Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-71/2009:

D Ó M U R

máli

nr. S-71/2009:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Brot gegn valdstjórninni. Hótanir. Játningarmál. Rán. Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Skilorðsrof. Skjalafals. Tilraun.

Dæmt 18 mánaða fangelsi, skilorðbundið að hluta, fyrir ránstilraun, hótanir, brot gegn valdstjórninni og umferðarlagabrot.

„fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 1. október 2007, ekið bifreiðinni RJ-640 um Vesturlandsveg í Hvalfjarðarsveit, með allt að 126 kílómetra hraða miðað við klukkustund, eftir vegarkafla við Fiskilæk, en þar er leyfilegur hámarkshraði 90 kílómetrar.

Telst þetta varða við 2. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Mál nr. S-83/2009 var sameinað þessu.  Það höfðaði ríkissaksóknari gegn ákærða 9. mars sl.; „fyrir eftirfarandi brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum á Akureyri, á árinu 2008:

1.  fyrir skjalafals, með því að hafa miðvikudaginn 16. janúar, framvísað fölsuðum lyfseðli í lyfjaverslun í Hagkaupum, Furuvöllum, en ákærði hafði breytt lyfseðli útgefnum af [A], lækni, þann 15. janúar 2008, þar sem hann ávísaði ákærða 30 töflum af lyfinu Ritalin á þann veg að breyta tölunni 30 í 60.

Telst þetta varða við 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

  1. Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sama dag og í framhaldi af atvikum sem getið er um í 1. ákærulið, ekið bifreiðinni RJ-640, sviptur ökurétti frá Furuvöllum að Fjórðungssjúkrahúsinu við Eyrarlandsveg og þaðan í Keilusíðu.

    Telst þetta varða við 48. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  2. Fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa sama dag og getið er um í 1. ákærulið, á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, veist að starfsmanni deildarinnar, [B], með klaufhamar í hendi og krafið hana um símanúmer [A] geðlæknis og með því að hafa skömmu síðar komið aftur inn á deildina, einnig með klaufhamar í hendi og krafið [C], starfsmann deildarinnar um sömu upplýsingar.

    Telst þetta varða við 106. gr. almennra hegningarlaga, sbr. lög nr. 25/2007.

  3. Fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa fimmtudaginn 26. júní, utandyra á horni Helgamagrastrætis og Bjarkarstígs, gripið um jakka [D] lögreglumanns sem þar var að sinna skyldustörfum og ýtt við honum og sparkað í [E] lögreglumann, en hún var þar einnig að sinna skyldustörfum, með þeim afleiðingum að hún féll til jarðar.

    Telst þetta varða við 106. gr. almennra hegningarlaga, sbr. lög nr. 25/2007.

  4. Fyrir hótanir, með því að hafa þriðjudaginn 1. júlí, á gatnamótum Drottningarbrautar og Suðurbrúar, í kjölfar umferðaróhapps, hótað [F] og [G] lífláti.

    Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga.

  5. Fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa föstudaginn 25. júlí, á gatnamótum Þingvallastrætis og Súluvegar, ítrekað hótað lögreglumönnunum [H], [I], [J] og [K], sem þar voru að sinna skyldustörfum, líkamsmeiðingum og lífláti og fyrir að hafa í bifreið á leið frá vettvangi á lögreglustöðina á Þórunnarstræti hótað ofangreindum [I] lífláti en hótunina viðhafði hann í viðurvist lögreglumanna [J] og [H].

    Telst þetta varða við 106. gr. almennra hegningarlaga, sbr. lög nr. 25/2007.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

    Mál nr. S-95/2009 var sameinað þessu.  Það höfðaði ríkissaksóknari gegn ákærða 17. mars sl.; „fyrir tilraun til ráns, með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 5. desember 2007 veist að [L], leigubílstjóra, í leigubifreið við Hátún [...] í Reykjavík, skipað honum að afhenda sér peninga, reynt ítrekað að leggja til hans með eggvopni og slegið hann í andlitið með krepptum hnefa, en ákærði hvarf síðan á braut.  Af atlögunni hlaut [L] 14 mm skurð fyrir ofan hægri augabrún, tvo skurði á þumli vinstri handar, 10 mm skurð á litlafingri hægri handar og auk þess rispur á handarbaki og í lófa á bæði vinstri og hægri hendi.

