Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 27. mars 2019.
Mál nr. S-143/2019:
Ákæruvaldið
(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Árnýju Ósk Hálfdánardóttur
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Ítrekun. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka. Vörslur.
Útdráttur
Ákærða var sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir að aka í þrjú skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna, án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Var hún dæmd til að sæta fangelsi í 60 daga.
öðlast til þess réttindi og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 20 ng/ml, MDMA 85 ng/ml, tetrahýdrókannabínól 2,2 ng/ml, auk þess mældist metamfetamín í þvagi) um Vesturlandsveg í Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn við verslun N1 og fyrir að hafa haft í vörslum sínum 1,67 g af maríjúana sem lögregla fann við leit í bifreiðinni.
- Miðvikudaginn 7. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 2,1 ng/ml, auk þess mældist amfetamín í þvagi) á Vitastíg við Skúlagötu í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
- Sunnudaginn 29. apríl 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 4,7 ng/ml, auk þess mældist amfetamín og metamfetamín í þvagi) um Reykjanesbraut við Hæðarsmára í Kópavogi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Teljast brotin varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, auk þess sem brot í 1. lið varðar við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Þá er krafist upptöku á 1,67 g af maríjúana sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærða er fædd í janúar 1993. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 21. febrúar 2019, gekkst ákærða undir greiðslu sektar með sátt hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hinn 23. júlí 2012 fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá gekkst ákærða aftur undir greiðslu sektar með sátt hjá sama embætti fyrir sams konar brot hinn 14. ágúst 2015. Sakavottorð ákærðu hefur að öðru leyti ekki þýðingu í málinu. Við ákvörðun refsingar hér verður þannig við það miðað að ákærða gerist nú sek um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna í þriðja sinn. Með hliðsjón af framangreindu, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærða svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Þá er jafnframt með vísan til lagaákvæða í ákæru gerð upptæk til ríkissjóðs 1,67 g af maríjúana sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Ákærða greiði 433.859 krónur í sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness aðstoðarsaksóknari fyrir hönd Hauks Gunnarssonar saksóknarfulltrúa. Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærða, Árný Ósk Hálfdánardóttir, sæti fangelsi í 60 daga.
Ákærða er svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.
Ákærða greiði 433.859 krónur í sakarkostnað. Þórhildur Líndal