Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 16. nóvember 2007.
Mál nr. S-1281/2007:
S-1281/2007:
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
X
Ár 2007, föstudaginn 16. nóvember, er
dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dómhúsinu við Lækjartorg af Jónasi
(Jóhannes Ásgeirsson hrl)
Lykilorð
Fangelsi. Skaðabætur. Skilorð. Skjalafals.
Útdráttur
Karlmaður á fimmtugsaldri dæmur í 8 mánaða fangelsi fyrir skjalafals, en frestað var fullnustu 5 mánaða refsingarinnar.
Ár 2007, föstudaginn 16. nóvember, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dómhúsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í málinu nr. S-1281/2007: Ákæruvaldið gegn X, sem dómtekið var í gær sem játningarmál samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði málið með ákæru útgefinni 11. september 2007 á hendur ákærða, X, [...], til refsingar fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa:
Í apríl 2004, selt Landsbanka Íslands tryggingarbréf nr. 0153-63-3503, að fjárhæð 2.000.000 króna, útgefið 14. apríl 2004 fyrir hönd Æ ehf., en á bréfið hafði ákærði falsað áritun eiginkonu sinnar A, sem útgefanda, nöfn B og C, sem samþykkjendur fyrir veðsetningu fasteignarinnar [...] og nafn sonar síns, D, sem vitundarvotts að áritun hinna, allt svo sem nánar er lýst í ákæru.
Í júlí 2006, selt Landsbankanum víxil að fjárhæð 2.000.000 króna, útgefinn 21. þess mánaðar af ákærða, fyrir hönd Æ ehf., með gjalddaga 30. ágúst 2006, en á víxilinn hafði ákærði falsað áritun E, fyrir hönd Ö, sem samþykkjanda víxilsins.
Landsbankinn krefst þess að ákærði verði jafnframt dæmdur til greiðslu 1.943.308 króna með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 27. júlí 2006 til 9. júní 2007, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði játar sök fyrir dómi, samþykkir bótakröfu vegna 2. töluliðs ákæru og krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Með greindri játningu, sem samrýmist framburði ákærða hjá lögreglu og öðrum gögnum málsins er ofangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Ber honum að njóta þessa við ákvörðun refsingar, sem og þess að hafa játað brot sín greiðlega og gengist við bótaskyldu gagnvart Landsbankanum vegna 2. ákæru liðs. Á hinn bóginn horfir til refsiþyngingar að í báðum tilvikum er um háar fjár hæðir að ræða og að fjártjón er óbætt. Að þessu öllu gættu, með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og loks að teknu tilliti til aldurs ákærða, sem er 46 ára, þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði. Eftir atvikum þykir mega ákveða að fresta fullnustu fimm mánaða refsingarinnar þannig að sá hluti hennar falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsbirtingu haldi ákærði almennt skilorð, svo sem greinir í dómsorði.
Samkvæmt greindum málsúrslitum og með vísan til 2. mgr. 172. gr. laga um með ferð opinberra mála ber að dæma ákærða til að greiða Landsbankanum umkrafðar bætur, með vöxtum samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu frá 27. júlí 2006 til 6. júlí 2007, þá er mánuður var liðinn frá því að krafan var honum birt, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Loks ber samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laganna um meðferð opinberra mála að dæma ákærða til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Jóhannesar Ásgeirssonar hæsta réttarlögmanns og þykir hún hæfilega ákveðin 92.628 krónur að meðtöldum virðis aukaskatti.
Guðjón Magnússon fulltrúi lögreglustjóra sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.
DÓMSORÐ:
Ákærði, X, sæti fangelsi átta mánuði, en fresta skal fullnustu fimm mánaða refsingarinnar og sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsbirtingu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði Landsbankanum 1.943.308 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 27. júlí 2006 til 6. júlí 2007, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði 92.628 króna þóknun Jóhannesar Ásgeirssonar hæstaréttarlögmanns.
Jónas Jóhannsson