Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 785/2007"
2 dómar fundust
Á, sem var hjúkrunarfræðingur, hafði starfaði fyrir H um tæplega 3 ára skeið, en hún var ráðin til að sinna starfsmannaheilsuvernd á starfssvæði stofnunarinnar. Skömmu fyrir ráðninguna hafði stofnunin gert verksamning við N hf. um þjónustu sem fólst í eftirliti lækna og hjúkrunarfræðings og starfaði Á við framkvæmd samningsins á starfssvæði H. Í júlí 2011 var Á sagt upp störfum. Í rökstuðningi fyrir uppsögn hennar kom fram að N hf. hefði sagt upp verksamningi við H vegna óánægju með tiltekna þætti í samskiptum og í framkvæmd. Væru því brostnar forsendur fyrir verkefni því sem Á hefði verið ráðin til. Á höfðaði mál og krafðist þess að H yrði gert að greiða sér ógreidd laun í uppsagnarfresti, laun vegna frítökuréttar og skaðabætur vegna fjártjóns og miska. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði m.a. að í auglýsingu um starf Á hefði þess ekki verið getið að það væri fyrirfram ætlað fyrir þjónustu við tiltekinn viðsemjanda og ekki kæmi heldur fram um það í ráðningarsamningi Á. Hefði H þó verið unnt að haga gerð samningsins svo að hann væri til ákveðins tíma og hann tengdur verkefnum hjá N hf. Þvert á móti hefði í samningnum komið fram að ráðningin væri til frambúðar. Uppsögn Á ætti rætur að rekja til ástæðna sem tilgreindar væru í 21. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Á hefði hvorki verið gefinn kostur á að tala máli sínu áður en ákvörðun hefði verið tekin um uppsögn né hefði henni verið veitt áminning. Hefði uppsögn Á því verið ólögmæt. Fallist var á það með Á að réttur hennar til forfallalauna vegna veikinda yrði ekki skertur með uppsögn, en hins vegar taldi Hæstiréttur að sá tími lengdi ekki rétt hennar til launa í uppsagnarfresti. Þá taldi Hæstiréttur að ósannað væri að Á ætti rétt til frekari greiðslna vegna frítökuréttar, en hvorki hefði verið lagður fram sundurliðaður útreikningur á því hvernig sá réttur hefði myndast með viðveru Á á vinnustað né hefði verið sýnt fram á að uppfyllt væru þau skilyrði sem tilgreind hefðu verið í kjarasamningi fyrir myndun slíks réttar. Hins vegar var fallist á að Á ætti rétt til bóta vegna fjártjóns og miska, samtals að fjárhæð 2.800.000 krónur.
...447/2009 um breytingu á reglugerð nr. 785/2007 um heilbrigðisumdæmi. Samkvæmt 11. grein verksamnings stefnda við Norðurál hafi samningurinn í upphafi verið gerður til eins árs og skyldi endurskoðaður...
Stefndi sýknaður af kröfu vegna uppsagnar úr starfi.
...447/2009 um breytingu á reglugerð nr. 785/2007 um heilbrigðisumdæmi. Samkvæmt 11. grein verksamnings stefnda við Norðurál hafi samningurinn í upphafi verið gerður til eins árs og skyldi endurskoðaður...