Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-17/2019:

Ákæruvaldið

(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Karli Kristófer Sigmarssyni

Mál

þetta, sem dómtekið var 20. febrúar sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af

lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 15. janúar 2019, á hendur Karli

Kristófer Sigmarssyni, kt.

[...]

,

[...]

, Hafnarfirði, fyrir eftirtalin brot:

1.

Umferðarlagabrot, með því að hafa

föstudaginn 10. nóvember 2017 ekið bifreiðinni

[...]

sviptur ökurétti og óhæfur til að

lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst brot þetta varða 1., sbr.

2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr.

Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Ítrekun. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka. Vörslur.

Ákærði var sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka í tvígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 45 daga.

Mál þetta, sem dómtekið var 20. febrúar sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af   lögreglustjóranum   á   höfuðborgarsvæðinu   15.   janúar   2019,   á   hendur   Karli Kristófer Sigmarssyni, kt. [...],[...], Hafnarfirði, fyrir eftirtalin brot:

  1. Umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 10. nóvember 2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 2,6 ng/ml) um Seljabraut og Engjasel í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst brot þetta varða 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  2. Umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 16. maí 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól   5,7   ng/ml)   vestur   Suðurlandsveg   við   Rauðavatn   í Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn og fyrir að hafa haft í vörslum sínum 0,50 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögreglumenn fundu við leit í bifreiðinni.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2. gr., sbr., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og         2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni   og   önnur   eftirlitsskyld   efni   nr.   233/2001,   sbr.   reglugerð   nr. 848/2002. Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku á 0,50 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Ákærði krefst í málinu vægustu refsingar sem lög leyfa en farið var með það samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það dómtekið án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hans, dagsettu 10. janúar 2019, gekkst ákærði undir greiðslu sektar hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna hinn 12. ágúst 2013. Þá gekkst ákærði undir greiðslu sektar hjá sama embætti, einnig fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna, og fyrir vörslur fíkniefna, hinn 2. maí 2016. Við ákvörðun refsingar hér verður þannig við það miðað að ákærði gerist nú í þriðja sinn innan ítrekunartíma, sbr. 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og eftir að hann varð fullra 18 ára, sekur um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í annað skipti sviptur ökurétti. Framlagt sakavottorð ákærða hefur að öðru leyti ekki þýðingu við ákvörðun refsingar í málinu. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls, sem og dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Þá er einnig með vísan til lagaákvæða í ákæru gert upptækt til ríkissjóðs 0,50 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Ákærði greiði 174.028 krónur sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness aðstoðarsaksóknari fyrir hönd Hauks Gunnarssonar saksóknarfulltrúa. Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Karl Kristófer Sigmarsson, sæti fangelsi í 45 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Upptækt er gert til ríkissjóðs 0,50 g af tóbaksblönduðu kannabisefni. Ákærði greiði 174.028 krónur í sakarkostnað.

Þórhildur Líndal