Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga.

1. gr.

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra annast skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga og fer að öðru leyti með verkefni sem sýslumanni eru falin í lögum nr. 108/1999, um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.

2. gr.

Lágmarksfjöldi félagsmanna til þess að heimilt sé að skrá trúfélag eða lífsskoðunarfélag er 25.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 2. gr., 4. mgr. 3. gr. og 10. gr. laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, með síðari breytingum, sbr. 19. gr. laga nr. 145/2013, öðlast gildi 1. febrúar 2014.