagði ákærði að félagið A sem væri aðili að samningnum þegar Þ var selt hefði verið í eigu Y.
Ákærði kvaðst kannast við bréf sýslumanns til hans frá 19. febrúar 2019 og svar lögmanns félagsins þar sem spurt var á hvaða lagagrundvelli fyrirspurnirnar væru byggðar. Sagði hann lögmanninn hafa ráðlagt þeim að svara á þennan hátt. Þeir hefðu frétt af […]. Sagði ákærði að C hefði ekki haft samband við hann vegna þeirra bréfa sem sýslumaður sendi honum áður en þetta gerðist. Þeir hefðu ráðið sér lögmann til að kanna lögmæti þess sem sýslumaður var að gera og hefði það endað með því að þeir unnu málið í ráðuneytinu. Síðan hefði tekið við níu mánaða bið áður en hann var gerður að forstöðumanni. Á meðan […] hefðu verið haldnar samkomur og þeir hist og farið […]. Þeir hefðu aldrei fengið nein viðbrögð við þeim upplýsingum sem þeir skiluðu til sýslumanns og aldrei fengið neinar leiðbeiningar um það frá eftirlitsaðila hvernig ætti að reka trúfélag. Félagið hefði eflst eftir að sóknargjöldin voru greidd og þeir sem […] . […]. Þeir hefðu gert tilboð í húsnæði fyrir félagið, sótt um lóð, verið með fræðsluefni á netinu og að vinna í bók, […]. Þeir hefðu þurft að veita sáluhjálp, framkvæmt tvær hjónavígslur, hann hefði skrifað texta fyrir athafnir og fleira. Mikil tími hefði einnig farið í það að […]. Teldi hann að […].
Ákærði Y kvaðst telja að ákæra væri óljós og hann væri ekki enn búinn að átta sig á því hver hin ætluðu brot væru. Voru ákærða kynnt gögn um stofnun og skráningu félagsins frá árunum 2012 og 2013. Sagði hann að aðdragandi þess að sótt var um skráningu félagsins sem trúfélags væri sá að hann hefði kynnst þessari trú erlendis og kynnt hana fyrir C. Í kjölfar þess hefðu þeir farið að kanna hvort hægt væri að kynna þetta á Íslandi og stofna félag og úr hefði orðið umsóknin. Sagði ákærði að þessi trúarbrögð hefðu verið í virkri ástundum þegar hann kynntist þeim. Væru þau iðkuð víða um heim í minni hópum en sjálfur hefði hann kynnst þeim […] og komið að starfsemi móðurkirkju Z í […]. Ákærði kvaðst ekki vita hver hefði samið texta um trúarkenningar o.fl. sem fylgdi umsókninni. Kvaðst hann ekki muna hvers vegna í umsóknargögnum væri lögð áhersla á skyldur er vörðuðu fjármál félagsins, fjárhagsáætlun, bókhald, mánaðarlega fundi o.fl. Sagði ákærði að ásetningur þeirra hefði einungis verið að iðka trú og hefði þetta ekki verið sérstakt atriði fyrir honum. Fjárhagsáætlun hefði verið gerð árlega og rétt bókhald haldið og hefði þetta farið eftir gildandi reglum hverju sinni. Eftir að fyrstu umsókninni var hafnað hefði C tekið saman lista yfir félaga og teldi hann að eitthvað af þessu fólki hefði verið virkt í starfinu. Hann og C hefðu verið að undirbúa starfið og kynna það fyrir væntanlegum meðlimum. Stofnendur hefðu byrjað starfsemina en síðan hefði fólk bæst við og einnig kvarnast úr. Kvaðst ákærði ekki muna hvort hann hefði verið farinn að annast samskipti við stjórnvöld þegar hann sendi ráðuneytinu tölvupóst með frekari upplýsingum 11. október 2012 eftir að umsókn hafði verið hafnað í annað sinn. Á þessum tíma hefðu þeir aðallega verið að móta starfið og marka því farveg. C hefði verið búinn að smala mikið og hefðu það verið um […] sem hefðu lýst yfir áhuga á að skrá sig í félagið og hefði þetta litið mjög vel út framan af.
Ákærða var kynnt útprentun á samskiptum á […] sem aflað var úr tölvu C. Kvaðst ákærði ekki muna hvort […] hefði verið sitt notandanafn á þessum tíma en sagði C líklega hafa verið […]. Kvaðst hann telja að um væri að ræða falsað […]-samtal úr öðru máli, a.m.k. tæki hann með varúð öllum gögnum sem þarna kæmu fram. Var ákærða kynnt að fram hefði komið hjá C að viðmælandi hans hefði verið ákærði og kvaðst ákærði ekki muna eftir þessum samskiptum. Hefðu þeir verið að vinna að trúfélaginu af fullri alvöru og myndi hann ekki hvort þau efnisatriði sem þarna kæmu fram hefðu verið rædd. Þá vissi hann ekki hver „[…]“ væri. C hefði verið skráður formaður í upphafi þar sem hann hefði verið að leiða starfið.
Ákærði kannaðist við undirritun sína undir lög fyrir trúfélagið sem voru samþykkt á fundi í apríl 2013. Kvaðst hann ekki muna hvers vegna ákveðið hefði verið að hafa þetta þannig að einungis væri hægt að breyta lögum á aðalfundi og að aðalfundur væri æðsta vald og kysi stjórn eða hvers vegna skipan fjármála hefði verið ákveðin þannig að löggiltur endurskoðandi utan Z skyldi gera upp bókhald og skila ársreikningi, sem þyrfti að bera undir aðalfund til samþykktar. Þeir hefðu verið með löggiltan endurskoðanda sem sá um bókhald og sendi ársreikning. Vissi hann ekki nafn hans en X hefði séð um samskipti við hann. Staðfesti ákærði að breytingar hefðu orðið á stjórn félagsins í byrjun desember 2013 og D, […], þá komið inn í stjórnina en C farið úr henni og hætt afskiptum af félaginu. Eftir að D kom inn í félagið hefði hún komið að þeim ákvörðunum sem þurfti að bera undir stjórn.
Ákærði sagði þá ekki hafa […]. Kvaðst hann telja að fjölgun meðlima væri til komin vegna þeirrar […] . Gæti hann ekki svarað því hvort loforð um […] . Hann hefði í nóvember 2015 fyrst heyrt af […] og að […]. Þeir hefðu reynt að hafa samskipti við […]. Aldrei hefði verið deilt um það hver væri lögmæt stjórn félagsins. Taldi ákærði ljóst að þessar breytingar hefðu ekki átt að geta gerst nema með þeirra samþykki. […]. Burtséð frá […]. Hefðu þeir verið með rekstrarfélagið og bankareikning félagsins sem sóknargjöldin áttu að fara inn á og hefði því ekki skipt máli hver var forstöðumaður. Þeir hefðu því þurft að takast á við þann vanda sem […] og koma félaginu á réttan kjöl í samræmi við þá hugmyndafræði sem lagt hefði verið af stað með í upphafi; að boða […] trú.
Lögheimili félagsins hefði verið fært í […] í nóvember 2015 en þar hefðu þeir verið með skrifstofuaðstöðu og haft þar þrjú herbergi. Verið gæti að þar hefðu einhverjar trúarsamkomur verið haldnar en aðallega hefðu þeir þar sinnt skrifstofuþættinum. Vitnið kannaðist við undirritun sína undir lagabreytingar hjá félaginu sem mótteknar voru hjá RSK 3. desember 2015 og sagðist telja að það hlyti að hafa verið haldinn fundur 4. nóvember, eins og þar kæmi fram, og verið aðalfundur. Hefði þetta verið gert eftir gildandi lögum og samþykktum. Var ákærða kynnt að með breytingunum hefði stjórnin verið gerð að æðsta valdi og kysi hún stjórn og forstöðumann. Sagði ákærði að þeir hefðu verið að horfa til skipulags annarra safnaða, t.d. þjóðkirkju og kaþólsku kirkjunnar, sem væru með svipað fyrirkomulag. Teldi hann ekki að stjórnin hefði verið orðin einráð eftir þessar breytingar og að eðlilegt væri að stjórn kysi stjórnarmenn. Þá vissi hann ekki hvers vegna kafla um fjármál var breytt á þann veg að ársreikning ætti að kynna á stjórnarfundi en ekki aðalfundi. Löggiltur endurskoðandi hefði séð um bókhaldið.
Ákærði kvaðst ekki vita hvort þáverandi lögmaður félagsins hefði verið meðlimur í félaginu eða tekið þátt í athöfnum. Hann hefði verið ráðinn og honum veitt víðtækt umboð til að vinna fyrir félagið vegna þeirrar stöðu sem komin var upp. Hvað varðaði ársskýrslu vegna ársins 2017 sem móttekin var 4. apríl 2018 og undirrituð var af ákærða var ákærði spurður hvað „óvenjulegir liðir 35.682.528“ stæðu fyrir. Sagði ákærði að mikil óvissa hefði ríkt um það hvernig þeir ættu að færa þetta af því að sóknargjöldin hefðu verið fyrir rúmlega tvö ár. Þeir hefðu verið búnir að færa þetta árið 2016 en ekki átt að gera það. Hefðu þeir þá leitað til endurskoðanda sem hefði gert viðeigandi breytingar og skýrslan verið uppfærð. Gæti hann ekki svarað því hvort það væri rétt að skýrslan væri „núll“ hvað varðaði eignir. Sagði ákærði að reglulegar samkomur sem vísað er til í texta væru samkomur þar sem þeir fáu sem voru í félaginu hefðu verið að hittast og fara yfir hluti tengda félaginu. Hvað varðaði skýrslu vegna ársins 2016 þá hefðu þær 32 samkomur sem þar er vísað til farið fram á heimilum og annars staðar. Félaginu hefði verið haldið í gíslingu af starfsmanni sýslumanns og þeir ekki haft aðgang að meðlimalista. […] sem var með flesta meðlimi og hefði engin góð leið verið til að ná til meðlima. Kvaðst hann ekki vilja greina frá nöfnum þeirra sem mættu en þeir hefðu gert allt sem þeir gátu og auglýst samkomur eftir gildandi lögum og samþykktum. Hvað varðaði upplýsingar sem kæmu fram í ársskýrslu vegna ársins 2017, sem móttekin var af sýslumanni 4. apríl 2018, þá hefðu þær 36 samkomur sem þar eru skráðar verið með svipuðu sniði og áður. Var ákærða kynnt að við rannsókn málsins hefði fundist yfirlit yfir samkomur, […] árið 2018, ásamt dagsetningum og kostnaði. Kvaðst hann sjálfur hafa mætt á einhverjar þeirra en vildi ekki segja hverjir aðrir hefðu verið þar en þeir […], en hópurinn hefði að einhverju leyti verið breytilegur. Á árinu 2018 hefði félagið verið nýbúið að fá greidd sóknargjöld en ekki verið komið í varanlegt húsnæði. […] og þeir hefðu þurft að kynna […] algjörlega frá grunni. Það besta sem hægt var að gera í stöðunni hefði verið að búa til atburð sem var mjög tengdur […] trú og fólk var líklegt til að mæta á. Þá hefðu verið átta aðrar samkomur sem hefðu verið hittingur hjá kjarnameðlimum, auglýstar eftir lögum og samþykktum, en hann myndi þó ekki hvernig það var gert.
Ákærði sagði að […] væri eitt af aðalritum […] og væri það mikilvægt hlutverk félagsins að halda utan um heimildir og gefa út. Bókin hefði komið út árið […] og væri einungis hægt að nálgast hana á […]. Hefði hann sett sig í samband við þann sem gaf hana út og sett fram þá hugmynd að hún yrði endurútgefin. Einnig hefði fundist […] og því hefði verið tilefni til að bæta við kafla. Þeir hefðu ætlað að styrkja útgáfuna og jafnvel gefa öllum meðlimum eintak. Það hefði aldrei komið til þess að þeir styrktu útgáfuna en bókin væri komin út og kæmi fram í formála hennar að hún hefði verið gefin út fyrir hvatningu […]. Ákærði kvaðst hafa vitað af lóðarumsókn sem X hefði lagt fram vegna félagsins. Þá sagði hann að alþjóðleg starfsemi félagsins hefði verið í þróun og að komast af stað og fólk víða um lönd verið áhugasamt um að koma upp söfnuði í sínu heimalandi og hefði félag verið stofnað í […]. Þá hefði stjórn félagsins starfað með verkfræðingum, verktökum og hönnuðum að byggingu húsnæðis, […].