    Telst þetta varða við 252. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

    Ákærði hefur hér fyrir dómi játað sök samkvæmt öllum ákæruatriðum.  Var farið með málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88, 2008 og málið tekið til dóms eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði og sjónarmið um ákvörðun viðurlaga.  Krefst skipaður verjandi ákærða, fyrir hans hönd, þess að hann verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa og að hún verði eftir atvikum bundin skilorði.

    Með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við rannsóknargögn, er nægilega sannað að hann hafi gerst sekur um þá verknaði sem í ákærum er lýst og þar eru rétt heimfærðir til laga.

    Ákærði er á 22. aldursári.  Hann hefur frá árinu 2005 hlotið samtals 14 refsidóma, þar af á árinu 2006 tvívegis fyrir þjófnað, í annað sinnið, þann 15. júní, sætti hann 30 daga skilorðsbundnu fangelsi.  Hinn 8. júní 2007 var hann dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og var framangreindur skilorðsdómur þá dæmdur upp.  Að öðru leyti hefur ákærði verið dæmdur til greiðslu sekta með framangreindum dómum, fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, síðast 19. nóvember 2008 er hann var dæmdur til greiðslu 250.000 króna sektar fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga.  Með þeim brotum sem ákærði hefur nú verið fundinn sekur um hefur hann rofið skilorð framangreinds dóms frá 8. júní 2007 og ber að taka refsingu samkvæmt honum upp og dæma ákærða refsingu í einu lagi, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga með áorðnum breytingum og tiltaka refsinguna eftir reglum 78. gr. og 77. gr. sömu laga.

    Brot ákærða samkvæmt ákæru 17. mars 2009 og hótunarbrot hans og brot hans gegn valdstjórninni samkvæmt ákæru 9. mars 2009 voru alvarlegs eðlis og ber að líta til þess við ákvörðun refsingar, sem ákveðst fangelsi í 18 mánuði.

    Ákærði hefur játað brot sín greiðlega.  Hann lýsti því fyrir dómi að hann hafi átt við langvarandi geðræn vandamál að stríða, mælst með ofvirkni og athyglisbrest um 7 ára gamall og verið á sterkum skammti af rítalíni á unglingsárum auk þess sem hann hafi verið á öðrum geðlyfjum.  Hann hafi í fjögur til fimm ár neytt fíkniefna, en hætt neyslu þeirra um síðustu jól.  Hann hafi stofnað til sambúðar og sé nýorðinn faðir og hafi stundað atvinnu, sem hann hyggist gera áfram.  Þegar litið er til þess hvernig högum ákærða er nú háttað samkvæmt lýsingu hans, þess að hann kveðst hafa bætt ráð sitt og einnig til þess að nokkur dráttur virðist hafa orðið á því frá því að rannsókn á broti hans gegn 252. gr. hegningarlaga lauk uns ákæra var gefin út, þykir rétt að skilorðsbinda refsinguna að hluta eins og nánar er greint í dómsorði.

    Dæma ber ákærða til að greiða sakarkostnað, þ.e. ferðakostnað skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar, hrl., og þóknun hans, sem ákveðst að meðtöldum virðisaukaskatti eins og greinir í dómsorði.

    Dóminn kveður upp Erlingur Sigtryggsson, héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í 18 mánuði, en fresta ber fullnustu 15 mánaða þar af og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að liðnum þremur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.

Ákærði greiði 126.838 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar, hrl., 97.608 krónur.