Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-56/2019:

Ákæruvaldið

(Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Daníel Arnari Guðjónssyni

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Játningarmál. Reynslulausn. Skilorðsrof. Upptaka. Vörslur.

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa ítrekað haft ávana- og fíkniefni í vörslum sínum, að hluta til í sölu- og dreifingarskyni. Með brotunum rauf ákærði skilyrði reynslulausnar sem dæmd var upp og honum gerð refsing í einu lagi. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 14 mánuði.

Mál þetta, sem dómtekið var 29. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. janúar 2019, á hendur Daníel Arnari Guðjónssyni, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir eftirgreind fíkniefnalagabrot, með því að hafa:

  1. Þriðjudaginn 14. febrúar 2017 í Reykjavík haft í vörslum sínum 131,04 g af maríjúana sem lögregla fann við leit á honum við veitingastaðinn Viethouse að Hraunbergi 4 og lagði hald á.
  2. Fimmtudaginn 23. mars 2017 í Reykjavík haft í vörslum sínum 116,65 g af maríjúana, 0,66 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 9 ml af hassolíu sem lögregla fann við leit á dvalarstað hans að [...] og lagði hald á.
  3. Fimmtudaginn 20. apríl 2017 í Reykjavík haft í vörslum sínum 9,59 g af maríjúana sem lögregla fann við leit á dvalarstað hans að [...] og lagði hald á.
  4. Miðvikudaginn 12. júlí 2017 í Reykjavík haft í vörslum sínum 0,65 g af kókaíni og 31,22 g af maríjúana sem lögregla fann við leit á dvalarstað hans að [...] og lagði hald á.
  5. Föstudaginn 22. desember 2017 í Reykjavík haft í vörslum sínum 9,42 g af ecstasy, 0,52 g af kókaíni, 7,54 g af maríjúana og 1,19 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögregla fann við leit á honum við veitingastaðinn Viethouse og lagði hald á.
  6. Miðvikudaginn 31. janúar 2018 í Reykjavík haft í vörslum sínum 55,11 g af maríjúana sem lögregla fann við leit á honum á lögreglustöðinni við Hverfisgötu og lagði hald á.
  7. Fimmtudaginn   29.   mars   2018   í   Reykjavík,   rétt   við   veitinga-   og skemmtistaðinn Moes bar við Jafnasel, haft í vörslum sínum 20,87 g af amfetamíni og 0,97 g af maríjúana sem ákærði faldi í lögreglubifreið en lögregla fann skömmu síðar og lagði hald á.
  8. Föstudaginn 30. mars 2018 í Reykjavík haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, 60,89 g af maríjúana og 2,18 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á ákærða rétt við veitingastaðinn Viethouse í Hraunbergi.
  9. Þriðjudaginn 3. apríl 2018 í Reykjavík haft í vörslum sínum 3,07 g af maríjúana sem lögregla fann við leit á ákærða í kjölfar handtöku hans við Lóuhóla skammt frá veitingastaðnum Búálfurinn.
  10. Miðvikudaginn 22. ágúst 2018 í Reykjavík haft í vörslum sínum 0,85 g af maríjúana sem lögregla fann við leit á ákærða rétt við Æsufell 2 og lagði hald á.
  11. Sunnudaginn 9. september í Reykjavík haft í vörslum sínum 3,69 g af maríjúana sem lögregla fann við leit á dvalarstað hans að [...] og lagði hald á.

    Teljast öll brot í framangreindum liðum varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

    Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og að framangreind fíkniefni sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 23/2001.

    Verjandi   ákærða   krefst   vægustu   refsingar   sem   lög   leyfa   og   hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í [...] og er í máli þessu sakfelldur fyrir að hafa ítrekað gerst   sekur   um   vörslur   ávana-   og   fíkniefna,   samkvæmt   framangreindum   11 ákæruliðum, sbr. og lög nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 25. janúar 2019, á ákærði langan sakaferil að baki sem nær allt aftur til ársins 2002 og hefur hann margsinnis verið dæmdur til fangelsisrefsingar, meðal annars fyrir vörslur ávana- og fíkniefna.

    Hinn 7. júní 2016 var ákærða veitt reynslulausn í tvö ár á 375 daga eftirstöðvum fangelsisrefsingar samkvæmt sjö dómum Héraðsdóms Reykjavíkur, upp kveðnum 11. janúar 2016, 1. október 2015, 12. nóvember 2014, 30. janúar 2014, 7. nóvember 2013, 21. maí 2012 og 20. desember 2011. Með brotum þeim sem ákærði er sakfelldur fyrir samkvæmt ákæruliðum 1-9 í þessu máli hefur hann rofið skilorð reynslulausnarinnar sem honum var veitt og verður hún því dæmd upp og refsing ákærða ákveðin í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði hefur svo sem fyrr greinir játað skýlaust þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og verður það virt honum til málsbóta.

    Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði. Að sakaferli ákærða virtum þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

    Með vísan til lagaákvæða í ákæru skal ákærði sæta upptöku til ríkissjóðs á 420,62 g af maríjúana, 1,85 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 23,05 g af amfetamíni, 9 ml af hassolíu, 1,17 g af kókaíni og 9,42 g af ecstacy, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

    Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

    Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar lögmanns, 126.480 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

    Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi fyrir hönd Sigurðar Péturs Ólafssonar, aðstoðarsaksóknara.

    Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Daníel Arnar Guðjónsson, sæti fangelsi í 14 mánuði.

Ákærði sæti upptöku á 420,62 g af maríjúana, 1,85 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 23,05 g af amfetamíni, 9 ml af hassolíu, 1,17 g af kókaíni og 9,42 g af ecstacy.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar lögmanns, 126.480 krónur.

Þórhildur Líndal