Ákærði sagði að ætlunin hefði verið sú að skipta um stjórn árið 2019 þar sem þeir hefðu […]. Erfitt hefði verið að finna einhvern til að sitja í stjórninni þar sem […]. Hefðu þeir reynt að fá stjórnarmenn inn í félagið í gegnum […]. Þeir hefðu þurft að finna leið til að […] og komast frá starfinu en um leið hefðu þeir viljað tryggja það að upphaflegur tilgangur héldi sér. Þeir hefðu viljað vera meðlimir og taka þátt í starfinu en ætlað að ráða nýjan forstöðumann og hefðu fengið […] til þess. Ekkert hefði orðið af því þar sem þeir hefðu ekki fengið greidd sóknargjöld til að greiða laun. Hefði það átt að vera einhver sem þeir væru vissir um að myndi halda daglegum rekstri félagsins í samræmi við tilgang þess. Stjórnin hefði einungis átt að sjá um að uppfylla lagaleg skilyrði og ekki þurft að skipta miklu fyrir daglegan rekstur og boðun trúarinnar. Ætlunin hefði verið að síðar yrði fundin varanleg stjórn.
Ákærði sagði að verið gæti að hann hefði verið með notendanafnið […] hjá […] og að hann hefði sett inn auglýsingu undir því notandanafni. Kannaðist hann við að hafa ráðið E til að vera stjórnarmaður og greitt henni fyrir 500 dollara. Aðrir stjórnarmenn hefðu einnig verið fundnir í gegnum […]. Sagði ákærði að lögmaður sem einnig kæmi fram á lista frá […] ásamt E hefði verið í samskiptum við hina þrjá einstaklingana sem ætlunin var að tækju sæti í stjórninni. Væri þetta því tæmandi listi frá […] sem lægi fyrir. Þeir hefðu fengið afhent afrit af skilríkjum þeirra frá lögmanninum og yrði hann að ganga út frá því að þetta fólk hefði vitað að það var skráð í stjórnina. Lögmaðurinn hefði komið fram fyrir þeirra hönd og haft milligöngu um alla pappíra. Var ákærða kynnt að við húsleit á heimili hans hefði fundist tilkynning til RSK um breytingu á stjórn á þann veg að E yrði formaður og F og I meðstjórnendur og kvaðst ákærði ekki muna eftir skjalinu og ekki geta tjáð sig um það. Þá var honum kynnt að þá hefði einnig fundist ljósrit af skilríkjum, m.a. vegna I, og kvaðst ákærði hafa fengið þau hjá lögmanninum. Hefði hann verið í samskiptum við E í samræmi við það sem haft væri eftir henni í upplýsingaskýrslu lögreglu þar sem hún m.a. lýsti því að hafa verið í samskiptum við […] í gegnum […]. Hefði hún verið ráðin til að vera meðlimur í stjórn til að uppfylla lögmæt skilyrði. Hefðu stjórn félagsins og forstöðumaður átt að ráða félaginu eftir að ný stjórn tæki við en þessi stjórn hefði aldrei tekið við. Kvaðst ákærði ekki geta sagt nánar frá félaginu […]. Var ákærða kynnt að í samkomulagi við E kæmi fram að ætlunin hefði verið sú að hún segði af sér um leið og Z færi fram á það og kvaðst hann ekki muna hvers vegna samið hefði verið um þetta.
Þá var ákærða kynnt að á árunum 2017 til 2019 hefðu runnið til félagsins um 84 milljónir króna í formi sóknargjalda og kvaðst hann ekki geta dregið þessa tölu í efa. Þeir X hefðu verið með debetkort á reikning Z og aðgang að netbanka. Borið var undir ákærða skjal sem hefur að geyma samantekt á innborgunum á reikning Z hjá […] nr. […], á árunum 2017 til og með 2019 ásamt greiningu á ráðstöfun þess fjár á sama tímabili og honum kynnt að þar komi jafnframt fram tilvísun til annarra gagna sem samantektin byggist á. Kvaðst ákærði hafna þessu skjali algjörlega þar til hann væri búinn að kynna sér hvað lægi að baki því. Var ákærða kynnt að skjalið hefði legið lengi fyrir og sagði ákærði að það hefði ekki legið fyrir honum. Var ákærði spurður um millifærslu sem rann til hans, um 1,7 milljónir króna, og sagði ákærði að hann hefði ekki séð um bókhaldið og treyst endurskoðanda til þess. Hann hefði fengið einhverjar verktakagreiðslur sem voru gefnar upp. Þá hefði verið uppsöfnuð skuld við þá vegna þess sem þeir hefðu greitt fyrir félagið áður en það fékk sóknargjöldin. Hvað varðaði úttekt hans á reiðufé á árinu 2019 að fjárhæð 820.000 krónur vísaði ákærði til ársskýrslu og kvaðst hann gera ráð fyrir að þar væru þessu gerð skil á eðlilegan máta. Þá var ákærða kynnt yfirlit yfir fjármuni sem runnu inn á reikning Þ ehf. og kynnt að 46 milljónir króna hefðu á tímabilinu runnið þangað frá […]. Ákærði kvaðst hafa verið með yfirráð yfir reikningi Þ ehf. og enginn annar en myndi ekki eftir einstökum greiðslum. Sagði ákærði að hann og X hefðu framkvæmt millifærslur af reikningi […] inn á reikning Þ ehf. Var ákærða kynnt fundargerð sem fannst við húsleit hjá X og er fundargerðin dagsett þremur dögum eftir að sóknargjöld voru greidd trúfélaginu, eða 10. október 2017, og sagði ákærði að sá fundur hlyti að hafa verið haldinn þá og eins og fram kæmi í fundargerðinni og þeir viðstaddir sem þar greinir. Ákærði var spurður af hverju Þ ehf. hefði verið falið að sjá um fjármuni trúfélagsins og fjallað væri um lánið um leið. Ákærði sagði þá að tilgangurinn hefði verið að varðveita og ávaxta fjármunina. Fyrst og fremst hefðu þeir verið að safna fé fyrir húsnæði, fyrir kaupverði eða byggingarkostnaði. Vissu þeir ekki hvenær þeir myndu finna húsnæði en þangað til hefðu þeir verið að reyna að ávaxta fjármunina en hefðu einnig þurft að geta náð fénu til baka án þess að greiða arðgreiðslur. Á þessum fundi hefði verið ákveðið að kaupa Þ ehf. og væri Æ félagið sem vísað væri til í fundargerðinni. Var ákærða kynnt að félagið hefði verið stofnað 23. júlí 2018 en fundargerðin dagsett níu mánuðum fyrr, í október. Sagði ákærði að búið hefði verið að ákveða að stofna félag með nafninu Æ en hann myndi ekki hvenær undirbúningur að stofnum þess hófst. Fundargerðin væri rétt að formi og efni og hefði ekki verið útbúin eftir á. Þann 12. október hefði einnig verið opnuð lánalína sem hann hefði undirritað f.h. lántakanda Þ ehf. Ekki hefði verið talin þörf á að ákveða vexti af láninu þar sem um hefði verið að ræða dótturfélag í 100% eigu Z. Það væri aukaumsýsla sem þjónaði engum tilgangi. Sjálfur hefði hann verið framkvæmdastjóri Þ ehf. á þessum tíma. A hefði átt félagið og selt það Z og hann hefði átt A. Þá hefði ekki verið þörf á að vera með tryggingar vegna þessara lánveitinga þar sem um hefði verið að ræða félag í fullri eigu sömu aðila og stýrt af þeim. Kvaðst ákærði telja að salan á hlutabréfum í Þ ehf. hefði farið fram 2. janúar 2018 eins og greinir í samningnum. Þá kannaðist hann við að hafa sent tölvupóst til […] sama dag og teldi hann að það væru réttar upplýsingar sem hann veitti […] um að féð væri hlutafé og rekstrartekjur. Spurður kvaðst ákærði sjálfur ekki túlka það þannig að fé Z væri ekki hlutafé og rekstrartekjur. Þá var ákærði spurður hver væri „owner“ í þessu samhengi og sagði ákærði að gildandi skráning um raunverulegan eiganda væri uppfærð einu sinni á ári. Z væri orðið eigandi að félaginu en raunverulegur eigandi uppfærðist ekki fyrr en um næstu áramót. Var ákærða kynnt að hann hefði sjálfur verið skráður 100% eigandi að Þ ehf. og sagði hann að eigendaskipti hefðu verið búin að eiga sér stað.
Þá var ákærða kynnt að fyrir lægju kvittanir vegna þriggja millifærslna inn á reikning […] í Bretlandi, 50.000 dollarar 2. janúar 2018, 60.000 24. janúar 2018 og 160.000 13. júlí 2018. Ákærði kvaðst kannast við að hafa framkvæmt þessar símgreiðslur til að varðveita fjármuni trúfélagsins. Hefði hann metið það svo að betri ávöxtunartækifæri væru erlendis en órói hefði verið á íslenskum mörkuðum. Tilgangurinn með því að varðveita féð hefði fyrst og fremst verið sá að fjármunirnir yrðu notaðir til að styðja starfsemi félagsins og koma yfir það húsnæði. Kvaðst hann kannast við að hafa lagt inn á reikning sinn hjá […] 93.844 dollara 20. ágúst 2018 og 20. febrúar 2018 tíu þúsund dollara í viðbót. Væri þetta vegna stofnunar og síðar innborgunnar inn á hlutafé í Æ, fyrri greiðslan vegna stofnunar félagsins og innborgunar inn á verðbréfareikning þess félags í framhaldi af því. Æ hefði verið í 100% eigu Þ ehf. og Z á þessum tíma. Hann hefði séð um að stofna Æ og það þyrfti alltaf að skrá meðlim á fyrirtæki og hann hefði verið skráður. Þ ehf. hefði lagt þetta fé inn og þannig eignast hlut í félaginu og verið eftir það eini eigandinn og mætti sjá það í ársreikningi Þ ehf. Það félag hefði ekki verið komið með bankareikning en hefði verið með verðbréfareikning. Eina leiðin fyrir hann til að flytja peninga inn á þennan verðbréfareikning hefði verið að fara í gegnum hans eigin reikning. Var ákærða kynnt að fyrir lægju tveir eins reikningar frá […] utan þess að annar þeirra væri stílaður á B ehf. en hinn á Æ. Var sá síðarnefndi, samkvæmt þeim gögnum sem lögregla aflaði, sendur […] þegar Æ stofnaði reikning þar. Kvaðst ákærði ekki kannast við að hafa sent þennan reikning. Ákveðið hefði verið að Æ ætti að sjá um m.a. netmál en svo hefði því verið breytt í B ehf. en það félag væri í eigu X. Æ hefði ekki verið í virðisaukaskattsskyldri starfsemi.
