Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-969/2008:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Baldri Kolbeinssyni

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Ávana- og fíkniefni. Fjársvik. Skilorðsrof. Skjalafals. Þjófnaður.

Ákærði rauf skilorð 9 mánaða fangelsisrefsingar og var dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, fjársvik, þjófnað, hylmingu og fíkniefnalagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var 25. þessa mánaðar, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 22. júlí 2008 á hendur Baldri Kolbeinssyni, kt. [...], Leirubakka 10, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:

                                                                    I.

Fyrir skjalafals, með því að hafa í neðangreind skipti framvísað skilríkjum Þórðar Gunnars Þorvaldssonar, kt. [...], til að fá kennitölulán og falsað nafn Þórðar á neðangreinda lánasamninga og þannig svikið út vörur, samtals að verðmæti 428.895 krónur:

1)      Þriðjudaginn 4. desember 2007, í verslun BT í Skeifunni í Reykjavík, fengið lán vegna kaupa á fartölvu af gerðinni Toshiba Sat. U300-14K að verðmæti 154.499 krónur.

2)      Fimmtudaginn 6. desember 2007, í verslun BT í Skeifunni í Reykjavík, fengið lán vegna kaupa á myndavél af gerðinni Sony Cybershot, hleðslutæki af gerðinni Sony Ericsson, hörðum disk af gerðinni LaCle Porsche, hátalara, minniskubb og geisladiskatösku, samtals að verðmæti 80.994 krónur.

3)      Fimmtudaginn 20. desember 2007, í verslun Elko, Smáratorgi í Kópavogi, fengið lán vegna kaupa á fartölvu af gerðinni MacBook, að verðmæti 136.995 krónur.

4)      Fimmtudaginn 20. desember 2007, í verslun Skífunnar í Kringlunni í Reykjavík, fengið lán vegna kaupa á tölvu af gerðinni Playstation 3, að verðmæti 44.990 krónur.

Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                    II.

Fyrir fjársvik, með því að hafa sunnudaginn 2. desember 2007, blekkt starfsfólk í staðgreiðsluviðskiptum með framvísun á debetkorti Þórðar Gunnars Þorvaldssonar útgefnu af Glitni banka, og með því svikið út vörur og reiðufé, samtals að fjárhæð 41.018 krónur, eftir því sem hér segir:

1)      Í verslun Olís, Mjóddinni í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 3.144 krónur.

2)      Í verslun Nettó, Mjóddinni í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 89 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

3)      Í verslun Nettó, Mjóddinni í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 159 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

4)      Í verslun Bónusvideó í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 2.310 krónur.

5)      Í verslun 10-11, Arnarbakka 2 í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 3.579 krónur.

6)      Í verslun 10-11, Arnarbakka 2 í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 2.629 krónur.

7)      Í verslun Bónusvideó í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 4.000 krónur.

8)      Í verslun Á stöðinni, Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 2.995 krónur.

9)      Í verslun N1, Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 500 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 kr.

10)   Í verslun Á stöðinni, Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 2.755 krónur.

11)   Í verslun N1, Skógarseli í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 1.070 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 kr.

12)   Í verslun N1, Skógarseli í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 1.130 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 kr.

13)   Á veitingastað KFC, Faxafeni í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 1.658 krónur.

Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                    III.

Fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa, miðvikudaginn 23. janúar 2008, ruðst í heimildarleysi og auðgunarskyni inn á heimili að Ósabakka 1 í Reykjavík, með því að spenna upp salernisglugga á austurhlið hússins en horfið á braut er hann varð húsráðanda var.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. sömu laga.

                                                                 IV.

Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 12. febrúar 2008, í verslun Bónusvideó að Þönglabakka 6 í Reykjavík, stolið tveimur Haribo hlauppokum, Bounty súkkulaði og súkkulaðikexi, samtals að verðmæti 480 krónur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                    V.

Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 20. febrúar 2008, brotist inn í Boðagranda 8 í Reykjavík, með því að spenna upp glugga með skrúfjárni, og stolið þaðan fartölvu af gerðinni IBM Thinkpad að verðmæti 184.659 krónur, stafrænni myndavél af gerðinni Canon að verðmæti um 39.900 krónur, stafrænni myndavél af gerðinni Samsung að verðmæti um 22.000 krónur, þráðlausri tölvumús að verðmæti um 12.000 krónur, um 30 geisladiskum að verðmæti um 60.000 krónur, 10 DVD diskum að verðmæti um 20.000 krónur og rauðri peningabuddu með um 13.000 krónum í.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                    VI.

Fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot, með því að hafa, miðvikudaginn 20. febrúar 2008, í verslun Adidas í Kringlunni í Reykjavík, stolið buxum að verðmæti 4.990 krónur og haft í vörslum sínum 1,53 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á ákærða.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með áorðnum breytingum.

Í málinu gerir Helena Björk Magnúsdóttir, kt. [...], f.h. Adidas concept store, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 4.990-, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 20. febrúar sl., en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags.

                                                                    VII.

Fyrir skjalafals, með því að hafa þriðjudaginn 11. mars 2008, í verslun Skífunnar, Kringlunni í Reykjavík, framvísað skilríkjum Sverris Hermannssonar, kt. [...], til að fá kennitölulán og falsað nafn Sverris á lánasamning vegna kaupa á Playstation 2 leikjatölvu að andvirði 44.999 krónur.

Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                    VIII.

Fyrir hylmingu, með því að hafa þriðjudaginn 11. mars 2008, í verslun Vodafone, Kringlunni í Reykjavík, haft í vörslum sínum farsíma af gerðinni Nokia 6103, sem stolið var úr bifreiðinni JD-224, þar sem hún stóð við Þverbakka í Reykjavík, þann 9. mars 2008, og debetkort og ökuskírteini Sverris Hermannssonar, sem stolið var úr bifreiðinni DY-310, þar sem hún stóð við Hverfisgötu í Reykjavík, um miðjan febrúar 2008, og fannst við leit lögreglu, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða og þannig haldið þeim ólöglega fyrir eiganda þeirra.

Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

                                                                 IX.

Fyrir húsbrot og fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 13. maí 2008, í félagi við Andra Frey Hólm, kt. [...], ruðst heimildarlaust inn í fundarherbergi fjölbýlishússins að Kleppsvegi 50 í Reykjavík, með því að sparka upp hurð fundarherbergisins og hafa haft í vörslum sínum, við Kleppsveg 52, 0,22 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann er hún hafði afskipti að ákærða.

Telst þetta varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með áorðnum breytingum.

                                                                    X.

Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 13. maí 2008, á bifreiðastæði til móts við Glitni, Mjóddinni í Reykjavík, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina OJ-981 og stolið þaðan kassa sem innihélt 100 geisladiska með Karlakór Akureyrar.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                    XI.

Fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa miðvikudaginn 14. maí 2008, á bifreiðastæði við verslunina Nettó, Mjóddinni í Reykjavík, í auðgunarskyni, brotið hægri afturrúðu bifreiðarinnar VP-351 og gert sig líklegan til að fara inn í hana, en hætt við er ákærði varð þess var að vitni var að tilrauninni.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. sömu laga.

                                                                    XII.

Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 22. maí 2008, í verslun 10/11 við Austurstræti í Reykjavík, stolið hálfum lítra af kók og Stjörnutoppum, samtals að verðmæti 564 krónur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                    XIII.

Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 28. maí 2008, í húsnæði verslunarinnar Baby Sam, Skeifunni 8 í Reykjavík, farið inn á kaffistofu starfsmanna og stolið farsíma af gerðinni Sony Ericsson K-660, að verðmæti um 30.000 krónur og kortaveski, sem innihélt innleggsnótu frá 66˚ Norður að verðmæti 22.000 krónur, debetkort útgefið af Spron á nafn Auðar Hafþórsdóttur, kt. [...], og kreditkort útgefið af Landsbankanum á sama nafn.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gerir Auður Hafþórsdóttir, kt. [...], þá kröfu að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 56.990,- ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags.

                                                                    XIV.

Fyrir fjársvik, með því að hafa í fimmtán skipti á tímabilinu 28. maí til 31. maí árið 2008, blekkt starfsfólk í staðgreiðsluviðskiptum með framvísun á debetkorti Auðar Hafþórsdóttur, útgefnu af Spron, og með því svikið út vörur og reiðufé, samtals að fjárhæð 44.643 krónur, eftir því sem hér segir:

1)      Í verslun Olís, Mjóddinni í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 1.165 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

2)      Í verslun N1, Hringbraut í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 449 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

3)      Í verslun Hagkaup, Garðatorgi í Garðabæ, svikið út vörur að fjárhæð 1.500 krónur.

