Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 974/2016"
2 dómar fundust
H ehf. höfðaði mál gegn V ehf. og krafðist í fyrsta lagi bóta fyrir fjártjón sem hann hefði orðið fyrir vegna ólögmætrar riftunar V ehf. á húsaleigusamningi, sem ágreiningur ríkti um hvort komist hefði á milli málsaðila. Í öðru lagi krafðist H ehf. að viðurkennd yrði skaðabótaskylda V ehf. á fjártjóni H ehf. sem hlaust af kostnaði við breytingar á hönnun fasteignarinnar er leiddi af framangreindri riftun. Í dómi Landsréttar kom fram að ljóst væri að seinni krafa H ehf. væri þversögn við fyrri kröfu hans þar sem hann hefði ótvírætt þurft að stofna til þess kostnaðar sem sú krafa laut að til að leigja húsnæðið til V ehf. og þar með öðlast lögmætt tilkall til þeirra leigugreiðslna sem fyrri fjárkrafan byggðist alfarið á. Þar sem kröfurnar væru settar fram samhliða væri málatilbúnaður H ehf. að þessu leyti ómarkviss og á reiki en í héraðsdómsstefnu hefði ekki verið gerð grein fyrir því hvernig þær gætu farið saman. Talið var að seinni krafan varpaði ljósi á vanreifun fyrri kröfu H ehf. um þann kostnað sem hann hefði haft af því að reisa húsið fyrir V ehf. sem eðli málsins samkvæmt þyrfti að taka tillit til svo unnt væri að staðreyna ætlað fjárhagslegt tjón hans miðað við réttar efndir samningsins. Taldi Landsréttur slíka annmarka á kröfugerð og málatilbúnaði H ehf. að óhjákvæmilegt væri að vísa málinu án kröfu frá héraðsdómi, sbr. d- og e-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 2. mgr. 25. gr. sömu laga.
...og reglugerð nr. 974/2016 um framsetningu og innihald ársreikninga örfélaga byggt á skattframtölum. Sé í þeim m.a. staðfest að engar slíkar skuldbindingar hafi verið til staðar. Telur stefnandi...
Stefnda gert að greiða stefnanda 56.048.154 krónur með vísan til þess að komist hafi á bindandi húsaleigusamningur, sem hafi verið rift með ólögmætum hætti. Jafnframt var viðurkennd skaðabótaskylda stefnda vegna tjóns stefnanda sem hlaust af breytingu á hönnun hússins.
...og reglugerð nr. 974/2016 um framsetningu og innihald ársreikninga örfélaga byggt á skattframtölum. Sé í þeim m.a. staðfest að engar slíkar skuldbindingar hafi verið til staðar. Telur stefnandi...