Var ákærða kynnt að eftir að reikningur Æ hjá […] hefði verið stofnaður hefði verið millifært af reikningi ákærða hjá […] inn á reikning Æ hjá […]. Á yfirliti vegna reiknings ákærða hjá […] komi fram að 24. ágúst 2018 voru greiddir út 10.000 dollarar og 5. september 2019 70.000 dollarar, í báðum tilvikum til […]. Ákærði kvaðst kannast við þessar greiðslur en Þ hefði verið að greiða inn sitt hlutafé í Æ. Það félag væri „LLC“, samlagshlutafélag, og væri þetta því innborgað fé. Hægt væri að draga féð út aftur og væri félagsformið frábrugðið hlutafélagi að því leyti. Hefði þessi ráðstöfun fjármuna á milli landa verið í þágu Z og trúariðkunar hér á landi að því leyti að það hefði átt að varðveita og ávaxta fjármunina. Þegar íslensk félög fjárfestu í Bandaríkjunum væri skattgreiðslum haldið sjálfvirkt eftir. Þeir hefðu því ákveðið að betra væri að hafa bandarískar eignir í bandarísku félagi til að koma í veg fyrir það. Þetta breytti miklu hvað ávöxtun varðaði yfir langan tíma. Spurður hvaða tryggingu Z hefði haft fyrir því að þessir fjármunir yrðu endurgreiddir til félagsins sagði ákærði að það hefði verið eignarhaldið og yfirráð yfir félaginu, Z eigi félagi í gegnum Þ ehf. Ákærði sagði að Z væri komið af orðinu „[…]“ eða […] sögninni „[…]“ sem þýddi […] eða að […]. Væri þetta gott heiti yfir þessa trú þar sem þarna væri í raun […] og flestir textar og sögur sem […]. Væri því hægt að nota […] til að dýpka skilning á annarri trú. Upprunalegu […] væru flestar í ýmsum söfnum og háskólum þar sem þær væru þýddar og varðveittar. Ákærði sagði að hann væri trúaður og þær kennisetningar sem kæmu fram í […] væru hans trú. Ákærði kvaðst hafa verið búsettur í […] á árinu […] og farið árið […] til […] þar sem hann hefði verið í um […] ár í […] og síðan í […] en komið heim um áramótin […] og […]. Á meðan hann bjó […] hefði hann tekið þátt í starfsemi félagsins, eins og að sitja á aðalfundum. Aldrei hefði verið ætlun þeirra að ganga á bak því sem þeir hefðu sagt íslenskum yfirvöldum við stofnun félagsins. Þeir hefðu ekki verið í neinum samskiptum við sýslumann og ekki þekkt þá einstaklinga sem […]. Þeir hefðu fengið veður af þessu í nóvember 2015 og þá reynt að átta sig á því hvað gerðist og […]. Þeir hefðu reynt að ná sambandi við það til að finna lausn á þessari stöðu sem upp var komin. […]. Ákærði sagði þá enga aðkomu hafa haft að […] og engin samvinna hefði verið milli þeirra um þetta. Þeir hefðu ráðið sér lögmann en engar upplýsingar fengið frá starfsmanni sýslumanns. Ákærði sagði að þeir X hefðu rekið […] og verið að […]. Eftir tvö ár í […]. Hefðu þeir […] og gert það af heilum hug. Í […] hefðu þeir verið […]. Fyrirtækið hafði þá eflst talsvert og teldi hann að sumir hefðu þá talið það þjóna sínum málatilbúnaði annars staðar að […]. Hefði virst sem það hefði verið […] sem hefði ekki átt sér stoð í raunveruleikanum og […]. Kvaðst hann telja að þetta skýrði þá tregðu sem hann mætti hjá sýslumanni.
Ákærði sagði að ársskýrslurnar sem þeir hefðu skilað reglulega væri á formi sem kæmi frá sýslumanni sem væri staðlað og öll trúfélög ættu að nota. Í skýrslunum hefði verið tilgreindur fjöldi samkoma. Þeir hefðu aldrei staðið í þeirri meiningu að þeir væru að skila efnislega röngum upplýsingum til sýslumanns og sýslumaður aldrei gert athugasemdir við samkomurnar á árunum 2015 til 2018. Engar fyrirspurnir hefðu borist og engar leiðbeiningar. Hefðu þeir aldrei fengið upplýsingar um það hvaða skilyrði væru fyrir því að samkoma teldist vera samkoma í skilningi laga um trúfélög. Þeir hefðu ekki vitað inn á hvaða ár þeir ættu að færa sóknargjöldin og hefði þetta verið fært í samræmi við ráðleggingar frá endurskoðanda. Endurskoðandinn hefði verið félagi X og ynni hann hjá stóru endurskoðendafyrirtæki og hefði hann ekki viljað setja nafn sitt á þetta vegna óvæginnar umræðu. Þeir hefðu skilað ársreikningi vegna ársins 2017. Endurskoðandinn hefði séð um uppsetningu á bókhaldi og ársreikningum og fleira sem þessu fylgdi. Sýslumaður hefði aldrei óskað eftir því að fá að sjá gögn að baki ársreikningi.
Kvaðst ákærði hafa auglýst […] eins og lög og samþykktir félagsins gerðu ráð fyrir og bæði á heimasíðu og töflu. Kannski hefðu ekki margir séð þessar auglýsingar en þeir hefðu ekki viljað vekja of mikla athygli á þessu og hafa stjórn á þessu að einhverju leyti. Væri ástæða þess […].
Ákærði sagði að þeir hefðu fengið sóknargjöld greidd í október 2017 og þá getað farið að bjóða upp á athafnir og annað, gengið í stjórn kirkjugarða og leitað að nýju húsnæði. Þá hefðu þeir reynt að ná til hins nýja meðlimahóps og reynt að laða fólk að starfseminni til að efla kjarnann. Á árinu 2019 hefði sýslumaður fyrst viðrað hugmyndir um afskráningu félagsins. Félagið væri enn skráð sem trúfélag og seinast þegar hann vissi hefðu meðlimir verið um […] en félagið fengi nú ekki greidd sóknargjöld. Ákærði sagði að […] hefði verið mjög mikilvægur í […] og stór partur af daglegu lífi og mikilvægur í öllum siðum þeirra. Á þessum […] töflum væri að finna elstu […] í heimi sem væri í […]. Væri þetta sterk tenging við […] og kjörið til þess að skapa atburð sem væri líklegur til að laða að fólk til að læra meira um félagið. Sumir af þeim […] sem skráðu sig í félagið hefðu sett sig í samband við þá og þeir sinnt öllum erindum. Rætt hefði verið við vitnið L um að taka að sér forstöðumennsku í félaginu, en hann væri mikill áhugamaður um trúfélög, og […] maður sem virkur var í starfi félagsins hefði haft samband við hann. Þá sagði ákærði að Þ ehf. væri 100% eigandi Æ og Þ ehf. 100% í eigu Z. Rangt væri í ákæruskjali að hann væri eigandi félagsins.
Ákærði sagði að þeir sem […] og hefðu þeir ekki viljað bregðast því. Þeir hefðu fundið […] og heimfært þetta upp á […] sem héti „[…]“. […]. Hefði þeim fundist […] passa vel við þetta. Þannig hefðu þeir viljað sigla félaginu í gegnum þetta og yfir í sinn upprunalega tilgang.
D, […], kvaðst hafa verið meðlimur í Z en hætt í félaginu árið 2019. Vitninu var kynnt að fyrir lægju gögn sem lögð voru fram þegar óskað var eftir því að félagið yrði skráð trúfélag í apríl 2012. Á lista yfir meðlimi sem fylgdi umsókn hefði nafn hennar verið. Kvaðst vitnið […] en síðar hefði hún setið í stjórn félagsins. Hefði þátttaka hennar í félaginu verið sambærileg og þegar hún hefði verið meðlimur í þjóðkirkjunni. Þá var borin undir vitnið tilkynning um breytingu á stjórn sem móttekin var hjá RSK 23. desember 2013 og samkvæmt henni hefði vitnið þá verið skráð í stjórn félagsins en C gengið úr henni. Sagði vitnið að Y hefði þá óskað eftir því að hún kæmi inn í stjórnina. Sagði hún að ákvarðanir sem teknar hefðu verið í stjórn félagsins hefðu verið ræddar á óformlegan hátt en teknar hefðu verið þær ákvarðanir sem þurfti að taka.
Borin var undir vitnið fundargerð vegna aðalfundar 20. desember 2013. Kvaðst vitnið ekki muna hvort hún hefði verið á þessum fundi. Þá vissi hún ekki af hverju aðalfundi 2014 hefði verið frestað eða hvers vegna aðalfundi í maí 2015 hefði verið aflýst einu og hálfu ári áður en hann átti að fara fram. Þá var vitninu kynnt að fyrir lægi óundirrituð fundargerð vegna aðalfundar 4. september 2014 þar sem nafn hennar kæmi fram. Sagði vitnið þá að fundarhaldið hefði verið óformlegt. Hún hefði verið viðstödd þegar X tók við sem forstöðumaður. Jafnvel hefðu málefnin verið rædd […]. Var vitninu kynnt að lögum félagsins hefði verið breytt og lögheimili félagsins fært í […] í desember 2015 og kvaðst vitnið kannast við það. Heimilisfangið hefði verið fært í húsnæði sem var í umráðum ákærðu á þessum tíma og notað fyrir starfsemina sem hefði aðallega verið skrifstofuhald vegna félagsins. Vitnið kvaðst kannast við undirritun sína undir lög og samþykktir félagsins sem voru samþykkt 4. nóvember 2015. Vitnið kvaðst muna eftir þessum fundi en þau hefðu hist og rætt saman. Kvaðst hún ekki vita hver gerði textann að þeim lögum sem var breytt en gerði ráð fyrir að það hefði verið annar hvor ákærðu. Sjálf hefði hún verið með ákveðnar spurningar um tilgang þess að breyta samþykktunum og borið þær fram á fundinum og fengið þau svör sem hún hefði þurft til að geta undirritað. Var vitninu kynnt að breytingarnar hefðu leitt til þess að í stað aðalfundar áður væri stjórn orðin æðsta vald félagsins og kysi einnig stjórn. Sagði vitnið að hún hefði skilið það svo að þessar breytingar hefðu verið gerðar vegna […].
Vitnið kvaðst hafa sóst eftir því að fara úr stjórn félagsins í nóvember eða desember 2015 og rætt það við Y. Þegar hún gekk í stjórnina á sínum tíma hefði það átt að vera til skamms tíma. Að ráðleggingu lögmanns félagsins hefði, vegna […], verið ákveðið að halda stjórninni óbreyttri. Var vitninu kynnt að eyðublað vegna breytinga á stjórn hefði fundist við húsleit […] þar sem fram kæmi að E, F og I hefðu átt að koma inn í stjórnina. Kvaðst hún ekki vita hvaða fólk þetta væri og ekkert hafa verið inni í þessum breytingum sem gera átti í byrjun árs 2019. Hún þekkti undirritun sína á eyðublaðinu. Kvaðst hún hafa spurt Y út í annað eyðublað sem hún undirritaði hvað þetta varðaði og um þessa aðila. Hann hefði sagt henni að þeir hefðu verið fengnir til stjórnarsetu. Vissi hún ekki hvort þetta fólk hefði skrifað sjálft undir eða ekki eða hver hefði skrifað undir skjalið við nöfn þeirra.
Spurð hvort trúariðkun hefði verið í félaginu seinni hluta ársins 2017 til 2019 sagði vitnið að haldið hefði verið […]. Einnig hefði verið gifting á þessu tímabili og skírn […] haustið 2018. Hún hefði verið […] á þessum tíma og bundin og ekki mikið verið að sækja athafnir. Sagði vitnið að hún hefði aldrei flutt sig og […] yfir í söfnuðinn ef þar hefði ekki verið neitt formlegt starf. Hún hefði verið í skamman tíma í félaginu. […] og hefðu þau rætt um það hvort fermingar yrðu haldnar í félaginu. Hefði Y talið að starfsemin yrði þá komin á það stig að ferming yrði í boði. Vitninu var kynnt að í skýrslu hennar hjá lögreglu 7. maí 2019 hefði hún sagt að hún hefði ekki haft hlutverk í stjórn félagsins eða tekið þátt í fundum hefðu þeir verið haldnir. Kvaðst vitnið sjálf vera mjög formleg og telja að stjórnarfundir ættu að vera við fundarborð. Fundirnir hefðu verið óformlegir og hefði hún átt við það. Ljóst væri að hún hefði verið í stjórn og skrifað undir ýmis skjöl. C kvaðst hafa kynnst Y tæpu ári áður en trúfélagið var stofnað. Y hefði verið í […] í […] og frætt hann um þau og hefði vitninu fundist þau vera áhugaverð. Skildi vitnið það svo að starfsemin í […] hefði verið á vegum Y. Væru þessi trúarbrögð […]. Hefði Y stungið upp á því að vitnið yrði forstöðumaður hér heima. Hugmyndafræðin, […] hefði höfðað til vitnisins. Y hefði séð um að rita umsóknir vegna stofnunar félagsins og vitnið ritað undir þær. Sjálfur hefði hann ekki verið […]. Kvaðst hann í raun aldrei hafa verið […] en ekki hefði verið búið að reyna mikið á þetta þegar hann hætti að vera forstöðumaður á árinu 2013. Aðallega hefðu verið ræddar hugmyndir og talað um þetta. Hefði Y væntanlega samið texta um trúarkenningarnar sem fylgdu umsókn en vitnið skrifað undir. Spurður hvort áhersla hefði verið lögð á það að semja fjárhagsáætlun og halda tilskilið bókhald eins og lög félagsins gerðu ráð fyrir sagði vitnið að Y hefði átt að sjá um þetta og hefði þetta ekki komið til umræðu.
