Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. maí 2007.
Mál nr. S-214/2007:
Ákæruvaldið
(Einar Laxness fulltrúi)
gegn
Bergþóri Leifssyni
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð
Fjársvik. Hegningarauki. Skaðabætur. Skilorðsbundnir dómar. Skilorðsrof. Þjófnaður.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir búðaþjófnaði og fjársvik.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 20. febrúar 2007 á hendur Bergþóri Leífssyni, kt. 000000-0000, Kleppsvegi 72, Reykjavík, fyrir eftirtalin auðgunarbrot framin í Reykjavík á árinu 2006:
I. Þjófnaði:
- Föstudaginn 16. ágúst í versluninní Bónus, Laugavegi 59, stolið magicdós, kókflösku og 2 Freyju súkkulaðistykkjum samtals að verðmæti kr. 412.
- Laugardaginn 25. nóvember í versluninni Intersport, Bíldshöfða 20, stolið Nike flíspeysu, að verðmæti kr. 4.990.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II. Fjársvik:
Blekkt starfsmann Olís við Gullinbrú, þar sem ákærði þóttist ætla að skila gaskútum gegn skilagjaldi og svikið út kr. 10.700 í peningum, í eftirgreind skipti eins og hér greinir:
Fimmtudaginn 24. ágúst svikið tvívegis út kr. 2.140.
Þriðjudaginn 29. ágúst svikið út kr. 2.140.
Miðvikudaginn 30. ágúst svikið tvívegis út kr. 2.140.
Þetta er talið varða við 248. gr. almennra hegningarlaga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Meton ehf. kt. 000000-0000, f.h. Olíuverslunar Íslands h.f., kt. 000000-0000, krefst bóta að fjárhæð kr. 10.700 auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Hinn 20. apríl sl. var sakamálið nr.S-499/2007 sameinað þessu máli en þar er ákærða gefið að sök, með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 27. mars sl., eftirtalin þjófnaðarbrot framin í Kópavogi á árinu 2006:
- Mánudaginn 4. desember í versluninni Lyfju, Smáratorgi 1, stolið 5 flöskum af ilmvötnum samtals að verðmæti kr. 22.635.
- Sunnudaginn 10. desember í versluninni Optical studio, Smáralind, stolið húfu að verðmæti kr. 2500.
Þetta er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í júlí 1974. Á árinu 1996 hlaut hann dóm vegna fíkniefnabrota. Hinn 6. júní 1997 var hann dæmdur til 60 daga fangelsisvistar, skilorðbundið í tvö ár, fyrir tilraun til þjófnaðar. Hinn 30. mars 2001 hlaut hann þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir þjófnaðarbrot, og 24. apríl sama ár hlaut hann 60 daga fangelsisdóm, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir þjófnaðarbrot. Með dómi frá 28. júní 2002 var ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir þjófnað. Ákærði stóðst það skilorð. Hinn 24. febrúar 2006 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir þjófnað og brot gegn ávana- og fíkniefnalögum og var honum með dóminum einnig gert að greiða í ríkissjóð 45.000 króna sekt. Þá var ákærða með dómi hinn 10. nóvember sl. gert að sæta fimm mánaða fangelsi, þar af voru þrír mánuðir bundnir skilorði til þriggja ára, fyrir tilraun til þjófnaðar. Hinn 4. desember sl. gekkst hann með lögreglustjórasátt undir að greiða 45.000 króna sekt vegna fíkniefnabrots og 24. janúar sl. var hann dæmdur til að sæta fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir nytjastuld. Brot þau sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í máli þessu eru öll framin fyrir uppkvaðningu dómsins frá 24. janúar sl. en að hluta til fyrir uppkvaðningu dómsins frá 10. nóvember sl. og lögreglustjórasáttarinnar frá 4. desember sl. Ber því að ákveða refsingu hans að því marki sem hegningarauka við þær refsiákvarðanir, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Þá rauf hann og skilorð dómsins frá 10. nóvember með brotum sínum hinn 25. nóvember og 4. og 10. desember sl. Ber því að taka skilorðshluta dómsins frá 10. nóvember sl. upp og dæma hann með í máli þessu með vísan til 60. sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af því að brot ákærðu beindust að tiltölulega litlum fjárhagslegum verðmætum og að upplýst hefur verið að ákærði eigi að stríða við andlega vanheilsu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að 3 árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði Olíuverslun Íslands hf. 10.700 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 30. ágúst 2006 til 25. nóvember 2006 en síðan dráttarvaxta frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði 62.250 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti í þóknun til skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Bergþór Leifsson, sæti fangelsi í 6 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að 3 árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði Olíuverslun Íslands hf. 10.700 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 30. ágúst 2006 til 25. nóvember 2006 en síðan dráttarvaxta frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði 62.250 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti í þóknun til skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns.
Ásgeir Magnússon