4)      Í verslun Skeljungs, Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 380 krónur.

5)      Í verslun 10-11/Hraðkaup, Lyngási í Garðabæ, svikið út vörur að fjárhæð 1.195 krónur.

6)      Í leigubifreið nr. 199 frá Hreyfli, svikið út akstur að fjárhæð 2.840 krónur.

7)      Í verslun N1, Lækjargötu í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 1.000 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

8)      Í verslun N1, Fossvogi í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 500 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

9)      Í verslun N1, Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 500 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

10)  Í verslun N1, Ártúnshöfða í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 1.005 krónur.- og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

11)  Í verslun N1, Fossvogi í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 648 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

12)  Í verslun Fjarðarkaupa, Hólshrauni í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 3.300 krónur.

13)  Í verslun Nóatúns, Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, svikið út vörur að fjárhæð 885 krónur og reiðufé að fjárhæð 1.000 krónur.

14)  Í verslun Olís, Háaleiti í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 677 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

15)  Í verslun Olís, Mjóddinni í Reykjavík, svikið út vörur að fjárhæð 599 krónur og reiðufé að fjárhæð 3.000 krónur.

Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gera neðangreindir aðilar skaðabótakröfu á hendur ákærða:

1)      Brynjar J. Pétursson gerir þá kröfu, f.h. Olíuverzlunar Íslands, kt. 500269- 3249, að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 16.441.- ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 28. maí sl., en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags.

2)      Kristján Sigurðsson, kt. [...], gerir þá kröfu, f.h. Hagkaupa, kt. 430698-3549, að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 1.500.- ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 29. maí sl., en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags.

3)      Kristján Sigurðsson, kt. [...], gerir þá kröfu, f.h. 10-11/Hraðkaupa, kt. 450199-3629, að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 1.195.- ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 30. maí sl., en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags.

4)      Magnús R. Magnússon, kt. [...], gerir þá kröfu, f.h. Kaupáss hf., að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 1.885.- ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 31. maí sl., en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags.

                                                                 XV.

Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 5. júní 2008, í húsnæði Neytendasamtakanna að Hverfisgötu 105 í Reykjavík, stolið seðlaveski og farsíma af gerðinni Motorola.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                 XVI.

Fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 9. júní 2008, á bifreiðastæði við líkamsræktarstöðina Hress í Hafnarfirði, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina ZP- 863 og stolið þaðan veski sem innihélt visakort, debetkort, ökuskírteini, 3000 krónur í reiðufé og farsíma af gerðinni Motorola að verðmæti um 30.000 krónur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                 XVII.

Fyrir tilraun til fjársvika, með því að hafa þriðjudaginn 10. júní 2008, á veitingastaðnum American Style í Hafnarfirði, reynt að svíkja út vörur að verðmæti 6.580 krónur, með því að framvísa greiðslukorti í eigu Reykjavíkurverktaka ehf., kt. [...], og þannig reynt í heimildarleysi að skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning Reykjavíkurverktaka.

Telst þetta varða við 248. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                 XVIII.

Fyrir tilraun til fjársvika, með því að hafa þriðjudaginn 10. júní 2008, í bensínafgreiðslu N1 við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði, reynt að svíkja út vörur, með því að framvísa greiðslukorti Pavel Sergeev Velikov, kt. [...], og þannig reynt að skuldfæra, í heimildarleysi, andvirði varanna á greiðslukortareikning Pavels.

Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. sömu laga.

                                                                 XIX.

Fyrir hylmingu, með því að hafa sunnudaginn 22. júní 2008, við Leirubakka 10 í Reykjavík, haft í vörslum sínum þrjár fartölvur af gerðinni HP, sem stolið var frá Waldorfleikskólanum Sólstöfum í Reykjavík þann 17. júní 2008, og vegabréf, Sverris Hermannssonar, kt. [...], sem stolið var úr bifreiðinni DY-310 á Hverfisgötunni í Reykjavík um miðjan febrúar 2008, sem fannst við leit lögreglu, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða og þannig haldið þeim ólöglega fyrir eiganda þeirra.

Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                                                                 XX.