Þá var vitninu kynnt framlagt netspjall af […] á tímabilinu febrúar til apríl 2013. Jafnframt var honum kynnt að þátttakendur í því væru […]og […]. Sagði vitnið þá að hann minntist þess að hann og Y hefðu verið í samskiptum á […] og gæti passað að þetta væri á milli þeirra. Kvaðst hann lítið muna eftir þessu en muna að hann hefði verið mjög spenntur fyrir félaginu. Þetta hefði ekki verið grín í hans huga. Hann myndi ekki hvor þeirra sagði hvað í þessu spjalli og ekki eftir að hafa talað um að […] og hann vissi ekki hver „[…]“ væri. „[…]“ í spjallinu væri ekki merki um að þessu hefði verið tekið af léttúð heldur gæti þetta hafa verið taktík í samskiptum þeirra. Vitnið kvaðst ekki minnast þess að hugmyndir hefðu verið uppi um að láta trúfélagið eiga eignir sem þeir notuðu til að fá fram fjárhagslegan ávinning fyrir sig. Þeir hefðu notað húsnæðið í […] í nokkra mánuði til að ræða málefni félagsins og spá í þetta en það húsnæði hefði tengst […]. Vitnið kvaðst ekki muna hvers vegna ákveðið var að aðalfundur hefði æðsta vald og að stjórn yrði undirsett aðalfundi. Y hefði sett þetta upp en vitnið ritað undir. Hann hefði ekki tekið þátt í því að semja lögin frá 2013. Vitnið staðfesti að hafa hætt í stjórn félagsins og D þá komið inn í stjórn þess. Hann hefði hætt vegna persónulegra ástæðna sem ekki tengdust trúfélaginu og síðan hefðu ekki verið frekari samskipti milli hans og Y. Vitnið hefði á árinu 2014 fengið send tvö bréf frá sýslumanni, í […]. Einnig hefði hann verið í samskiptum við RSK þar sem enginn hefði verið kominn í staðinn fyrir hann í stjórnina. Hefði honum verið sagt að þeir yrðu að senda bréfin til hans þar til einhver annar kæmi í hans stað. Aldrei hefði komið til tals þegar hann var í félaginu að […]. Var vitnið spurt um lista yfir meðlimi í félaginu sem sendur var með uppfærðri umsókn og hvort þeir sem þar væru skráðir hefðu verið þátttakendur í starfinu. Sagði vitnið að á þessum tíma hefði aldrei verið fundur þar sem fólk hefði hist. Væntanlega væri þarna um að ræða einstaklinga sem mögulega gætu orðið meðlimir en ekki hefði komið til þess að þeir tækju þátt í starfinu.
K kvaðst hafa frétt af því að fella ætti félagið niður af skrá. […] hefðu verið í félaginu að sögn sýslumanns og hefðu hann og fleiri einstaklingar séð tækifæri til að […]. Fyrst hefðu […]. Hann væri sjálfur […] og markmiðið hefði verið að stunda […]. Það hefði verið […]. Þeir félagsmenn sem það vildu hefðu getað fengið […] og hefði fólk gengið í félagið af því að […]. Einnig hefði fólk getað […] . Þeir hefðu einnig ætlað að stunda trúarstarfsemi þar sem samkvæmt lögum um trúar- og lífsskoðunarfélög þyrfti félag að bjóða upp á athafnir og einhvers konar virka starfsemi. Þeir hefðu ætlað að uppfylla þau skilyrði sem þyrfti til að félagið yrði ekki afskráð.
Snemma um sumarið, þegar ljóst var að þeir […], hefðu þeir farið að undirbúa starfsemina og ákveða reglur og aðra umgjörð utan um það. Hefðu þeir kynnt starfsemina um haustið og miðað þá við 1. desember þar sem sóknargjöld árið eftir væru miðuð við þann tíma. Þeir hefðu opnað heimasíðu og […]-síðu og farið […]. Um […] hefðu skráð sig og hefði það komið þeim á óvart hversu margir gerðu það og að fólk tæki undir þetta. […] og hefði engan þekkt sem stóð að þessu. Teldi vitnið að […] og […] .
Ákærðu hefðu haft sambandi við þá eftir […] og hefðu þeir átt erfitt með að átta sig á því hvað það var sem þeir vildu. Hefðu þeir beðið ákærðu um að senda skrifleg skilaboð til þeirra en ekkert hefði komið út úr því. Þeir hefðu verið nýbúnir að uppgötva tengsl ákærðu við félagið og ekki viljað eiga samskipti við þá. Allt hefði á endanum farið í háaloft og verið í lás fram á árið 2016. Hefðu þeir beðið fjársýsluna að frysta greiðslurnar þangað til í ljós kæmi hver hefði yfirráð yfir félaginu. Sjálfur hefði hann engin afskipti haft af félaginu eftir að í ljós kom að þeir […]. Þeir hefðu verið í samskiptum við sýslumann í tölvupósti og símleiðis til að fá nánari leiðbeiningar og í kjölfar þess að […]. Áður en auglýsingin birtist hefði hann sent fulltrúa sýslumanns bréf og beðið um leiðbeiningar um það hvernig ætti að skrá trú- eða lífsskoðunarfélag. Hefði hann fengið svar við því en svo ekki nennt því. Þessi hugmynd að […] hefði verið lengi í kollinum á honum. Hvað varðaði Z þá hefðu þeir ekki fengið neinar upplýsingar um það hver væri í stjórn en verið sagt að það væri rekstrarfélag um starfsemina. Þeir hefðu séð þarna trúfélag […] og vitað að það hefði verið […]. Sá hefði verið […]. Hefði þeim verið sagt að þeir […] trúfélaginu en ekki rekstrarfélaginu. Þeir hefðu sent sýslumanni yfirlit yfir stjórn sína og tilnefningu forstöðumanns. Enginn hefði átt að hagnast á þessu og hefðu þeir gert ráð fyrir að endurskoðandi myndi hafa prókúru og sjá um greiðslurnar og fengi hann greitt fyrir en ekki aðrir, eins og t.d. stjórn. Þeir hefðu orðið að bjóða upp á athafnir samkvæmt lögum og hefðu þeir því ætlað að bjóða upp á […]. Ekki hefði hvarflað að þeim að þeir sem voru með félagið myndu bregðast svona við þar sem það hefði átt að afskrá félagið. Þeir hefðu lagt í það mikla vinnu að afla […] og talið sig hafa skyldur gagnvart þeim. Heiður þeirra og jafnvel mannorð hefði verið að veði og þeir hefðu því ekki getað gefið eftir þegar ákærðu gáfu sig fram. […].
M kvaðst hafa þýtt […] þýðingin hefði komið út í […]. Y hefði sent honum tölvupóst 11. nóvember 2017 vegna trúfélagsins og viljað taka þátt í kostnaði við að gefa […] út á ný en hún hefði síðast verið gefin út árið […]. Vitnið kvaðst hafa svarað þessu játandi og í kjölfar þess hefðu farið á milli þeirra nokkrir tölvupóstar. Bókin hefði komið út árið […] og í aðfaraorðum hennar kæmi fram að vinna við útgáfuna hefði […]. Engar greiðslur hefðu runnið til vitnisins frá Z eða ákærðu vegna vinnslu bókarinnar. Hann hefði sagt N, framkvæmdastjóra […], frá samskiptum sínum við Y vegna útgáfunnar. Þannig hefði hann „kúplað sig út úr þessu mögulega styrkjamáli“ en hann vissi ekki hvort trúfélagið hefði á endanum borið kostnað af þýðingu bókarinnar.
Vitnið sagði að […] væri […]. Hefðu […] verið grafnar upp úr rústum í […] á […] og þýddar en síðan hefðu fleiri […] fundist og einnig verið þýddar. Hefði þeim verið hampað sem […]. Væru þetta mikil menningarverðmæti. Mikið af skáldverkinu væri frásagnir en ekki lýsingar á trúarbrögðum. Til væru fleiri skrif frá sama tíma á […].
N, […], sagði […] hafa gefið út […] í þýðingu vitnisins M. Engir fjármunir hefðu runnið til […] vegna útgáfunnar frá Z eða ákærðu og slíkt aldrei komið til tals. Einhver hefði rætt það við M að fá styrk frá þeim en honum hefði ekki litist á það.
Lögreglumaður nr. […] kvaðst hafa ritað skýrslu vegna fyrirspurnar alþjóðadeildar til erlendra lögregluyfirvalda og aflað þeirra gagna sem skýrslunni fylgdu. Einnig hefði hann ritað fyrirliggjandi upplýsingaskýrslu þar sem fram kæmu samskipti hans við vitnið E og aflað þeirra gagna sem skýrslunni fylgdu m.a. frá […]. Einnig kvaðst vitnið hafa ritað upplýsingaskýrslu vegna samskipta sinna við vitnið M í gegnum tölvupóst og aflað gagna um […] Z og ritað um það skýrslu.
Vitnið sagði að við rannsókn málsins hefðu tölva og sími X verið skoðuð en alltaf væru skoðuð þau gögn í slíkum tækjum sem hægt væri að skoða. Þau gögn sem lögregla teldi að skiptu máli væru síðan sett inn í málsgögn en ekki öll þau gögn sem fyndust. Kvaðst vitnið ekki minnast þess að lögregla hefði verið í sambandi við lögmann trúfélagsins eða að óskað hefði verið eftir gögnum frá honum. Vitnið kvaðst ekki geta svarað því hvers vegna það hefði fyrst verið í september 2020 sem sendar voru fyrirspurnir til stofnana eins og þjóðskrár, RSK og dómsmálaráðuneytisins vegna málsins. Þá sagði vitnið að allur gangur væri á því hvort saksóknari kallaði eftir gögnum vegna mála sem væru til rannsóknar en leitað væri til hans eftir ráðleggingum vegna rannsókna. Ekki hefði verið talið nauðsynlegt að taka skýrslur af starfsmönnum stjórnvalda. Þá sagði vitnið að engar skýringar hefðu fengist frá ákærðu á […] sem virtist hafa verið algengasta athöfnin hjá Z. X hefði oftast verið viðstaddur en vildi ekki gefa upp hverjir aðrir hefðu verið þar og ekki mikið sem hægt hefði verið að nota til að kanna hverjir hefðu verið þar. Rannsókn málsins byggðist á tilkynningu frá þáverandi peningaþvættisskrifstofu vegna tilkynningar. Væntanlega hefði ákvörðun um rannsókn verið tekin á ákærusviði og teldi vitnið að það hefði verið rannsakað með hliðsjón af 26. og 27. kafla almennra hegningarlaga.
O, sérfræðingur hjá héraðssaksóknara, staðfesti að hafa ritað skýrslu dagsetta 13. febrúar 2019 auk fleiri skýrslna við rannsókn málsins. Vitnið kvaðst gera ráð fyrir að tölva og farsími sem voru haldlögð hefðu verið skoðuð og staðfesti að X hefði gefið upp lykilorð inn í bæði tæki sín. Gerði hann ráð fyrir að öll gögn í tækjunum hefðu verið skoðuð en einungis tekin inn í málið þau gögn sem væru talin vera upplýsandi fyrir málið, óháð því hvað þau kynnu að þýða fyrir niðurstöðu þess. Þá kvaðst vitnið ekki minnast þess að rætt hefði verið við lögmann félagsins við rannsókn málsins eða starfsmenn annarra stjórnvalda. Þá sagði vitnið að við rannsókn mála væri það oft saksóknari sem kallaði eftir gögnum. Tilkynning vegna málsins hefði borist frá peningaþvættisskrifstofu og hefðu væntanlega verið til skoðunar greiðslur út af reikningi Z til ákærðu.
P kvaðst hafa kynnst X í […] og hefðu þeir orðið vinir og verið í miklu sambandi síðan. Vitnið kvaðst búa erlendis og reka sitt eigið fyrirtæki og m.a. sjá um bókhald þess. Kvaðst hann þekkja til trúfélagsins og hafa sótt […]-samkomur þess sumarið 2018. X hefði haft samband við hann þegar eitthvað var í gangi og boðið honum að koma. Þegar hann mætti hefðu samkomurnar verið haldnar á […] en einu sinni á öðrum veitingastað. Þar hefði verið rætt um trúfélagið, m.a. hvernig væri hægt að styrkja það. Ekki hefðu verið iðkaðar neinar trúarathafnir á þessum fundum. Aðallega hefði verið farið með „[…]“ og haldið utan um hópinn og starfið virkjað. Væri hann í dag skráður í félagið en hefði […]. Þá væri hann skoðunarmaður fyrir Þ ehf. og hefði boðið sig fram til þess á fundi eftir að kynnt hefði verið að sá sem sinnti því áður væri hættur. Á þessum tíma hefði hann […] en væri ekki virkur í félaginu í dag.
