Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 906/2000"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 13. nóvember 2008

28/2008

Reykjavíkurborg (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl, Grímur Sigurðsson hdl) gegn Olíudreifingu ehf (Guðmundur Ágústsson hdl)

Í málinu deildu O ehf. og bæjarfélagið R um skyldu þess síðarnefnda til endurgreiðslu oftekins fasteignaskatts á árunum 2002 og 2003. Byggði R sýknukröfu sína á því að við meðferð málsins hjá Fasteignamati ríkisins, þar sem matsverð eigna O ehf. hafði verið lækkað, hefði ekki verið fylgt nánar tilgreindum ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þannig að varðaði ógildingu ákvörðunar og úrskurðar Fasteignamatsins í málinu. Talið var að af 3. mgr. 31. gr. laga nr. 6/2001 væri ljóst að þegar eigandi fasteignar leitaði sjálfur eftir breytingu á matsverði væri Fasteignamati ríkisins óskylt að greina öðrum frá þeirri ósk eða gefa þeim kost á að láta málið til sín taka og skipti þá engu þótt breyting á matsverði kynni að varða fjárhagslega hagsmuni þeirra vegna gjalda af fasteigninni. Þá var talið að skylda til að tilkynna R yrði ekki leidd af öðrum reglum, enda yrði R ekki talinn aðili að máli um þá ósk í skilningi stjórnsýslulaga. Þar sem R hafði ekki hreyft haldbærum rökum varðandi aðra ætlaða annmarka á málsmeðferðinni var niðurstaða héraðsdóms um greiðsluskyldu R staðfest.

...Þá hafi jafnframt verið lagt á holræsagjald, samkvæmt reglugerð nr. 906/2000, um holræsagjald í Reykjavík, og hafi álagning þess numið 0,115% af fasteignamati húss og lóðar. Vatnsgjald sé...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2007

E-870/2007

Olíudreifing ehf (Guðmundur Ágústsson hdl) gegn Reykjavíkurborg (Benedikt Guðbjartsson hdl)

Stefndi dæmdur til þess að endurgreiða stefnanda fasteignaskatt þar sem fasteignaskattur hafi verið ákvarðaður samkvæmt röngum álagningarstofni á árunum 2002 og 2003, samkvæmt nýju mati Fasteignamats ríkisins.

...Árin 2002 og 2003 hafi stefndi ákvarðað fasteignaskattshlutfall 1,65% af fasteignamati.  Þá hafi jafnframt verið lagt á holræsagjald, samkvæmt reglugerð nr. 906/2000, um holræsagjald í Reykjavík, og hafi...