Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 853/1999"

3 dómar fundust

Hæstiréttur birt 27. september 2007

612/2006

Björn Ófeigsson (Heimir Örn Herbertsson hrl) gegn DDF Vátryggingamiðlun ehf og Markel London Limited til réttargæslu (Marteinn Másson hrl)
Lykilorð: Vátrygging. Skaðabætur.
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Áfrýjandi starfaði sem sölumaður vátrygginga hjá stefnda frá því í ágúst 2002 til febrúar 2003 er hann hlaut alvarlegt hjartaáfall. Í desember 2002 sótti hann um líf- og sjúkdómatryggingu hjá AXA Sun Life International, sem stefndi miðlaði tryggingum fyrir. Tryggingin hafði ekki tekið gildi er stefnandi veiktist í febrúar 2003 og byggði áfrýjandi kröfu sína um skaðabætur á því að í háttsemi stefnda hefði falist saknæm vanræksla á stafsskyldum hans auk þess sem brotið hefði verið gegn góðum og gegnum venjum á starfssviðinu. Ekki þótti unnt að líta framhjá því að áfrýjandi var í senn sölumaður og kaupandi umræddrar tryggingar og að hann bjó yfir mikilli reynslu af sölu á slíkum tryggingum. Að þessu virtu þótti ekki sýnt að stefndi hefði sýnt af sér bótaskylda vanrækslu við meðferð umsóknar áfrýjanda eða brotið gegn góðum vátryggingarmiðlunarháttum og var hann því sýknaður af kröfum áfrýjanda.

...60/1994 um vátryggingastarfsemi og reglugerð nr. 853/1999 um miðlun vátrygginga. Telur stefnandi að sú töf sem hafi orðið á afgreiðslu tryggingabeiðni hans hjá stefnda hafi verið óforsvaranleg og...

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. júní 2006

E-1982/2005

Björn Ófeigsson (Heimir Örn Herbertsson hdl) gegn DDF Vátryggingamiðlun ehf og Markel Limited til réttargæslu (Marteinn Másson hdl)

Starfsmaður vátryggingamiðlunar keypti vátryggingu hjá erlendu tryggingafélagi sem vátryggingamiðlunin annaðist sölu á. Starfsmaðurinn fékk hjartaáfall áður en tryggingin tók gildi og taldi starfsmaðurinn að vátryggingamiðlunin hefði sýnt vanrækslu í meðferð umsóknar hans. Vátryggingamiðlunin var sýknuð af kröfum stefnanda.

...60/1994 um vátryggingastarfsemi og reglugerð nr. 853/1999 um miðlun vátrygginga.  Telur stefnandi að sú töf sem hafi orðið á afgreiðslu tryggingabeiðni hans hjá stefnda hafi verið óforsvaranleg og...

Hæstiréttur birt 6. apríl 2006

150/2005

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn Helgu Markúsdóttur (Helgi Jóhannesson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

H var sakfelld fyrir hafa brotið gegn 2. mgr. 6. gr. og 62. gr. laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga, sbr. 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa sem framkvæmdastjóri H ehf. staðið fyrir því að hafin var miðlun vátrygginga fyrir hönd félagsins í 34 tilvikum árið 1999 án starfsleyfis. Hún var ennfremur sakfelld fyrir umboðssvik, sbr. 249. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa á frá október 1999 til janúar 2000 staðið fyrir því að tveimur erlendum tryggingafélögum voru sendar 23 umsóknir um tryggingar í nafni H ehf., sem þáði umboðslaun fyrir, þó að tryggingatakarnir hefðu veitt starfsmönnum V ehf. umboð til þeirrar ráðstöfunar. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að eftir uppkvaðningu héraðsdóms hafði lögum verið breytt þannig að viðurlög við þeim brotum, sem H hafði gerst sek um samkvæmt I. lið ákæru, voru orðin vægari en áður var. Þá var óumdeilt að hún hafði bætt allt það tjón, sem leiddi af brotum hennar, auk þess sem verulegur dráttur varð á rannsókn málsins og ákvörðun um saksókn. Með hliðsjón af þessu þótti hæfileg refsing vera skilorðsbundið fangelsi í 3 mánuði.

...samhljóða ákvæði í núgildandi reglugerð nr. 853/1999 um sama efni, er að finna skilgreiningu á því hvenær miðlun vátrygginga telst hafin en í 1 tölulið 1. gr. kemur fram...