G kvaðst lengi hafa verið búinn að vera […] á Íslandi. Hann hefði haldið að peningar þeirra sem væru utan trúfélaga færu til Háskólans en komist að því að þeir færu til ríkisins. Hann hefði skráð sig í Z og fundist það vera fyndið trúfélag og hefði það þá einungis verið með […]. Eftir að hann skráði sig hefði hann sent póst á […]. Þeir hefðu ekkert farið að spá í þetta fyrr en eftir að auglýsingin birtist í Lögbirtingablaðinu og hefðu þá þurft að hafa hraðar hendur þar sem það átti að afskrá félagið. Þeir hefðu verið í einhverjum samskiptum við sýslumann varðandi formsatriði og hann verið skipaður forstöðumaður 1. júní 2015.
Ákærðu hefðu síðan haft samband við […]. Margt hefði haft áhrif á það hvaða augum þeir litu […]. Þeir hefðu farið í […]. Þeir hefðu haldið að það hefði einungis verið C sem hefði verið með félagið áður en þeir tóku við því. Hefðu […] og hefði vitnið talið að þeir hefðu tengst ýmsu sem hann taldi vera […]. Ákærðu hefðu hringt í einn úr hópnum og viljað fá hann til að skrifa undir einhverja pappíra en sá skellt á. Síðan hefðu þeir hringt í vitnið og sent honum SMS-skilaboð og hann þá svarað og sagt að hann væri til í að tala við þá en það yrði að vera skriflegt og sent í tölvupósti. Næsta sem gerðist hefði verið að vitnið fékk […]. Þau sem ætluðu að […] sem mynduðust eftir að auglýsingin birtist í Lögbirtingablaðinu og þar af hefðu 6–8 verið aktívir. […]. Ýmsar hugmyndir hefðu verið uppi um það hvað þeir ætluð að gera en þeir endað á þeirri hugmynd að […]. Vissi hann ekki hvort K hefði áður haft samband við sýslumann en það hefði ekki komið honum á óvart þar sem hann hefði áður lýst yfir áhuga á að stofna trúfélag.
Hópurinn […] hefði rætt við sýslumann og lögmann um það hvernig ætti að gera þetta. Þá hefði komið í ljós að trúfélagið væri eitt og rekstrarfélagið annað og hefði það verið þeirra vankunnátta að halda að […]. Þeir hefðu haldið fund og kosið stjórn og hefði fundurinn verið auglýstur á „grúbbunni“ þeirra. Einnig hefðu þeir fengið sérfræðing í […] fræðum til að halda fyrirlestur um efnið. Ætlun þeirra hefði verið að halda fleiri viðburði og þeir upplýst að hægt væri að fá […]. Hefði starfsemin verið hugsuð til þess að ekki væri hægt að afskrá félagið.
Þeir hefðu verið komnir með fjölda fólks inn í félagið sem vildi […]. Hefðu þeir engan áhuga haft á því að vinna með þeim eftir að þeir höfnuðu því að vera í skriflegum samskiptum. Tilgangurinn með […] hefði verið að […]. Þeirra hugmynd hefði verið […]. […].
L kvaðst hafa verið í samskiptum við Y í ársbyrjun 2019 í gegnum tölvupóst. Sjálfur hefði hann fylgst vel með trúfélögum í gegnum tíðina, einnig Z. Fyrst hefði hann séð merki um félagið á árinu 2014 og hefðu skráðir meðlimir þá verið […]. Hann hefði reynt að afla sér upplýsinga um félagið og einungis fengið óljósar upplýsingar seinna um það hvað væri í gangi. Sagði hann þetta hafa minnt sig á það sem hann hefði lesið í […] og hefðu þarna verið nöfn á […]. Kvað hann sér hafa fundist það skrítið að svona fámennt trúfélag væri skráð hér á landi og hefði hann ekki vitað til þess að félagið væri með neina reynslu en hann hefði haldið að það væri skilyrði samkvæmt lögunum. Einnig hefði hann haldið að […] væri ólögmæt. Sjálfur hefði hann skráð sig í félagið þegar […] og farið á einn kynningarfund. Hann hefði sagt sig úr félaginu innan árs þar sem hann hefði þá verið búinn að sjá að þetta væri […]. Þá hefði hann rætt við einstakling sem bjó á landamærum […] og […] í gegnum netið sem hefði beðið hann að taka að sér forstöðumennsku í félaginu. Hefði hann grunað að þessi persóna væri […].
E kvaðst hafa búið á […] þegar atvik gerðust í desember 2018 og fram á árið 2019. Kvaðst hún hafa svarað auglýsingu á […] um stjórnarsetu í evrópsku félagi og verið í samskiptum við þann sem setti inn auglýsinguna og hefði hann haft notandanafnið […]. Umsókn hennar hefði verið samþykkt og hún fengið greidda 500 dollara fyrir og hefði starfið ekki átt að kalla á neitt vinnuframlag af hennar hálfu. Kvaðst hún hafa unnið með fyrirtækjum í um 20 ár og skoða daglega möguleika á starfi. Hún hefði aldrei rætt við […] og ekki hitt hann og vissi ekkert um hann. Þegar árið var að verða liðið hefði hún haft samband við […] í gegnum kerfi […] og spurt hvort hann vildi að hún myndi vinna áfram fyrir félagið en engin svör fengið. Hefði hún því ekkert heyrt frá honum síðan hún var ráðin. Hún hefði einnig, eftir að hún var ráðin, sent honum skilaboð og óskað eftir frekari upplýsingum um félagið en engin svör fengið. Kvaðst hún ekki hafa vitað neitt um félagið og ekki að um trúfélag væri að ræða og aldrei komið til Íslands. Hún hefði sent […] afrit af vegabréfinu sínu og fengið frá honum samning sem hún hefði skrifað undir eftir að hafa gert tvær athugasemdir og sent hann til baka. Þá hefði hún ekki áður séð beiðni um kennitölu fyrir hana og hún kvaðst ekki vita hver X væri sem sótti um kennitöluna. Var vitninu sýndur framangreindur samningur, afrit af vegabréfi hennar og útprentun af spjalli hennar við […] og staðfesti hún að þau gögn stöfuðu frá henni. Vitnið kvaðst ekki áður hafa séð tilkynningu um breytingu á stjórn félagsins og sagði það ekki vera hennar undirritun sem kæmi fram við kennitölu hennar. Þá hefði hún heldur ekki veitt neinum umboð til að rita undir skjalið fyrir sína hönd. Þá væri netfangið […] ekki hennar netfang. Hún þekkti ekki önnur nöfn sem þarna kæmu fram, F og I. Vitnið kvaðst oft áður hafa setið í stjórn félaga og gera þetta enn til að drýgja eftirlaunin en hún væri lögfræðimenntuð.
Q, starfsmaður Sýslumannsins á […], kvaðst hafa sinnt eftirliti með trú- og lífsskoðunarfélögum síðan 1. febrúar 2014, þegar verkefnið var flutt frá innanríkisráðuneytinu til embættis Sýslumannsins á […]. Þá hefði hann kannað hve margir væru skráðir í félögin og hefðu einungis […] vera skráðir í […]. Hefði hann sent tvö bréf til félagsins árið 2014 og hefði það fyrra einnig verið stílað á C, sem hafði verið skráður forstöðumaður félagsins hjá ráðuneytinu, en það seinna á sama heimilisfang en einungis stílað á félagið. Hefði hann þegar þetta var engar upplýsingar haft um félagið og því sent bréfin. C hefði hringt í hann eftir að hafa fengið bréfið og sagt að hann væru hættur í félaginu og vissi ekkert um stöðu þess eða hverjir væru með það. Áskorun vegna félagsins hefði síðar verið birt í Lögbirtingablaðinu og hefði þar að baki búið samtal hans við C sem hefði ekki getað vísað á neinn. Hefði hann þurft að fá upplýsingar en annars verið heimilt að fella félagið af skrá og talið rétt að gera þetta á þennan hátt. Engin starfsemi hefði virst vera hjá félaginu í samræmi við lög um trú- og lífsskoðunarfélög en samkvæmt þeim hefði átt að vera virk ástundum og starfsemi í félaginu. Hann hefði svo fengið símtal frá K eftir að hann sá auglýsinguna. Hefði hann sagst, ásamt fleirum, hafa verið virkur í félaginu en ekki skráður í það og hefðu þeir viljað halda starfsemi þess áfram og sent inn gögn vegna þess sem ekki hefði verið ástæða til að vefengja. Í kjölfarið hefði G verið skráður forstöðumaður félagsins og hefði hann fljótlega komið […]. Teldi vitnið að ekki væri hægt að reka trúfélag […]. Lög félagsins gerðu ekki ráð fyrir að […] og trúfélög snerust um trúariðkun og trúarlíf samkvæmt lögunum og gæti þetta því ekki verið markmið félags. […].
Vitnið staðfesti að trúfélögum bæri að senda árlega skýrslu til sýslumanns á grundvelli 5. gr. laganna um starfsemi sína á næstliðnu ári og jafnframt gera grein fyrir breytingum sem orðið hefðu á þeim atriðum sem upplýsingar bæri að veita um í umsókn um skráningu. Sérstaklega skyldi gera grein fyrir breytingum á félagatali og ráðstöfun fjármuna félags. Þá þyrfti að veita upplýsingar er vörðuðu lög og reglur félagsins sem kynnu að gilda um ráðstöfun fjármuna þess, starfsemi og um reglulegt samkomuhald. Minni félög, með 50 til 200 félaga, skiluðu þessum upplýsingum á eyðublaði en þau stærri skiluðu ársreikningum. Í lögum Z kæmi fram að löggiltur endurskoðandi skyldi árita ársreikning félagsins. Vitnið staðfesti að hafa móttekið skýrslur vegna áranna 2015 til 2018 og að hafa móttekið leiðrétta skýrslu vegna ársins 2017. Á grundvelli þessara skýrslna hefði sér ekki fundist vera mikið um starfsemi í félaginu auk þess sem hann efaðist um að starfsemin hefði verið í […]. Hefði hann farið á þann stað og ekki séð þar neinar merkingar og engin merki um starfsemi trúfélags með […] meðlimi.
Í ársskýrslunni frá 2017 hefðu verið færðar inn á „óvenjulega liði“ 35.682.528 krónur sem væri gjaldaliður og engar skýringar fylgt með. Svona háar fjárhæðir sæjust ekki í þessum lið en þetta hefði ekki leitt til þess að sýslumaður beindi fyrirspurn um þetta til félagsins þó þetta hefði átt að gefa tilefni til slíks. Ekki væri gerð krafa um að þessar skýrslur byggðust á bókhaldi eða skipulögðu utanumhaldi fjármála félagsins. Þá væri sjaldgæft að skilað væri leiðréttingum eins og trúfélagið gerði. Í skýrslunni þyrfti einnig að gera grein fyrir skipun stjórnar og breytingum. Ef aðalfundur samþykkti verulegar lagabreytingar þyrfti að gera grein fyrir þeim sem fyrst. Kvaðst hann hafa sent fyrirspurn til félagsins og spurt þar um samkomuhald og […], móðurkirkju í […] og hvort […]. Hefði fyrirspurnin verði send þar sem margir voru skráðir í félagið, skýrslurnar voru óvenjulegar, töluverð […] og það hefði fengið háar fjárhæðir greiddar í formi sóknargjalda. Eftirlit með trúfélögum fæli það m.a. í sér að skoðað væri hvort verið væri að fara illa með almannafé. Hefði hann talið að það væri tilefni til fyrirspurnar auk þess sem engin merki voru um starfsemi. Sagði vitnið að í kjölfar þess að bréfið var sent hefði borist bréf frá lögmanni félagsins sem hefði talið að sýslumann skorti lagagrundvöll til að setja þessar fyrirspurnir fram. Vitnið kvaðst telja að slík heimild fælist í 5. gr. laganna þar sem sýslumanni væri falið eftirlit með félögunum. Þá sagði vitnið að mjög áköf framkoma lögmanns félagsins hefði einnig orðið til þess að hann sendi bréfið en sér hefði fundist eins og það héngi eitthvað annað á spýtunni en trúariðkun. Fyrirspurnin hefði síðan verið ítrekuð en ekkert svar borist en mál höfðað á hendur ríkinu til innheimtu sóknargjalda. Þriðja bréfið hefði síðan verið sent í ágúst 2019. Í kjölfar þess hefði borist svar frá X ásamt leiðréttum ársreikningi fyrir starfsárið 2017 en félagið hefði ekki áður verið búið að senda ársreikning vegna þess árs eða annarra. Fyrirspurn um meinta móðurkirkju í […] hefði verið send þar sem hennar var getið í umsókn og félagi bæri að gera grein fyrir tengslum sínum við önnur trúfélög, bæði hér á landi og erlendis. Kvaðst vitnið hafa haft samband við bandaríska sendiráðið og sér hefði verið sagt að slakar reglur væru þar um skráningu félaga en ætla mætti að trúfélög skráðu sig vegna skattareglna. Ekkert hefði þó fundist um þetta félag en það þýddi ekki endilega að það væri ekki til. Þá hefðu ekki borist aðrar upplýsingar um samkomur en þær sem fram komu í skýrslunum. Tvö dómsmál hefðu verið rekin og ekki hefði tekist að sýna fram á að þetta væri trúfélag sem uppfyllti skilyrði skráningar. Sóknargjöldum hefði því verið haldið eftir og þau safnast upp á reikningi hjá fjársýslunni. Vitnið kvaðst telja að félagið uppfyllti ekki skilyrði skráningar og að það hefði ekki sýnt fram á starfsemi. Enn hefði ekki verið aflað frekari upplýsinga um félagið en vitnið gerði ráð fyrir að það yrði gert.
