Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 754/2014"
2 dómar fundust
L ehf. krafði LH um greiðslu sex reikninga vegna starfa lögmanna L ehf. sem verjenda við skýrslutökur hjá LH. Aðila greindi á um hvort greiða skyldi lögmönnunum fyrir akstur innan höfuðborgarsvæðisins og hvort L ehf. skyldi að ósk LH gefa tvo af reikningunum út að nýju með annarri kennitölu greiðanda. Jafnframt hvort miða skyldi þóknun vegna starfa verjendanna við reglugerð nr. 715/2009 og viðmiðunarreglur dómstólaráðs eða gjaldskrá lögmannsstofunnar. Í dómi Landsréttar kom fram að L ehf. hefði ekki sýnt fram á að ekki hefði verið tryggð sanngjörn og eðlileg þóknun fyrir verjendastörfin þótt ekki hefði verið greitt sérstaklega fyrir akstur innan höfuðborgarsvæðisins. Auk þess hefði L ehf. verið rétt að verða við þeirri ósk að gefa tvo af reikningunum út að nýju. Þá þótti ekkert fram komið um að ákvarðað tímagjald LH, um þóknun verjendanna á grundvelli reglugerðar nr. 715/2009 og viðmiðunarreglna dómstólaráðs, hefði verið óhæfilega lágt eða að ákvarðanir þar um hafi falið í sér ólögmæta skerðingu á aflahæfi verjendanna og þar með brotið gegn 72. gr. stjórnarskrárinnar. Á hinn bóginn hefði kröfum L ehf. á grundvelli þriggja af reikningunum ekki verið mótmælt að öðru leyti en að því er varðaði akstur. Hefði LH því borið að greiða þann hluta reikningsfjárhæðanna sem var óumdeildur, enda hefði viðtöku á greiðslu ekki verið hafnað að því leyti.
...september 2014 tók gildi reglugerð nr. 754/2014 sem felldi úr gildi reglugerð nr. 715/2009 um tímagjald við ákvörðun þóknunar til verjenda og réttargæslumanna en tók enga afstöðu til...
Deilt um hvort viðmiðunarreglur um þóknun lögmanna samkvæmt sakamálalögum bindi stefnanda við ákvörðun tímagjalds við reikningsgerð gagnvart stefnda
...september 2014 tók gildi reglugerð nr. 754/2014 sem felldi úr gildi reglugerð nr. 715/2009 um tímagjald við ákvörðun þóknunar til verjenda og réttargæslumanna en tók enga afstöðu til...