Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-37/2008:

D Ó M U R

nr. S-37/2008:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Hegningarauki. Skaðabætur. Skilorðsrof. Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni. Þjófnaður.

Karlmaður dæmdur í 6 mánaða fangelsi, þar af 4 mánuði skilorðsbunda, fyrir þjófnaðarbrot og til sektargreiðslu fyrir umferðarlagabrot.

X

Mál þetta, sem var dómtekið þann 4. apríl sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri hér fyrir dómi með tveimur ákærum, báðum útgefnum þann 8. febrúar 2008, á hendur X.

Með fyrra ákæruskjalinu er ákært; „fyrir þjófnað, með því að hafa 19. desember 2007, stolið tveimur Playstation 3, leikjatölvum, að verðmæti samtals kr. 79.800úr verslun Hagkaupa að Furuvöllum 17 á Akureyri.

Brot þessi teljast varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.  Í málinu gerir Hagkaup hf. kt. 430698-3549, Skeifunni 15, Reykjavík, bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 79.800-, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001, frá 19.12.2007 og síðan dráttarvöxtum til greiðsludags;“

Með síðara ákæruskjalinu er ákært; „fyrir eftirtalin umferðarlagabrot:

I.

Að hafa laugardagskvöldið 22. desember 2007, ekið bifreiðinni JZ-868, undir áhrifum ávana- og fíkniefna (amfetamíns 55 ng/ml) austur Höfðahlíð á Akureyri og norður Skarðshlíð, þar sem lögregla stöðvaði akstur hans.

II.

Að hafa aðfaranótt sunnudagsins 23. desember 2007, ekið sömu bifreið undir áhrifum áfengis (0,72‰) og ávana og fíkniefna (amfetamíns 90 ng/ml.) frá bifreiðastæði við bæjarskrifstofurnar á Akureyri, vestur Geislagötu, suður Laxagötu, austur Gránufélagsgötu og aftur að ráðhúsinu, þar sem hann stöðvaði bifreiðina.

Brot þessi teljast varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66,2006.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66, 2006.“

I.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt sakargiftir líkt og brotum hans er lýst í ákæruskjölum.  Játning ákærða er í samræmi við rannsóknargögn lögreglu og önnur gögn málsins.

Með játningu ákærða, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök. Varðar háttsemi hans við þau lagaákvæði sem tilgreind eru í ákæruskjölum.  Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.

II.

Ákærði, sem er 23 ára, hefur samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins fimm sinnum áður sætt refsingum.  Þann 22. júlí 2002 gekkst hann undir lögreglustjórasátt, 22.000 króna sekt, fyrir eignaspjöll og þann 20. maí 2003 var honum með viðurlagaákvörðun héraðsdóms gerð 20.000 króna sekt fyrir hilmingu.  Þann 2. september 2005 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár fyrir þjófnað.  Þann 14. maí 2007 var hann dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið í eitt ár, fyrir umboðssvik samkvæmt 249. gr. almennra hegningarlaga.  Var um hegningarauka að ræða og var því fyrrnefndur skilorðsdómur frá 2. september 2005 dæmdur upp.  Loks var ákærði með dómi héraðsdóms þann 19. desember 2007 dæmdur til greiðslu 90.000 króna sektar og sviptur ökurétti í sex mánuði frá 23. desember 2007 fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og deyfandi lyfja.

Í máli þessu hefur ákærði gerst sekur um þjófnað og umferðarlagabrot í tvígang. Með brotum þessum hefur ákærði rofið skilorð dómsins frá 14. maí 2007.  Ber að taka upp þann dóm og dæma málin í einu lagi og tiltaka refsingu eftir reglum 77. gr., en einnig 78. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 60. gr. sömu laga.

Refsing ákærða þykir með vísan til sakaferils hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði og 180.000 króna sekt til ríkissjóðs.  Eftir atvikum og í ljósi þess að ákærði virðist upp á síðkastið hafa verið að taka sig á, hefur m.a. farið vímuefnameðferð og hafið atvinnuþátttöku, þá þykir fært að fresta framkvæmd fimm mánaða af refsingunni og ákveða að sá hluti hennar falli niður að liðnum þremur árum haldi hann almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.  Greiði ákærði ekki sektina innan fjögurra vikna sæti hann 12 daga fangelsi.

Svipta ber ákærða ökurétti.  Þar sem síðasti dómurinn yfir ákærða var kveðinn upp áður en hann framdi umferðarlagabrot þau sem hann er hér sakfelldur fyrir ber að ákvarða ökuréttindasviptinguna með hliðsjón af 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga nr. 50. 1987.  Er hann því sviptur ökurétti í tvö ár frá 23. júní 2008 að telja.

Í málinu er höfð uppi bótakrafa Hagkaupa hf. Þykir hún nægilega rökstudd og verður tekin til greina svo sem nánar greinir í dómsorði.

Dæma ber ákærða til að greiða allan kostnað sakarinnar, sem samkvæmt yfirliti nemur 174.479 krónum.

Dóm þennan kveður upp Ólafur Ólafsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, sæti 6 mánaða fangelsi, en fresta skal framkvæmd fimm mánaða af refsingunni og ákveða að sá hluti hennar falli niður að liðnum þremur árum haldi hann almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19, 1991, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.

Ákærði greiði 180.000 króna í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 12 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í tvö ár frá 23. júní 2008 að telja.

Ákærði greiði Hagkaupum hf. 79.800 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 19. desember 2007 til 8. febrúar 2008 en dráttarvexti frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði 174.479 krónur í sakarkostnað.