Vitnið kvaðst telja að gagnabeiðni hefði borist frá héraðssaksóknara en ekki muna hvenær. Hefði hún eflaust varðað stofngögn og eitthvað af þeim bréfum sem lægju fyrir í málinu. Minntist hann þess ekki að saksóknari hefði fengið gögn áður en rannsókn þessa máls hófst. Þá kvaðst hann hafa haft samband símleiðis við saksóknara í kjölfar þess að […]. Þá sagði vitnið að K hefði hringt í hann eftir að auglýsingin birtist og í kjölfar þess hefðu átt sér stað tölvupóstsamskipti á milli þeirra. Kvaðst hann hafa skorað á K að senda gögn ef hann teldi sig hafa umráð félagsins. Teldi hann að tölvupóstarnir hefðu gengið út á það. Áður en auglýsingin birtist hefði K væntanlega fengið almennar leiðbeiningar um það hvaða skilyrði þurfi að uppfylla fyrir skráningu trúfélags. Vitnið sagði að í samskiptum hans við K hefðu af hans hálfu komið fram rangar upplýsingar en það hefði enga stoð átt í raunveruleikanum að þeir hefðu starfað í félaginu. Komið hefði í ljós að […] og hefði það að óbreyttu á endanum leitt til afskráningar félagsins. Hann hefði síðan fengið bréf þar sem vakin var athygli á rangri skráningu forstöðumanns. Í janúar hefði fallið úrskurður hvað þetta varðaði og skipun G tekin út. Dregist hefði að skrá X sem forstöðumann í staðinn, m.a. vegna sumarleyfis vitnisins, en einnig hefði sér fundist eitthvert kapp vera í þessu sem ekki tengdist trúariðkun. Hann hefði frétt af […]. Í fyrirliggjandi minnisblaði vitnisins til ríkislögmanns 23. október 2018 kynni að vera ónákvæmni í orðalagi hvað þetta varðaði. Kvaðst hann hafa skoðað gögn hjá héraðssaksóknara í maí 2017 en hann hefði óskað eftir að fá aðgang að gögnum sem gætu skipt máli fyrir hann. Hefði hann farið til héraðssaksóknara og fengið að skoða möppu með fáeinum gögnum. Einu gögnin sem hann taldi að gætu skipt máli hefðu verið samskipti á milli Y og C. Trúfélagið hefði ekki verið nefnt á nafn í þessum samskiptum en ráða mætti af gögnunum að það væri annað en trúariðkun sem hefði verið að baki því að sótt var um skráningu trúfélagsins. Áður en X var skráður forstöðumaður hefði þurft að skoða hæfi hans en ekki hefði verið talið annað fært en að skrá hann að úrskurðinum gengnum. Vitnið kvaðst hafa haft áhyggjur af lögmæti félagsins og sent fyrirspurnir vegna þess á árinu 2019. Staðfesti vitnið að níu mánuðir hefðu liðið frá úrskurði ráðuneytisins þangað til X var skipaður forstöðumaður og þeir hefðu síðan fengið sóknargjöldin greidd. Kvaðst hann hafa rætt skipun X, við sýslumann en hann hefði sagt honum að bíða aðeins með þetta, og síðar við settan sýslumann haustið 2017 og hefði þá verið ákveðið að ekki væri annað að gera en að skrá X. Sagði vitnið að ársskýrsla vegna ársins 2016 hefði styrkt sig í þeirri trú að það væri tilefni til athugasemda en þær hefðu ekki verið gerðar og hefði ekki verið brugðist við því sem kom fram í skýrslunni fyrr en árið 2019. Sagði vitnið að klárlega hefði engin starfsemi verið í félaginu þegar G tók við því og það hefði ekkert breyst að öðru leyti en því að meðlimum fjölgaði, en engar athafnir eða samkomur hefðu verið haldnar. Þetta hefði ekki breyst eftir að X tók við félaginu en vitnið kvaðst minnast þess að hafa fengið beiðni um að skipa tvo vígslumenn. Félagið hefði skilað öllum ársskýrslum og leiðréttri skýrslu 31. mars 2019 en fyrirspurnin sem hafði verið send varðaði upprunalegu skýrsluna. Leiðrétta skýrslan hefði verið skoðuð um leið og hún barst og ekki talið að þar hefðu komið fram svör við því sem fyrirspurnin varðaði. Ekki hefði verið kallað eftir ársreikningi vegna ársins 2018 enda ekki skylda til að senda þá. Hefðu honum þótt fjárreiður félagsins einkennilegar. Vitnið kvaðst ekki muna hvenær hann frétti af rannsókn þessa máls og ekki muna eftir að hafa átt samskipti við saksóknara á árunum 2018 og 2019.
Sagði vitnið að það væri ekki í hans verkahring að meta hvort skilyrði um ástundun trúar væru uppfyllt heldur væru umsóknir um skráningu trúfélags lagðar fyrir sérfræðinefnd sem væri ráðgefandi. Engu að síður væri alltaf farið eftir áliti hennar. Hefði hann litið þannig á að með skráningu væri störfum nefndarinnar lokið og eftirlit sýslumanns tæki við. Samkvæmt þessu þyrfti að halda reglulegar samkomur auk þess sem félag væri skyldugt til að framkvæma athafnir væri óskað eftir þeim. Í umsókn skyldi greina frá því hvernig ætlunin væri að standa að þessu. Félagið hefði vantað forstöðumann fram á árið 2017 og hefði enginn kvartað yfir því að það væri ekki starfsemi. Í huga vitnisins væri óljóst hvers vegna fallist hefði verið á skráningu félagsins á sínum tíma en hann teldi að hægt væri að lesa úr gögnum að ákveðin pressa hefði verið á það að skrá félagið. Fyndust honum lýsingar á trúarlífi félagsins vera ósannfærandi og augljóst að félagið hefði lítið sem ekkert starfað. Hefði hann átt mörg samtöl við lögmann félagsins um þau skilyrði sem þyrfti að uppfylla. Leiðbeiningarnar vörðuðu alltaf það að félag þyrfti að vera virkt og starfsemi stöðug, kjarni félagsmanna taka þátt og félagið þyrfti að geta framkvæmt athafnir. Það væri hins vegar ekki hans að meta hvort ákveðnir siðir teldust vera trúarbrögð eða ekki eða gera athugasemdir við það hvernig félagsmenn iðkuðu sína trú. Þegar fyrst hefði verið óskað eftir skráningu félagsins hefði henni verið hafnað en það skráð eftir að frekari upplýsingar bárust. Hefði hann ekki verið með stofngögnin frá ráðuneytinu þegar hann skoðaði mál félagsins fyrst og hafði ekki óskað eftir þeim þegar auglýsingin var birt. Eftir á að hyggja hefði hann mögulega átt að breyta skráningu forstöðumanns strax en hann hefði gert það á endanum eftir að úrskurðurinn hafði gengið. Hefðu skilyrði skráningar ekki verið yfirfarin áður en X var skráður forstöðumaður og sóknargjöldin greidd út. Erfitt væri að fylgjast með því hvort raunveruleg starfsemi væri í trúfélagi og það eina sem hann gerði hefði verið að skoða húsnæðið lauslega. Þá þyrfti einnig að vera forstöðumaður með aðgang að gögnum sem gæti svarað fyrir félagið ætti að kanna skilyrðin. Fjársýslan hefði síðan greitt sóknargjöldin út en hann enga aðkomu haft að því. Erfitt væri fyrir vitnið að svara því hvort þær upplýsingar sem hann hefði móttekið, t.d. um fjölda samkoma, væru sannleikanum samkvæmt. Þá hefði hann engan aðgang haft að fjármálum félagsins. Að lokum hefði hann óskað eftir skýringum. Spurður að hvaða leyti sýslumaður hefði verið blekktur sagði vitnið að félag sem ekki væri starfandi ætti ekki rétt á sóknargjöldum. Það hefði legið í augum uppi hvers vegna […] og það hefði einnig komið fram á vefsíðu félagsins að þeir ætluðu […]. Gerð væri krafa um stöðuga virkni en samkomur gætu farið fram annars staðar en þar sem félag væri skráð og erfitt að vefengja það.
R, fyrrum lögmaður […], kvaðst hafa verið að vinna fyrir félagið að rekstri stjórnsýslumáls og dómsmála. Hann hefði aldrei verið meðlimur í félaginu né heldur tekið þátt í trúariðkun eða trúarstarfsemi hjá félaginu. Hann kannaðist við að hafa fengið umboð, dagsett 17. febrúar 2016, til að starfa fyrir félagið. Hefði hann átt í samskiptum við sýslumann og sent inn lóðarumsókn fyrir félagið en hann kannaðist ekki við að hafa samið texta umsóknarinnar. Sagði vitnið að þeir hefðu þá séð það fyrir að það gæti kallað á lögfræðilegan rökstuðning á síðari stigum. Kvaðst vitnið ekki vita hvers vegna getið hefði verið um það í lóðarumsókn að starfsemi félagsins væri ört vaxandi víða um heim og að yfir alþjóðlegri starfsemi væri „[…]“ og ekki vita hver „[…]“ væri. Þá vissi hann ekki til hvaða byggingarverktaka, verkfræðings og hönnuða væri verið að vísa í umsókninni og ekki búa yfir nánari upplýsingum um […]-sjóð.
