Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-189/2019:

Ákæruvaldið

(Sonja H. Berndsen saksóknarfulltrúi)

gegn

X

(Guðmundur St. Ragnarsson hdl)

Skilorðsrof. Skjalafals. Vopnalagabrot.

Ákærða var sakfelld fyrir ýmis brot.

X

(Guðmundur St. Ragnarsson hdl.) Mál þetta, sem dómtekið var 23. þessa mánaðar, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. mars 2019, á hendur X, kt. [...], [...], [...] „fyrir eftirtalin brot:

  1. Vopnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 1. mars 2017 haft í vörslum sínum, á heimili sínu að [...], eftirtalin vopn:
  2. Spánarsverð, blaðlengd 70 cm (munanr. 43955)
  3. Spánarsverð, blaðlengd 65 cm (munanr. 43955)
  4. Spánarsverð, blaðlengd 47 cm (munanr. 43955)
  5. Spánarsverð, blaðlengd 27 cm (munanr. 43955)
  6. Hníf með svörtu skefti í hulstri, blaðlengd 16,5 cm (munanr. 439456)
  7. Hníf með svörtu skefti af tegundinni Muela, blaðlengd 14 cm (munanr. 439456)
  8. Hníf með járnskefti í hulstri, blaðlengd 15 cm (munanr. 439456)
  9. Hníf í skinnhulstri, blaðlengd 16,5 cm (munanr. 439456)
  10. Hníf í hulstri af tegundinni Hibben, blaðlengd 28 cm (munanr. 439456)
  11. Tvö stykki af stálhnífum í hulstri, blaðlengdir 14 cm (munanr. 439456)
  12. Hníf með beinskefti í hulstri, blaðlengd 14,5 cm (munanr. 439456)
  13. Hníf með plastskefti í camo hulstri, blaðlengd 20 cm (munanr. 439456)
  14. Hníf með beinskefti, blaðlengd 16,5 cm (munanr. 439456)
  15. Þrjú stykki af kasthnífum í svörtu hulstri (munanr. 439458)
  16. Kasthníf úr stáli (munanr. 439458)
  17. Stunguvopn með svörtu handfangi (munanr. 439458)
  18. Stunguvopn í svörtu hulstri af gerðinni Smith & Wesson (munanr. 439458)
  19. Stunguvopn af gerðinni Honshu (munanr. 439458)
  20. Stunguvopn úr stáli af gerðinni Hibben (munanr. 439458)
  21. Stunguvopn af gerðinni Rui (munanr. 439458)
  22. Stunguvopn í leðurhulstri (munanr. 439458)
  23. Sambrjótanlegt svart stunguvopn, „butterfly“ fjaðurhníf (munanr. 439458)
  24. Fjögur stykki af stunguvopnum, „butterfly“ fjaðurhnífum (munanr. 439458)
  25. Svart hnúajárn (munanr. 439460)
  26. Silfurlitaða trékylfu (munarnr. 439461)
  27. Svarta hafnarboltakylfu (munarnr. 439461)
  28. Svarta kylfu með þyngdum kólfi á endanum (munarnr. 439461)
  29. Raflostbyssu af gerðinni TW-10 (munanr. 439462)
  30. Tvö stykki af piparúðabrúsum (munanr. 439465) Telst þetta varða við a-, b-, c-, d- og e- lið 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.
  31. Fíkniefnalagabrot, með því að hafa, á þeim tíma sem greint er frá í 1 ákærulið, haft í vörslum sínum 0,15 g af amfetamíni og 0,07 g af tóbaksblönduðu maríhúana, sem fannst við leit lögreglu á heimili ákærðu að [...].

    Telst þetta varða við 2., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

  32. Umferðar- og vopnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 23. mars 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda, undir áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 35 ng/ml og vínandamagn 1,12‰) um Breiðholtsbraut í Reykjavík, uns lögreglan stöðvaði aksturinn og að hafa í umrætt skipti haft í vörslum sínum piparúða sem lögreglan fann við leit í tösku ákærðu.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 4. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

