Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 796/1999"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 4. desember 2025

864/2024

Þórarinn Jónasson (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Mosfellsbæ (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Þ höfðaði mál á hendur M og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu M gagnvart honum vegna hagnýtingar M á grunnvatni úr vatnsbólinu Laxnesdýjum innan marka jarðarinnar Laxnes I í Mosfellsbæ. Bæði Þ og M voru meðal eigenda jarðarinnar. Byggði Þ á því að M hefði með vatnstöku sinni skert með ólögmætum hætti stjórnarskrárvarin eignarréttindi Þ sem sameiganda að jörðinni án þess að greiða bætur fyrir þá hagnýtingu, auk þess sem hagnýting M á vatninu hefði haft í för með sér verulegar og íþyngjandi takmarkanir á hagnýtingu Þ á jörðinni. Með dómi héraðsdóms var M sýknað af kröfum Þ. Í dómi Landsréttar var rakið að samkvæmt 1. mgr. 26. gr. vatnalaga nr. 15/1923 ætti Þ ekki tilkall til endurgjalds vegna hagnýtingar M í þágu vatnsveitu sveitarfélagsins heldur einungis rétt á bótum ylli vatnstakan Þ tjóni. Var málsástæðum Þ varðandi endurgjald fyrir hagnýtingu M því hafnað. Þá vísaði rétturinn til þess að M væri sem sameiganda að jörðinni Laxnesi heimil sú ráðstöfun og nýting sem ekki skerti jafngóðan rétt annarra eigenda til að njóta eignarinnar og ylli þeim ekki meiri óþægindum en vænta mætti miðað við allar aðstæður. Var ekki talið að Þ hefði sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna hagnýtingar M eða takmarkana sem sameigendur í Laxnesi I sættu vegna vatnsverndarkvaða. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu M af kröfum Þ.

...536/2001 um neysluvatn, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns, ásamt síðari breytingum. Í einfölduðu máli myndi þessi svæði verndarhringi í kringum vatnsbólið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2024

E-8286/2020

Þórarinn Jónasson (Benedikt Baldur Tryggvason lögmaður) gegn Mosfellsbæ (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu stefnda vegna hagnýtingar sveitarfélagsins á grunnvatni úr jörðu sem málsaðilar eiga í óskiptri sameign.

...536/2001 um neysluvatn, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns, ásamt síðari breytingum. Í einfölduðu máli myndi þessi svæði verndarhringi í kringum vatnsbólið...