Vitnið kvaðst hafa svarað fyrirspurn sýslumanns frá 19. febrúar 2019 til X þar sem fram hefðu verið settar fjórar fyrirspurnir til hans. Þar hefði hann óskað eftir upplýsingum um það á hvaða lagagrundvelli fyrirspurnin byggðist. Kvaðst vitnið kannast við að hafa sent sýslumanni bréf 16. desember 2015. Hann hefði um þetta leyti einnig rætt við starfsmann sýslumanns í síma. Sagði hann að ákærðu hefðu leitað til hans eftir að þeir fengu veður að því að […]. Hefði hann skoðað hvernig það kom til og hefði eftir það talið að ekki hefði búið að baki lögleg málsmeðferð og þá rætt símleiðis við starfsmann sýslumanns og síðan sent þangað erindi. Minntist hann þess ekki að efnisleg svör hefðu borist vegna þess. Fljótlega hefði því verið brugðið á það ráð að senda inn stjórnsýslukæru til að knýja á um að skráning forstöðumanns yrði leiðrétt og í kjölfar þess hefði hann haft samskipti við sýslumann tengd rekstri þess máls. Úrskurður hefði verið kveðinn upp vegna málsins í byrjun árs 2017. Við meðferð málsins hefði starfsmaður sýslumanns lagt fram tölvupóstsamskipti sem hann hefði átt við […] og hefði mátt sjá að hann valdi úr miðjukaflann af þeim samskiptum. Hefði hann sagst hafa eytt þeim þegar óskað var eftir skýringum og teldi vitnið það vera lögbrot. Einnig hefði hann sagt ósatt við meðferð málsins þegar hann kvaðst ekki hafa fengið bréf þegar fyrst var óskað eftir því að X yrði skráður forstöðumaður, en vitnið hefði átt staðfestingu á því að það bréf hefði borist honum. Hefði þetta leitt til þess að efnisþáttur málsins eyðilagðist á stjórnsýslustiginu. Heilt yfir hefði hann ekki fengið mikið af efnislegum svörum við þeim fyrirspurnum sem hann beindi til sýslumanns og væri því varla hægt að tala um að hann hefði verið í samskiptum við hann á meðan hann var að reka málið fyrir félagið. Tvisvar hefði hann fengið upplýsingar um að hann væri með mál til skoðunar vegna trúfélagsins sem skiptu máli í þessu samhengi en þegar hann gekk á starfsmanninn hefði hann sagt það vera misskilning. Var vitninu kynntur sá framburður starfsmannsins að lögmaður félagsins hefði gengið hart fram og hann talið það vera til marks um að eitthvað væri að og sagði vitnið þá að hann hefði fundið snöggan blett á öllu sem stafaði frá sýslumanni. Það hefði blasað við að hann hefði ekki starfað á grundvelli laga. Þær skoðanir hefðu komið fram í stjórnsýslumálinu og í dómsmálunum að skilyrði laga væru ekki uppfyllt fyrir skráningu félagsins og hann því vitað að þetta væri afstaða sýslumanns. Þá kvaðst hann vita að send hefði verið inn ársskýrsla sem síðar var leiðrétt en vissi ekki til þess að annað sem sent hefði verið stjórnvöldum hefði verið rangt. Vitnið kvaðst hafa frétt að Y hefði verið synjað um beiðni hans um að vitnið yrði skipaður verjandi hans við rannsókn málsins. Hefði Y verið sagt að það væri vegna þess að til stæði að taka skýrslu af vitninu en það hefði ekki verið gert. Þá hefði heldur ekki verið óskað eftir upplýsingum eða gögnum frá honum. Lögregla hefði einungis haft samband við hann til að boða hann fyrir dóminn til skýrslugjafar.
IV
Niðurstaða
Samkvæmt ákæru eru ákærðu X og Y ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti en til vara er ákærða Y gefin að sök hlutdeild í fjársvikum ákærða X. Eru brot ákærðu talin varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara hvað ákærða Y varðar við sama lagaákvæði, sbr. 1. mgr. 22. gr. laganna. Hin ákærðu félög eru öll ákærð til upptöku verðmæta samkvæmt VII. kafla A í almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Samkvæmt ákæru eru brotin talin taka til tímabilsins frá áliðnu árinu 2015 þar til fyrri hluta ársins 2019. Við meðferð málsins hefur tvisvar verið fjallað um kröfu ákærðu um frávísun málsins og er ekkert nú fram komið sem gefur dómara tilefni til frávísunar málsins af sjálfsdáðum.
Ákærðu neita sök og hafna upptökukröfum. Er sýknukrafa ákærðu í meginatriðum á því byggð að ósannað sé að þeir hafi framið þau brot sem greinir í ákæru og skilyrði 248. gr. laga nr. 19/1940 séu ekki uppfyllt. Samkvæmt lagaákvæðinu varðar það fangelsi allt að 6 árum ef maður kemur öðrum manni til að hafast eitthvað að eða láta eitthvað ógert með því á ólögmætan hátt að vekja, styrkja eða hagnýta sér ranga eða óljósa hugmynd hans um einhver atvik, og hefur þannig fé af honum eða öðrum. Samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sömu laga skal hver sá maður, sem með liðsinni í orði eða verki, fortölum, hvatningum eða á annan hátt á þátt í því að brot samkvæmt lögum þessum er framið sæta þeirri refsingu sem við brotinu er lögð.
Sönnunarbyrði um sekt ákærðu og atvik sem telja má þeim í óhag hvílir á ákæruvaldinu og metur dómari hverju sinni hvort nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sé fram komin um hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, sbr. 108. og 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Eins og rakið er hér að framan var Z skráð trúfélag á árinu 2013 á grundvelli 2. gr. laga nr. 108/1999 um trú- og lífsskoðunarfélög. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laganna er það skilyrði fyrir skráningu trúfélags að um sé að ræða félag sem leggur stund á átrúnað eða trú. Í 3. mgr. lagaákvæðisins segir enn fremur að það sé skilyrði skráningar trúfélags eða lífsskoðunarfélags að félagið hafi náð fótfestu, starfsemi þess sé virk og stöðug, tilgangur þess stríði ekki gegn lögum, góðu siðferði eða allsherjarreglu og að í félaginu sé kjarni félagsmanna sem taka þátt í starfsemi þess og styðja lífsgildi félagsins í samræmi við kenningar þær sem félagið er stofnað um og eiga til sóknar að gjalda hér á landi samkvæmt lögum um sóknargjöld o.fl. Þá er það skilyrði að félagið sjái um tilteknar athafnir, svo sem útfarir, giftingar, skírnir eða nafngjafir og fermingar eða aðrar hliðstæðar athafnir. Þá er ráðherra heimilt að ákveða með reglugerð lágmarksfjölda í félagi og er hann nú 25 samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 106/2014 um skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Sýslumaður annast skráningu félaganna og hefur tiltekið eftirlit sem rakið er í 5. gr. laganna. Skulu félögin árlega fyrir lok marsmánaðar senda sýslumanni skýrslu um starfsemi sína á næstliðnu ári og jafnframt gera grein fyrir breytingum sem orðið hafa á þeim atriðum sem upplýsingar ber að veita um í umsókn um skráningu. Sérstaklega skal gera grein fyrir breytingum á félagatali og ráðstöfun fjármuna félags. Tilkynna skal sýslumanni þegar í stað um skipun, flutning og starfslok forstöðumanns og um tilnefningu nýs forstöðumanns. Samkvæmt 3. mgr. 2. gr. eru ákvarðanir sýslumanns samkvæmt lögunum kæranlegar til ráðuneytisins.
Ákærðu eru ákærðir fyrir fjársvik með því að hafa í sameiningu frá áliðnu ári 2015, en þó einkum frá október 2017 og fram til fyrri hluta ársins 2019 styrkt og hagnýtt sér þá röngu hugmynd starfsmanna íslenskra stjórnvalda, einkum hjá Sýslumanninum á […] og Fjársýslu ríkisins, að Z uppfyllti skilyrði fyrir skráningu trúfélags samkvæmt lögum nr. 108/1999, þar með að trúfélagið skyldi sem skráð trúfélag eiga hlutdeild í álögðum tekjuskatti og rétt til fjárframlaga úr ríkissjóði samkvæmt lögum nr. 91/1987 um sóknargjöld.
Í ákæru eru blekkingar ákærðu taldar varða það hvort lögð hafi verið stund á átrúnað eða trú í virkri og stöðugri starfsemi, hvort félagið hafi náð fótfestu hér á landi og að í því hafi verið kjarni félagsmanna sem tæki þátt í starfsemi þess og styddi lífsgildi þess í samræmi við kenningar þær sem trúfélagið var stofnað um. Í ákæru er það rakið að ákærðu hafi beitt blekkingum sínum bæði með athöfnum og athafnaleysi, nánar tiltekið með því að láta hjá líða að upplýsa stjórnvöld um að félagið uppfyllti í reynd ekki lagaskilyrði fyrir skráningu, þeir hafi veitt fjárgreiðslu ítrekað móttöku athugasemdalaust þrátt fyrir að eiga ekki lögmæt tilkall til þeirra, X hafi sent röng eða villandi gögn til stjórnvalda, einkum sýslumanns, varðandi málefni trúfélagsins og hann hafi staðið að því að gefa út rangar og villandi yfirlýsingar um málefni félagsins, einkum á heimasíðu þess.
Áður en leyfi er veitt til skráningar trúfélags eða lífsskoðunarfélags skal, samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laganna, leita álits nefndar sem ráðherra skipar. Var leitað álits nefndarinnar áður en Z var skráð trúfélag á árinu 2013 og var félagið talið uppfylla skilyrði fyrir skráningu. Eftirlit með trúfélögum færðist frá innanríkisráðuneytinu til Sýslumannsins á […] 1. febrúar 2014. Samkvæmt 6. gr. laganna getur sýslumaður fellt skráningu trúfélags úr gildi ef skilyrði skráningar eru ekki lengur fyrir hendi eða það vanrækir skyldur sínar samkvæmt lögunum. Samkvæmt lagaákvæðinu skal veita félaginu skriflega viðvörun og setja því frest til að bæta úr því sem áfátt er. Ef ekki er bætt úr því innan frestsins getur sýslumaður ákveðið að fella skráningu félags úr gildi en áður skal hann gefa stjórn félagsins kost á að tjá sig um málið.
Í málsgögnum eru ítarlegar upplýsingar um aðkomu sýslumanns að atburðarásinni og gaf sá starfsmaður sýslumanns sem sinnti eftirliti með trú- og lífsskoðunarfélögum skýrslu við aðalmeðferð málsins. Kom fram í framburði hans að hann efaðist um að félagið hefði átt að fá skráningu sem trúfélag í upphafi og teldi að starfsemi þess hefði ekki verið í samræmi við þau skilyrði sem lögin tiltaka. Hefði þessi afstaða byggst á því hversu fáir meðlimir voru skráðir í félagið og engin starfsemi hefði virst vera hjá félaginu. Hann hefði sent félaginu bréf sem hefði leitt til þess að C hafði samband við hann og sagðist vera hættur sem forstöðumaður félagsins og ekki vita hverjir væru í stjórn félagsins. Af þeirri auglýsingu sem birt var í Lögbirtingablaðinu 20. apríl 2015 verður ekki annað ráðið en að af hálfu sýslumanns hafi verið til skoðunar hvort skilyrði væru til afskráningar félagsins. Í kjölfar birtingar auglýsingarinnar gaf sig fram […] árið 2015 með skipun G sem forstöðumanns. Í ljós kom að […] og taldi starfsmaður sýslumanns fyrir dómi að það væri ekki lögmætur tilgangur með trúfélagi.
Í framangreindum úrskurði innanríkisráðuneytisins frá 12. janúar 2017, þar sem skráning G sem forstöðumanns var felld úr gildi, segir að tilefni sé til að ætla að félagið uppfylli ekki lengur skilyrði þess að vera skráð sem trúfélag. Hafi sýslumanni borið að bregðast við því og afla frekari upplýsinga á grundvelli rannsóknarskyldu sinnar áður en áskorunin var birt í Lögbirtingablaðinu og G skráður forstöðumaður. Jafnframt kemur þar fram að gögn málsins gefi tilefni til þess að sýslumaður kanni sérstaklega hvort trúfélagið uppfylli enn skilyrði þess að vera skráð trúfélag. Auk þeirrar óvissu sem ríki um það hver sé forstöðumaður félagsins og beri ábyrgð á því að farið sé að ákvæðum laga nr. 108/1999 sé óvissa um það hvort félagið uppfylli skilyrði laga til að vera skráð trúfélag og hver komi fram fyrir hönd félagsins, framkvæmir athafnir og taki við sóknargjöldum.
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 91/1987 skulu þjóðkirkjusöfnuðir og skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög í samræmi við lög um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög eiga ákveðna hlutdeild í tekjuskatti álögðum samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt eftir því sem lögin ákveða. Í 2. gr. laganna segir að ríkissjóður skuli 15. hvers mánaðar skila af óskiptum tekjuskatti fjárhæð er renni til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Fjárhæð þessi reiknast þannig að fyrir hvern einstakling sem er 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári greiðist ákveðin upphæð og er fjárhæðin, samkvæmt 2. tölulið 3. gr. laganna, greidd vegna einstaklings, sem tilheyrir skráðu trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi, samkvæmt lögum nr. 108/1999, og greiðist gjaldið til hlutaðeigandi trúfélags eða lífsskoðunarfélags.
Í október 2017 var X skráður forstöðumaður félagsins voru félaginu í kjölfarið greidd sóknargjöld samkvæmt lögum um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987 á tímabilinu október 2017 til janúar 2019, samtals 84.727.320 krónur, vegna áranna 2016 til 2018. Hafði meðlimum í félaginu þá fjölgaði mjög, […]. Fyrir liggur að ákærðu […]. Að öðru leyti var fénu að mestu ráðstafað eins og rakið er í ákæru en af hálfu ákærðu hafa ekki komið fram tölulegar athugasemdir við þær fjárhæðir eða þá ráðstöfun fjármuna sem þar er lýst en sögðu þessar ráðstafanir hafa verið í þágu félagsins.