  33. Umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 17. maí 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda um [...], uns lögreglan stöðvaði aksturinn. Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  34. Umferðarlagabrot og skjalafals, með því að hafa mánudaginn 25. september 2017 í blekkingarskyni sett skráningarnúmerið [...], sem tilheyrði fellihýsi af gerðinni Viking, á bifreið af gerðinni Dodge RAM, sem bera átti skráningarmerkið [...] ekið henni þannig á röngum skráningarmerkjum, án gildra ökuréttinda og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 185 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 0,6 ng/ml, í þvagi mældist amfetamín, MDMA og tetrahýdrókannabínólsýra) um Akrafjallsveg uns lögreglan stöðvaði aksturinn fyrir utan Olís við Esjubraut á Akranesi, auk þess að hafa ekið bifreiðinni umrætt sinn án lögboðinnar vátryggingar og án þess ganga frá farmi þannig að hann félli ekki af ökutækinu, en tréplata sem var á palli ökutækisins sem ákærða ók umrætt skipti lenti framan á bifreiðinni [...] við bæinn [...] á Akrafjallsvegi.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., 3. mgr. 73. gr. og 1. mgr. 93. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. reglugerð nr. 671/2008 um hleðslu, frágang og merkinu farms með áorðnum breytingum og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  35. Umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 4. október 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda, með 95 km hraða á klukkustund um Hvalfjarðargöng til norðurs, þar sem leyfður hámarkshraði var 70 km á klukkustund.

    Telst þetta varða við 2., sbr. 4. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  36. Umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 20. október 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda, með 78 km hraða á klukkustund um Hvalfjarðargöng til norðurs, þar sem leyfður hámarkshraði var 70 km á klukkustund.

    Telst þetta varða við 2., sbr. 4. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  37. Umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 25. október 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda, undir áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 0,66 ‰ og amfetamín 340 ng/ml) um Höfðabakka til Suðurs, gegn biðskyldu við Stekkjarbakka, þar sem ákærða beygði inn [...], án þess að virða biðskyldu þrátt fyrir að umferð hafi verið um gatnamótin umrætt sinn, uns lögreglan stöðvaði aksturinn fyrir framan hús númer [...] við [...], auk þess að hafa í umrætt skipti ekið bifreiðinni án lögboðinnar vátryggingar og að hafa notað farsíma án handfrjáls búnaðar við aksturinn.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 5. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 47. gr. a., 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 93. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  38. Umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 1. desember 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda, með 109 km hraða á klukkustund um Vesturlandsveg við Esjuna, þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km á klukkustund.

    Telst þetta varða við 2. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  39. Umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 2. desember 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda, undir áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 185 ng/ml, metamfetamín 20 ng/ml og vínandamagn 0,61‰, í þvagi mældist amfetamín, metamfetamín og tetrahýdrókannabínólsýra) um Vesturlandsveg við Esjumela.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  40. Umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 5. ágúst 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 665 ng/ml, í þvagi mældist amfetamín, metamfetamín og metýlfenídat) norður Vesturlandsveg við [...] í Hvalfjarðarsveit. Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  41. Umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 9. apríl 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 475 ng/ml) um Hvalfjarðargöng til suðurs.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  42. Umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 9. mars 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 100 ng/ml og vínandamagn 0,71‰, í þvagi mældist amfetamín og alkóhól) um Vesturlandsveg við [...] í Hvalfjarðarsveit.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  43. Umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 16. júní 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti vestur Hverfisgötu í Reykjavík.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  44. Umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 18. júlí 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti um Vesturlandsveg að Hvalfjarðargöngum, uns lögreglan stöðvaði aksturinn skömmu áður en ákærða hugðist aka inn göngin.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

    Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku þeim vopnum sem frá er greint í ákærulið 1 og hald var lagt á og piparúða, sem lögregla lagði hald á samkvæmt ákærulið 3, í öllum tilfellum með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Þá er þess krafist að gerð verði upptæk 0,15 g af amfetamíni og 0,07 g af tóbaksblönduðu maríhúana, með vísan til ákæruliðar 2, samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

    Þá gaf lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu út aðra ákæru á hendur ákærðu 20. maí 2019 „fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, framin á árinu 2019, með því að hafa;

  45. Laugardaginn 5. janúar ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti, með 96 km hraða á klukkustund norður Vesturlandsveg við [...] á Kjalarnesi, þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km á klukkustund.

