Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-774/2006:

Ákæruvaldið

(Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

Tanyu Kristrúnu Gunnarsdóttur

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Gripdeild. Hegningarauki. Skaðabætur. Skilorðsbundnir dómar. Skilorðsrof. Þjófnaður.

Ákærða dæmd í 11 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir gripdeild og þjófnað á bensíni og eyrnalokkum, samtals að verðmæti 2.992 krónur. Með brotum sínum rauf ákærða skilorð eldra dóms en þá var hún dæmd í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum í Reykjavík 16. maí 2005 á hendur Tanyu Kristrúnu Gunnarsdóttur, Mörkinni 8, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot framin á árinu 2005:

  1. Gripdeild, með því að hafa mánudaginn 11. október á bensínafgreiðslustöð Esso, Ártúnshöfða, Reykjavík, dælt bensíni á bifreiðina XN-108 að andvirði kr. 2.003 og ekið á brott án þess að greiða fyrir það.

    Telst þetta brot varða við 245. gr. almennra hegningalaga nr. 19, 1940.

  2. Þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 13. desember í versluninni Hagkaup, Smáralind, Hagasmára, Kópavogi, stolið eyrnalokkum að verðmæti kr. 989.

    Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningalaga.

    Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.

    Í málinu gerir Olíufélagið ehf, kröfu um að ákærða verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 2.003, auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvaxta skv. 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærða hefur skýlaust játað brot sín og samþykkt að greiða bótakröfu. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærða er fædd í desember 1986. Samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði var hún dæmt í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi 15. apríl 2004 fyrir brot gegn 245. og 252. gr. almennra hegningarlaga. Hinn 28. júní sama ár hlaut hún 9 mánaða skilorðsbundinn dóm til þriggja ára fyrir brot gegn 254. gr. sömu laga. Þá var henni gert að greiða 40.000 króna sekt fyrir fíkniefnabrot með dómi 21. desember 2005. Með brotum sínum nú hefur ákærða rofið skilorð dómsins frá 28. júní 2004 og ber því að taka hann upp og dæma mál þessi saman með vísan til 60. gr., sbr. 77. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot ákærðu eru og hegningarauki við dóminn frá 21. desember 2005 og verður refsing að því leyti tiltekin með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing ákærðu því hæfilega ákveðin fangelsi í 11 mánuði. Með hliðsjón af ungum aldri ákærðu, skýrri játningu hennar og þeim hagsmunum sem brot hennar snerust um þykir þó rétt að fangelsisrefsing hennar sé bundin skilorði sem fyrr og skal fullnusta refsingarinnar frestast og hún falla niður að 2 árum liðnum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

    Ákærða hefur samþykkt skaðabótakröfu sem gerð er í ákæru. Í samræmi við það greiði ákærða Olíufélaginu ehf. 2.003 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 11. október 2005 til 19. janúar 2006 en síðan dráttarvaxta skv. 9. gr. sömu laga til greiðsludags.

    Ákærða greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, 57.270 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

D ó m s o r ð :

Ákærða, Tanya Kristrún Gunnarsdóttir, sæti fangelsi í 11 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að 2 árum liðnum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða greiði Olíufélaginu ehf. 2.003 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 11. október 2005 til 19. janúar 2006 en síðan dráttarvaxta skv. 9. gr. sömu laga til greiðsludags.

Ákærða greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, 57.270 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ásgeir Magnússon