Fyrir þjófnað og skjalafals, með því að hafa sunnudaginn 22. júní 2008, á kaffihúsinu Nexus við Hverfisgötu 103 í Reykjavík, stolið jakka í eigu Theódórs Árna Hanssonar sem hafði að geyma debet- og visakort frá Kaupþingi, skotvopnaskírteini, tryggingaskírteini, flogaveikis- og þunglyndistöflur og enn fremur, síðar sama dag, í verslun BT í Skeifunni í Reykjavík, framvísað skilríkjum Theódórs Árna Hanssonar til að fá kennitölulán og falsað nafn Theódórs á lánasamning vegna kaupa á fartölvu af gerðinni Dell Vostro að andvirði 199.995 krónur.

Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í málinu gera neðangreindir aðilar skaðabótakröfu á hendur ákærða:

  1. Theódór Árni Hansson, kt. [...], gerir þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð 38.800 krónur, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá tjónsdegi en svo dráttarvaxta skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
  2. Sigurður M. Grétarsson, kt. [...], gerir þá kröfu f.h. Norvik hf. að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð 199.995 krónur, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá tjónsdegi en dráttarvaxta skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags..

                                                                     XXI.

    Fyrir tilraun til fjársvika, með því að hafa mánudaginn 23. júní 2008, í verslun BT í Skeifunni í Reykjavík, reynt að blekkja starfsfólk í staðgreiðsluviðskiptum með framvísun á greiðslukortum Theódórs Árna Hanssonar, útgefnum af Kaupþingi, og með því reynt að svíkja út sjónvarpstæki af gerðinni Phillips að verðmæti 189.999 krónur.

    Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. sömu laga.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að 1,53 g af amfetamíni og 0,22 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa. Þá krefst hann þess að bótakröfum verði vísað frá dómi og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Við þingfestingu málsins féll ákæruvaldið frá saksókn fyrir húsbrot samkvæmt 231. gr. almennra hegningarlaga, sbr. IX. kafla ákæru. Þá var leiðrétt sú missögn í VII. kafla ákæru að þar ætti að standa að um væri að ræða kaup á Playstation 3 leikjatölvu í stað Playstation 2 leikjatölvu eins og segi í ákæru.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærði hefur játað brot sín afdráttarlaust. Er sannað með játningu ákærða, sem er í samræmi við önnur gögn málsins, að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða.

    Ákærði er fæddur í desember 1991. Samkvæmt sakavottorði gekkst hann undir sektargerð 24. maí 2007 með viðurlagaákvörðun fyrir fíkniefnalagabrot og með dómi 29. nóvember 2007 var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir rán (252. gr. hgl.), ólögmæta meðferð fundins fjár (246. gr. hgl.), tilraun til fjársvika (248. gr., sbr. 20. gr. hgl.), tilraun til þjófnaðar (244. gr., sbr. 20. gr. hgl.), hylmingu (254. gr. hgl.) og fíkniefnalagabrot samkvæmt 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974).

    Með brotum þeim, er ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í máli þessu, hefur hann rofið skilorð dómsins frá 29. nóvember 2007. Ber því samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga að taka þann hluta dómsins upp í máli þessu og dæma bæði málin í einu lagi eftir reglum 77. gr. nefndra laga. Til refsiþyngingar horfir að brot ákærða eru fjölmörg (50 tilvik) og brotavilji hans því einbeittur. Á móti kemur að ákærði hefur játað brot sín hreinskilningslega og að hann var ekki orðinn 18 ára að aldri þegar hann framdi þau. Að þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Engin efni eru til að skilorðsbinda refsinguna. Til frádráttar kemur samkvæmt 76. gr. almennra hegningarlaga með fullri dagatölu gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt óslitið frá 24. júní síðastliðnum.

    Gerð eru upptæk til ríkissjóðs 1,53 g af amfetamíni og 0,22 g af tóbaksblönduðu kannabisefni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

    Verður nú fjallað um bótakröfur á hendur ákærða.

    Adidas Concept Store, Kringlunni, Reykjavík, gerir þá kröfu að ákærði verði dæmdur til greiðslu 4.990 króna, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 20. febrúar sl., en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Af gögnum málsins verður ráðið að buxur þær, sem krafist er bóta fyrir, hafi komist til skila. Er því ekki gerð grein fyrir hvaða tjóni ákærði olli með þjófnaðarbroti sínu. Leiðir það til þess að vísa ber kröfunni frá dómi.

