Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-26/2008:

D Ó M U R

nr. S-26/2008:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

(Arnar Sigfússon hdl)

Hegningarauki. Nytjastuldur. Sektir. Skaðabætur. Skilorð. Ökuréttarsvipting. Ölvunarakstur. Þjófnaður.

Sakfellt fyrir þjófnað, nytjastuld og ölvunarakstur. Dæmdur hegningarauki, skilorðsbundið fangelsi, sekt og ökuréttarsvipting.

„fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 4. febrúar 2007 brotist inn í húsnæði bílasölunnar Bílasalinn.is, Hjalteyrargötu [...] Akureyri og stolið þaðan tveim DELL tölvuskjám, plöstunarvél. glerskál og kveikjuláslyklum bifreiðanna SR-117 og NF-747, en síðan tekið bifreiðina NF-747 án heimildar og ekið henni undir áhrifum áfengis frá Hjalteyrargötu [...], um götur Akureyrar, en síðan um Eyjafjarðarbraut vestari og Þverbraut, uns hann nam staðar við Syðra-Laugaland, þar sem hann steig út úr bifreiðinni án þess að ganga nægilega tryggilega frá henni, með þeim afleiðingum að hún rann af stað, fór útaf veginum, valt og skemmdist.

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956 og 1. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 48, 1997.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og sviptingar ökuréttinda skv. 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga sbr. lög nr. 44, 1993, lög nr. 84, 2004 og lög nr. 66, 2006.

Í málinu gerir [A] fyrir hönd Bílasalans.is ehf., bótakröfu á ákærða að fjárhæð kr. 131.373.“

Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.

Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.

Ákærði er á nítjánda aldursári.  Þann 10. maí 2007 var ákvörðun refsingar hans fyrir þjófnað og brot gegn lögreglulögum og áfengislögum frestað skilorðsbundið í þrjú ár.  Þann 26. júní 2007 var honum dæmdur hegningarauki fyrir brot gegn 5., 37. og 48. gr. umferðarlaga og gerð 120.000 króna sekt og hann sviptur ökurétti í þrjá mánuði.  Þann 16. október 2007 var ákærði dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir þjófnað framinn 9. maí 2007 og var dómurinn frá 10. maí 2007 þá dæmdur upp.  Var um hegningarauka að ræða.  Þann 8. febrúar sl. var ákærði dæmdur til að sæta hegningarauka fyrir minni háttar líkamsárás sem hann framdi 11. ágúst 2007 og var dómurinn frá 16. október 2007 þá dæmdur upp og ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár.  Brot það sem ákærði er nú sakfelldur fyrir er framið fyrir uppsögu allra framangreindra dóma og ber nú enn að dæma honum hegningarauka.  Ber að taka upp hina skilorðsbundnu refsingu samkvæmt síðast greinda dómnum og dæma ákærða refsingu í einu lagi, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga, sem samsvari þeirri þyngingu hegningarinnar sem kynni að hafa orðið, hefði þá verið dæmt um öll brotin í einu lagi, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga.

Öll framangreind brot, önnur en líkamsárásina, framdi ákærði áður en hann varð fullra 18 ára, þar með talin þau sem hann er hér sakfelldur fyrir.  Hefur ákærði ekki rofið skilorð samkvæmt dómi, nema með greindri líkamsárás 11. ágúst 2007, er fól í sér rof á skilorði dómsins frá 10. maí 2007.  Ákærði lýsti því hér fyrir dómi að hann hafi frá síðastliðnu hausti breytt hegðan sinni til hins betra með því að stunda starfsþjálfun hjá Fjölsmiðjunni, gæta hófsemi og breyta nokkuð umgengni við kunningjahóp sinn.  Þá kveðst hann hafa byrjað sambúð.

Samkvæmt framansögðu hefur ákærði töluverðan brotaferil að baki, þrátt fyrir ungan aldur.  Við ákvörðun refsingar verður litið til æsku hans og þess að hann var ekki orðinn fullra 18 ára er hann framdi þau brot sem hann er nú sakfelldur fyrir.

Þá verður litið til þess að hann kveðst hafa snúið ráði sínu til betri vegar.  Verður þannig litið til 4. og 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar.  Brot ákærða sem í ákæru greinir höfðu töluverða eyðileggingu í för með sér og ber að líta til þess til þyngingar, sbr. 2. tl. sömu mgr.  Verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.  Með tilliti til æsku hans og þess að hann hefur lýst viðleitni til að bæta ráð sitt þykir rétt að skilorðsbinda hana eins og nánar greinir í dómsorði.  Einnig verður ákærði dæmdur til að greiða 100.000 krónur í sekt fyrir brot sitt gegn umferðarlögum og komi fangelsi í 8 daga í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja.  Þá verður hann sviptur ökurétti í 10 mánuði frá birtingu dómsins að telja, sbr. 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga.

Í málinu er höfð uppi skaðabótakrafa Bílasalans.is sem getið er í ákæru.  Er gerð krafa um bætur fyrir tvo skjái og plöstunarvél, samtals 86.573 krónur.  Bótakrafan er studd reikningum frá seljanda þessara muna til tjónþola, dagsettum í febrúar 2006.  Þykir mega dæma bætur í þessum lið eins og krafist er.  Þá er krafist bóta fyrir vélsleðahjálm að verðmæti 34.900 krónur, sem sagður er hafa eyðilagst er glerbrot þeyttust á hann.  Þessi kröfuliður er engum gögnum studdur og gegn mótmælum ákærða verður að vísa honum frá dómi.  Þá er krafist 9.900 króna í bætur fyrir vinnu og efni við að loka glugga sem brotist var inn um með spónaplötu.  Þessi liður er engum gögnum studdur, en svo augljóst er að þurft hefur að loka glugganum til bráðabirgða að fært þykir að ákveða bætur að álitum.  Þykir sú fjárhæð sem krafist er ekki vera úr hófi fram og verður ákærði dæmdur til að greiða hana.  Samkvæmt þessu verður ákærði dæmdur til að greiða bætur að fjárhæð 96.473 krónur.  Krafist er dráttarvaxta frá 6. desember 2007 til greiðsludags.  Dráttarvaxtakröfu er ekki getið í ákæru og verður henni þegar af þeirri ástæðu vísað frá dómi.

Dæma ber ákærða til að greiða sakarkostnað, 221.376 krónur vegna rannsóknar á erfðaefni og þóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl., sem ákveðst í einu lagi vegna starfa hans á rannsóknar- og dómstigi, 90.000 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.  Lögmaðurinn hefur þegar fengið greiddar úr ríkissjóði 39.840 krónur þar af.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í fjóra mánuði og greiði 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja.

Fresta ber fullnustu fangelsisrefsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði hið almenna skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955, að gerast ekki sekur um nýtt brot á skilorðstímanum.  Fangelsi í 8 daga komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Ákærði er sviptur ökurétti í 10 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði Bílasalanum.is 96.473 krónur.

Ákærði greiði 311.376 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl., 90.000 krónur.