Þegar X var skráður forstöðumaður félagsins hafði félagið verið án forstöðumanns um níu mánaða skeið og áður undir forstöðu einstaklings sem sagði félagið hafa […]. Af framburði starfsmanns sýslumanns verður ráðið að hann var enn þeirrar skoðunar að félagið uppfyllti ekki skilyrði skráningar um það leyti sem fyrir honum lá að taka afstöðu til þess hvort skilyrði væru til að skrá X sem forstöðumann félagsins eftir að úrskurður ráðuneytisins var kveðin upp 12. janúar 2017. Engu að síður var hann skráður forstöðumaður níu mánuðum síðar, eftir að starfsmaðurinn, samkvæmt framburði hans, hafði á þessu tímabili ráðfært sig við tvo starfandi sýslumenn á embættinu hvað þetta varðaði.
Þá bera gögnin með sér að eftir þetta hafi enn verið til skoðunar af hálfu starfsmanns sýslumanns hvort félagið uppfyllti skilyrðin og loks hafi, árið 2019, verið sent bréf til félagsins þar sem óskað hafi verið svara, m.a. um húsnæði félagsins, tengsl við meinta móðurkirkju í […] og samkomur félagsins. Bar starfsmaður sýslumanns um að hann hefði áður leitað eftir upplýsingum frá bandaríska sendiráðinu um hugsanlega starfsemi Z í […] og gert lauslega skoðun á húsnæðinu að […] og ekki talið sig hafa séð þar nein merki um trúfélagið. Þá sagði hann að eftir að X tók við félaginu hefði lítil sem engin starfsemi verið þar og þær ársskýrslur sem bárust honum vegna ársins 2016 og síðar hefðu styrkt hann í þeirri trú.
Einnig bar fyrrum lögmaður félagsins um að hafa, á því tímabili sem ákæra tekur til, fengið upplýsingar um það frá starfsmanni sýslumanns að málefni félagsins væru í skoðun en þegar hann gekk eftir nánari upplýsingum var það borið til baka. Þá bar hann og starfsmaður sýslumanns um að af hálfu ríkisins hefði í tveimur dómsmálum sem voru í gangi á þessum tíma verið á því byggt að félagið uppfyllti ekki skilyrði fyrir skráningu.
Ákærðu skiluðu inn ársskýrslum samkvæmt 5. gr. laga nr. 108/1999 vegna þess tímabils sem ákæra tekur til, fyrst árið 2016 vegna ársins 2015, og notuðu þá eyðublað frá sýslumanni sem ætlað var í því skyni. Voru þær upplýsingar sem þar komu fram almennt ekki studdar frekari gögnum. Skýrslurnar voru nokkuð á sama veg í gegnum tímabilið að því leyti að tilteknar voru samkomur almennt eða tiltekinn fjöldi og að einhverju leyti gefnar upplýsingar um fjármál félagsins. Engar nánari skýringar voru gefnar á því hvers eðlis samkomurnar væru og var ekki krafist frekari skýringa hvað þetta varðaði af hálfu sýslumanns. Fyrir liggur að breytingar á stjórn félagsins bárust ekki til sýslumanns jafnóðum og þær voru gerðar og sýslumanni voru gefnar litlar upplýsingar um starfsemi félagsins og trúariðkun. Samkvæmt lögum nr. 108/1999 skal sýslumaður veita forstöðumanni trúfélags skriflega viðvörun vanræki hann skyldur sem á honum hvíla á grundvelli laganna.
Þá verður af gögnum málsins og framburði ákærðu ráðið að nokkur óreiða var á skjalagerð og vörslum skjala hjá félaginu og formfesta lítil í starfsemi þess. Takmörkuð rannsókn fór fram á starfsemi félagsins á þeim tíma sem ákæra tekur til og að mestu við framburð ákærðu að styðjast hvað það varðar. Framburður beggja ákærðu var um margt óskýr og báru þeir oft fyrir sig að þeir myndu ekki eftir atvikum og gáfu litlar upplýsingar um starfsemina. Fram kom að helstu samkomur félagsins á þessu tímabili hefðu verið […], sem ákærðu töldu samrýmast trúarkenningu sem starfsemin byggðist á, en lítið um aðra starfsemi, t.d. einungis tvær hjónavígslur og ein skírn. Báru ákærðu fyrir sig að […] hefðu haft mikil áhrif á möguleika þess á að halda uppi starfsemi. Er vafi uppi um það hvort um sé að ræða samkomur og starfsemi í skilningi laga nr. 108/1999 og þar með hvort skilyrðum laganna hafi verið fullnægt.
Með hliðsjón af því sem rakið hefur verið verður að telja að þau stjórnvöld sem höfðu eftirlit með starfsemi trúfélaga á þeim tíma sem ákæra tekur til og þegar sóknargjöldin voru greidd út hafi talið ástæðu til að skoða það hvort trúfélagið uppfyllti skilyrði skráningar samkvæmt lögum nr. 108/1999. Fæst ekki séð að ákærðu hafi blekkt starfsmenn fjársýslunnar með háttsemi sinni en ljóst er, eins og rakið er hér að framan, að greiðsla hlutdeildar í tekjuskatti til skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga er ekki háð skilyrðum sem eru á valdi fjársýslunnar að meta eða endurskoða. Á þetta jafnframt við um aðrar stofnanir ríkisins utan sýslumanns, líkt og ríkisskattstjóra. Þá hélt fjársýslan að sér höndum hvað varðaði greiðslu sóknargjalda þegar í ljós kom að […]. Síðar voru greiðslur til félagsins stöðvaðar og bréf send til félagsins á árinu 2019 þar sem sýslumaður óskaði eftir frekari upplýsingum um starfsemina. Er frekari athugun á starfseminni enn sögð vera líkleg samkvæmt framburði starfsmanns sýslumanns fyrir dómi. Greip stjórnvaldið þannig fyrst til aðgerða eftir að þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í ákæru höfðu verið greiddar út og þegar það tímabil sem ákæruefnið er talið taka til var að renna út. Á sama tíma og skömmu áður en sóknargjöldin voru greidd út var ríkið bæði í dómsmáli og stjórnsýslumáli að halda uppi vörnum byggðum á því að félagið uppfyllti ekki skilyrði skráningar.
Af hálfu ákæruvaldsins er á því byggt að upplýsingarnar hafi verið rangar eða þeim leynt og þannig hafi ákærðu beitt blekkingum og komið á framfæri ósönnum yfirlýsingum. Með því hafi ákærðu styrkt og hagnýtt sér ranga hugmynd stjórnvalda um starfsemi félagsins. Í fjársvikum felst að tilteknum aðferðum er beitt til að fá þolanda blekkinga til ráðstafana til að hafa áhrif á eða nota sér huglæga afstöðu hans. Almennt hefur verið talið að vafi þess sem blekking beinist að um réttmæti yfirlýsinga hins brotlega skipti ekki máli, þegar kemur að því að meta hvort skilyrði 248. gr. laga nr. 19/1940 eru uppfyllt, svo framarlega sem hann byggir ráðstafanir sínar á villunni. Þá er skilyrðum fjársvikaábyrgðar ekki fullnægt ef villu skortir hjá brotaþola. Vafi um að félagið uppfylli skilyrði skráningar felur ekki sjálfkrafa í að viðkomandi efist um réttmæti yfirlýsinga. Er hér um að ræða yfirlýsingar og athafnaleysi sem beint er að eða beina ber að sýslumanni sem eftirlitsaðila með trú- og lífsskoðunarfélögum. Hefur hann það hlutverk að meta hvort skilyrði laganna séu uppfyllt hvað varðar einstök félög sem skráð hafa verið og eru það þau atriði sem blekkingar ákærðu eru taldar hafa beinst að. Eru skilyrðin að hluta til matskennd. Þá ber sýslumanni við töku stjórnvaldsákvarðana og fara að ákvæðum stjórnsýslulaga m.a. um rannsóknarreglu. Með hliðsjón af því sem að framan er rakið verður ekki talið að starfsmaður sýslumanns hafi verið í vafa um raunverulegar aðstæður í félaginu heldur verði fremur að jafna aðstæðum til þess að hann hafi haft vitneskju um það hvernig málum var þar háttað. Hafi því ekki verið um að ræða villu viðkomandi um að starfsemin uppfyllti þá skilyrði laganna heldur þvert á móti og taldi hann að þau gögn sem bárust frá ákærðu hefðu styrkt þá skoðun hans. Einnig skiptir máli að fyrir lágu tilmæli æðra stjórnvalds um að taka til skoðunar hvort skilyrðin væru uppfyllt og bent á tiltekin atriði í því samhengi.
Verður ekki í máli þessu lagt mat á það hvort félagið uppfylli skilyrði skráningar eða hafi gert það áður en þau atvik gerðust sem ákæra tekur til. Samkvæmt því sem rakið hefur verið er verulegur vafi á því hvort ákærðu hafi með háttsemi sinni styrkt og hagnýtt ranga hugmynd starfsmanna stjórnvalda um að félagið uppfyllti skilyrðin. Þannig virðist afstaða stjórnvalda ekki hafa breyst og skráning félagsins sem trúfélags ráðið því að félaginu voru greidd sóknargjöld burtséð frá vitneskju um stöðu félagsins. Þann vafa sem uppi eru um það hvort skilyrði 248. gr. laga nr. 19/1940 séu uppfyllt ber að skýra ákærðu í hag. Telst því ósannað að þær upplýsingar sem ákærðu sendu, og eftir atvikum athafnaleysi þeirra, haft styrkt villu stjórnvaldsins og að sú villa hafi verið ákvörðunarástæða þess sem leitt hafi til greiðslu sóknargjalda til félagsins. Þegar af þeirri ástæðu, og með vísan til 108. og 109. gr. laga nr. 88/2008, eru ekki efni til annars en að sýkna ákærðu af þeirri háttsemi sem greinir í I. kafla A-hluta í ákæru. Með sömu rökum er Y einnig sýknaður af varakröfu ákæruvaldsins um hlutdeild í fjársvikum.
Í B-hluta I. kafla ákærunnar eru ákærðu ákærðir fyrir peningaþvætti, sbr. 264. gr. almennra hegningarlaga, vegna fjármuna sem ákærðu eru taldir hafa aflað með fjársvikabroti ákærðu sem lýst er í A-hluta I. kafla. Í ljósi framangreindar niðurstöðu um að sýkna ákærðu af fjársvikunum verða þeir jafnframt sýknaðir af ákæru um peningaþvætti.
Jafnframt er hafnað þeim upptökukröfum sem settar eru fram á hendur félögunum Z, Þ ehf. og bandaríska félaginu Æ í III. kafla á kæru.
V
Með vísan til framangreindrar niðurstöðu greiðast málsvarnarlaun skipaðra verjenda ákærðu úr ríkissjóði og eru þau ákveðin eins og í dómsorði greinir. Eru málsvarnarlaun ákveðin á grundvelli leiðbeinandi reglna dómstólasýslunnar nr. 1/2022 um málsvarnarlaun eða þóknun til verjenda og þóknun til réttargæslumanna og áðurgildandi reglna um sama efni. Við ákvörðun málsvarnarlauna hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts og umfangs málsins og tímaskýrslur verjenda hafðar til hliðsjónar. Hvað varðar skipaðan verjanda ákærða X er jafnframt litið til þess að hann var einnig skipaður verjandi Z, og hvað varðar skipaðan verjanda ákærða Y þá var hann jafnframt skipaður verjandi Þ ehf. og bandaríska félagsins Æ. Ekki leiddi annan sakarkostnað af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Finnur Vilhjálmsson saksóknari.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X, er sýkn af öllum kröfum ákæruvaldsins.
Ákærði, Y, er sýkn af öllum kröfum ákæruvaldsins.
Upptökukröfum á hendur Z, Þ ehf. og bandaríska félaginu Æ er hafnað.
Allur sakarkostnaður málsins greiðist úr ríkissjóði þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða X, Einars Odds Sigurðssonar lögmanns, 12.000.000 króna, og skipaðs verjanda ákærða Y, Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns, 12.000.000 króna.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir (sign)