Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 910/2014"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 20. nóvember 2024

40/2024

Ísteka ehf (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem staðfest var niðurstaða héraðsdóms um frávísun á máli Í ehf. á hendur Í frá héraðsdómi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Í ehf. leitaði í málinu viðurkenningar á því að matvælaráðherra hefði verið óheimilt að fella alla starfsemi Í ehf. tengda blóðnytjum úr fylfullum hryssum hér á landi undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Hæstiréttur tók fram að Í ehf. hefði í málatilbúnaði sínum ekki rökstutt að fyrirmæli reglugerðarinnar hefðu haft þau áhrif að honum væri ekki unnt að halda áfram starfsemi sinni að svo stöddu. Þvert á móti lægi fyrir að umrædd breyting á stjórnvaldsfyrirmælum hefði enn sem komið er engin áhrif haft á leyfi Í ehf. til starfseminnar. Hefði Í ehf. ekki rökstutt að honum yrði ókleift að halda áfram starfsemi eða með hvaða hætti breytt stjórnvaldsfyrirmæli yrðu honum sérstaklega íþyngjandi. Í ehf. hefði ekki enn lagt fram umsókn um áframhaldandi starfsleyfi eða átt samskipti við stjórnvöld um nánari skilyrði þar um. Væri því óljóst í hverju lögvarðir hagsmunir hans fælust, hvort þeir væru orðnir til og hvaða þýðingu fyrir réttarstöðu hans dómur um viðurkenningarkröfuna hefði eins og hún væri fram sett. Komst Hæstiréttur því að þeirri niðurstöðu að málatilbúnaður Í ehf. um lögvarða hagsmuni sína í skilningi 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 væri svo vanreifaður að efnisdómur yrði ekki felldur á kröfu hans. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.

...66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr sem og reglugerð nr. 910/2014 um velferð hrossa. Loks sagði að sækja þyrfti um frekara leyfi á grundvelli reglugerðar nr. 460...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. október 2024

Z-3149/2024

Landsbankinn hf (Hafsteinn Viðar Hafsteinsson lögmaður) gegn Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og Viktoríu Líf Ellenardóttur (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Ágreiningur máls þessa laut að því hvort Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu bæri að láta fara fram nauðungarsölu á bifreið í eigu varnaraðila, án þess að frumrit veðskuldabréfs yrði lagt fram í samræmi við áskilnað 3. mgr. 11. gr. laga nr. 90/1991. Var það niðurstaða dómsins að ákvæði laga um nauðungarsölu og lögskýringargögn væru skýr um að til þess að nauðungarsala gæti farið fram yrði gerðarbeiðandi að leggja fram frumrit þess og að ekki skipti máli hvort að heimilt væri að þinglýsa rafrænu veðskuldabréfi. Þá var því hafnað að ákvörðun sýslumanns væri í andstöðu við ákvæði reglugerðar ESB nr. 910/2014 (um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti á innri markaðinum) sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 55/2019 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.

...55/2019 segir að reglugerð nr. 910/2014 komi í staðinn fyrir eldri reglugerð um rafræna auðkenningu, en hún nái til fleiri tegunda traustþjónustu auk þess að fjalla um rafræna...