Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2010. Útgáfa 138b. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um verslun með áfengi og tóbak]1)
Lög nr. 63/1969
1)L. 95/1995, 8. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 1969.
Breytt með l. 27/1977 (tóku gildi 1. júní 1977), l. 76/1982 (tóku gildi 1. jan. 1983), l. 30/1986 (tóku gildi 21. maí 1986), l. 51/1986 (tóku gildi 21. maí 1986), l. 95/1995 (tóku gildi 1. des. 1995), l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 75/1998 (tóku gildi 1. júlí 1998 nema ákvæði til bráðabirgða III sem tók gildi 24. júní 1998), l. 98/1998 (tóku gildi 24. júní 1998), l. 24/2004 (tóku gildi 1. júlí 2004; EES-samningurinn: bókun 3), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008) og l. 149/2008 (tóku gildi 24. des. 2008).I. kafli.
Um áfengis- og tóbaksverslun.
■ 1. gr.5 [Innflutningur til landsins á vínanda og áfengi, sem í er meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli, fer eftir ákvæðum áfengislaga.
□ 2 [Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal tryggja að allt tóbak sem flutt er inn frá útlöndum eða framleitt hér á landi, hvort heldur er unnið eða óunnið, sé merkt. Um merkingar tóbaks fer eftir ákvæði 6. gr. laga nr. 6/2002, um tóbaksvarnir.] 1)] 2)
□ Lög þessi taka ekki til skipa og flugvéla, sem koma í landhelgi og hafa innanborðs áfengi eða tóbak sem hluta af tollfrjálsum forða, ef með þann varning er farið samkvæmt sérákvæðum laga. Ráðherra er heimilt að setja sérreglur um innflutning ferðamanna og áhafna skipa og flugvéla á áfengi og tóbaki.
1)L. 24/2004, 1. gr. 2)L. 95/1995, 1. gr.
■ 2. gr.5 [Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins annast innflutning og innkaup á vínanda, áfengi og tóbaki samkvæmt lögum þessum og dreifingu þessara vara undir yfirstjórn fjármálaráðherra. [Þess skal gætt að jafnræði gildi gagnvart öllum áfengis- og tóbaksbirgjum.] 1)
□ … 1)
□ … 2)] 3)
1)L. 24/2004, 2. gr. 2)L. 75/1998, 32. gr. 3)L. 95/1995, 2. gr.
■ 3. gr.1 Fjármálaráðherra ákveður útsöluverð áfengis og tóbaks á hverjum tíma. [Verð í smásöluverslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á hverri vöru fyrir sig skal vera það sama hvar sem er á landinu.] 1) Álagningarhlutfall á vindlingum (sígarettum) og smávindlum (cigarillos) skal vera þannig, að samkeppnisaðstaða síðarnefndrar vörutegundar gegn vindlingum sé auðvelduð, eftir því sem atvik leyfa.
1)L. 95/1995, 3. gr.
■ 4. gr. [Ráðherra skipar forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til fimm ára í senn. Forstjóri ræður aðra starfsmenn.] 1)
□ [Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal starfa í tveimur deildum er séu aðgreindar rekstrarlega og fjárhagslega. Skal önnur deildin hafa með höndum innflutning og heildsölu áfengis en hin skal annast smásölu áfengis. Fjármálaráðherra skal skipa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins stjórn og setja með reglugerð nánari ákvæði um skipulag hennar.] 2)
1)L. 83/1997, 38. gr. 2)L. 95/1995, 4. gr.
■ 5. gr.1 [[Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins selur áfengi innan lands, sbr. [10. gr.] 1) áfengislaga.] 2) Um endursölu áfengis hjá vínveitingahúsum fer eftir ákvæðum sérlaga.] 3)
1)L. 149/2008, 1. gr. 2)L. 95/1995, 5. gr. 3)L. 51/1986, 2. gr.
■ 6. gr. [Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er einni heimilt að selja tóbak innan lands í heildsölu. Um smásölu tóbaks fer eftir ákvæði 8. gr. laga nr. 6/2002, um tóbaksvarnir.] 1)
1)L. 24/2004, 3. gr.
■ 7. gr.3 [Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal tryggja að þjónusta við viðskiptavini sé vönduð, sem og upplýsingar sem gefnar eru viðskiptavinum um þá vöru sem á boðstólum er, allt eftir því sem samrýmist lögum þessum, áfengislögum og öðrum lagafyrirmælum og reglum á hverjum tíma.] 1)
1)L. 98/1998, 1. gr.
■ [8. gr. Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á áfengi með 22% eða lægra hlutfall af vínanda að rúmmáli skal vera 18% en álagning áfengis með meira en 22% hlutfall af vínanda að rúmmáli skal vera 12%. Við ákvörðun á áfengisinnihaldi vísast til laga um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995, með síðari breytingum.
□ Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á tóbak skal vera 18%.
□ Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins skal lögð á innkaupsverð vöru.] 1)
1)L. 149/2008, 2. gr.
■ [9. gr.]1) [Leggja skal hald á vörur þær sem lög þessi taka til og inn eru fluttar eða framleiddar í heimildarleysi. Innfluttar vörur skulu afhentar Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins til ráðstöfunar.] 2)
1)L. 149/2008, 2. gr. 2)L. 95/1995, 7. gr.
■ [10. gr. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er heimilt að innheimta gjald af birgjum vegna kostnaðar sem leiðir af töku nýrrar vöru til sölu. Skal gjaldið eingöngu standa straum af þeim kostnaði sem til fellur vegna skráningar, könnunar og annarra nauðsynlegra ráðstafana af hálfu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins við að taka nýja vöru til sölu.] 1)
1)L. 149/2008, 3. gr.
II. kafli.
…1)
1)L. 76/1982, 62. gr.
III. kafli.
Almenn ákvæði.
■ 14. gr.7 Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð. 1)
1)Rg. 39/1935 (um sölu áfengis til iðnaðar o.fl.). Rg. 597/1993, sbr. 490/1994 (um skilgreiningu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum). Rg. 585/1995. Rg. 135/1996. Rg. 117/1998. Rg. 1082/2004 (um tóbaksgjald og merkingar tóbaks). Rg. 883/2005 (um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins), sbr. 294/2009 og 97/2010.
■ 15. gr. [Brot gegn lögunum varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.] 1)
1)L. 88/2008, 234. gr.