    Telst þetta varða við 2. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  46. Laugardaginn 2. febrúar ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 145 ng/ml og vínandamagn 0,62‰, í þvagi mældist amfetamín) um Jafnasel í Reykjavík, uns lögreglan stöðvaði aksturinn á Jafnaseli við Breiðholtsbraut.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  47. Föstudaginn 1. mars ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 1,93‰, í þvagi mældist tetrahýdrókannabínólsýra og vínandi 2,35‰) austur Vesturlandsveg í Reykjavík, uns lögreglan stöðvaði bifreiðina við verslunina Kvikk.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 3. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

    Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“ Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að hún er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærða er fædd í [...] [...]. Hún á að baki talsverðan sakaferil sem nær aftur til ársins 2006. Nú síðast var ákærða dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur [...] í tveggja ára fangelsi, en þar af voru 22 mánuðir skilorðsbundnir og var þá reynslulausn dæmd upp. Brot þau sem ákærða er nú sakfelld fyrir í liðum 1-4 voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms og verður ákærðu því dæmdur hegningarauki hvað þau brot varðar, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með öðrum brotum sínum hefur ákærða rofið skilorð dómsins og ber því að taka skilorðsbundna hluta dómsins upp og gera ákærðu refsingu í einu lagi, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákærðu þykir þannig hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár og níu mánuði. Ekki þykir fært að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng ökuréttarsvipting ákærðu áréttuð.

    Ákærða hefur fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins að öðru leyti en því að hún mótmælir upptöku á fjórum Spánarsverðum. Sverðin séu skrautsverð sem hún hafi fengið í arf. Í málinu liggja fyrir ljósmyndir af umræddum sverðum. Blaðlengd þeirra er 27-70 cm. Samkvæmt d-lið 2. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 er bannað að flytja til landsins, framleiða, eignast eða hafa í vörslum sínum sverð, sem eru sambland högg- og bitvopna. Þá gildir það sama, samkvæmt a-lið, um bitvopn ef blaðið er lengra en 12 cm, enda sé það ekki ætlað til notkunar við heimilishald eða atvinnu. Heimilt er að víkja frá banninu með leyfi ríkislögreglustjóra ef vopn hefur söfnunargildi eða sérstakar ástæður mæla með. Fyrir liggur að ákærða hefur ekki fengið leyfi ríkislögreglustjóra fyrir sverðunum. Ber því að fallast á upptökukröfuna með vísan til lagaákvæða í ákæru og eru gerð upptæk fjögur Spánarsverð, tíu hnífar, fjórir kasthnífar, ellefu stunguvopn, svart hnúajárn, silfurlituð trékylfa, svört hafnarboltakylfa, svört kylfa með þyngdum kólfi á endanum, raflostbyssa og tvö stykki af piparúðabrúsum, sem nánar er lýst í 1. lið ákæru, auk piparúða, 0,15 g af amfetamíni og 0,07 g af tóbaksblönduðu marijúana, sem hald var lagt á við rannsókn málsins. Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 295.120 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 1.091.511 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sonja H.Berndsen saksóknarfulltrúi. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærða, X, sæti fangelsi í tvö ár og níu mánuði. Ákærða er svipt ökurétti ævilangt.

Ákærða sæti upptöku á fjórum Spánarsverðum, tíu hnífum, fjórum kasthnífum, ellefu stunguvopnum, svörtu hnúajárni, silfurlitaðri trékylfu, svartri hafnarboltakylfu, svartri kylfu með þyngdum kólfi á endanum, raflostbyssu, tveimur stykkjum af piparúðabrúsum, piparúða, 0,15 g af amfetamíni og 0,07 g af tóbaksblönduðu marijúana.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 295.120 krónur og 1.091.511 krónur í annan sakarkostnað.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 77. gr.78. gr.1. mgr. 157. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 13/1985
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 5. gr.2. mgr. 37. gr.4. mgr. 37. gr.2. mgr. 45. gr.3. mgr. 45. gr.1. mgr. 47. gr.1. mgr. 48. gr.3. mgr. 73. gr.1. mgr. 93. gr.1. mgr. 100. gr.101. gr.102. gr.
Lög nr. 44/1993 Lög um breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987. 25. gr.26. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 2. mgr. 30. gr.4. mgr. 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 68/2001 Lög um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum. 2. gr.
Lög nr. 66/2006 18. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.