    Auður Hafþórsdóttir, kt. [...], krefst 56.990 króna vegna þjófnaðar á farsíma af gerðinni Sony Ericsson K660 að andvirði 30.000 krónur, inneignarnótu frá 66° Norður að andvirði 21.900 krónur og ökuskírteini að andvirði um 5.000 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Krafan er ekki studd gögnum hvað varðar andvirði ökuskírteinis og farsíma og er því ekki dómtæk að því leyti vegna vanreifunar. Ákærði hefur játað þjófnað á innleggsnótunni og verður krafa um bætur vegna hennar því tekin til greina. Upphafstími dráttarvaxta verður miðaður við þingfestingardag.

    Olíuverzlun Íslands, kt. [...], krefst þess að ákærði verði dæmdur til greiðslu 16.441 krónu, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá tjónsdegi 20. febrúar sl., en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Krafa þessi er skýr og verður tekin til greina eins og hún er fram sett. Krafan var birt ákærða við þingfestingu málsins og verður upphafstími dráttarvaxta miðaður við þann dag.

    Af hálfu Hagkaupa, kt. [...], er krafist að ákærði verði dæmdur til greiðslu  1.500 króna, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá tjónsdegi 29. maí sl., en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Krafa þessi er nægilega skýr og verður tekin til greina. Krafan var birt ákærða við þingfestingu málsins og verður upphafstími dráttarvaxta miðaður við þann dag.

    Af hálfu 10-11/Hraðkaupa, kt. [...], er krafist að ákærði verði dæmdur til greiðslu 1.195 króna, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 30. maí sl., en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Krafan er nægilega skýr og verður tekin til greina. Krafan var  birt ákærða við þingfestingu málsins og verður upphafstími dráttarvaxta miðaður við þann dag.

    Af hálfu Kaupáss hf., kt. [...], er krafist að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1.885 króna, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá tjónsdegi 31. maí sl., en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Krafan þykir nægilega skýr til að hún verði tekin til greina. Krafan var birt ákærða við þingfestingu málsins og verður upphafstími dráttarvaxta miðaður við þann dag.

    Theodór Árni Hansson, kt. [...], gerir þá kröfu að ákærði verði dæmdur til greiðslu kr. 38.800, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá tjónsdegi, en dráttarvaxta skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags. Krafan er engum gögnum studd og verður því vísað frá dómi.

    Sigurður M. Grétarsson, kt. [...], gerir þá kröfu f.h. Norvik hf. að ákærði verði dæmdur til greiðslu kr. 199.995, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá tjónsdegi, en dráttarvaxta skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags. Í málinu liggur fyrir eyðublað fyrir skaðabótakröfu/kæru með undirritun ofangreinds fyrirsvarsmanns Norvik hf., en hins vegar er þar hvorki tilgreint málsnúmer né fjárhæð kröfu. Er krafan því svo vanreifuð að vísa ber henni frá dómi.

    Ákærði verður dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hrl., sem eru hæfilega ákveðin 373.500 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun málsvarnarlauna er tekið tillit til vinnu verjanda í þágu ákærða á rannsóknarstigi málsins.

    Dóminn kvað upp Helgi I. Jónsson dómstjóri.

Dómsorð:

Ákærði, Baldur Kolbeinsson, sæti fangelsi í 15 mánuði. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 24. júní 2008 til dómsuppsögudags.

Upptæk eru gerð 1,53 g af amfetamíni og 0,22 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Ákærði greiði skaðabætur sem hér segir:

Auði Hafþórsdóttur, kt. [...], 21.990 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 20. febrúar 2008 til 25. júlí 2008, en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Olíuverzlun Íslands, kt. [...], 16.441 krónu, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 20. febrúar 2008 til 25. júlí 2008, en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Hagkaupum, kt. [...], 1.500 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 29. maí 2008 til 25. júlí 2008, en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga til greiðsludags.

10-11/Hraðkaupum, kt. [...], 1.195 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 30. maí 2008 til 25. júlí 2008, en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Kaupási hf., kt. [...], 1.885 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 31. maí 2008 til 25. júlí 2008, en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Skaðabótakröfum Adidas Concept Store, Norvik hf. og Theodórs Árna Hanssonar er vísað frá dómi.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hrl., 373.500 krónur.

Helgi I. Jónsson