Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 752/2002"
3 dómar fundust
Stefnandi krafðist bóta vegna ólögmætrar synjunar Tryggingastofnunar á umsókn hans um styrk til bifreiðakaupa. Fallist var á það með stefnanda að synjun stefnda hefði verið ólögmæt þar sem hún byggði á ákvæði reglugerðar sem ekki átti sér fullnægjandi lagastoð. Hins vegar var skaðabótakröfu stefnanda hafnað en tekin til greina þrautavarakrafa um greiðslu vaxta af styrkfjárhæð.
...Framangreind reglugerð nr. 752/2002, um styrki og uppbætur Tryggingastofnunar ríkisins til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, var sett með heimild í 2. mgr. 33. gr. laga nr. 117/1993, um...
Sandra, Jónsdóttir, Jón Már, Halldórsson og Kristín Jónsdóttir (
Steingrímur Þormóðsson hrl)
gegn
Sjóvá-Almennum, tryggingum hf, Brynjari, Sigurðssyni, Hrefnu, Björk Ólafsdóttur og Tryggingamiðstöðinni hf (
Valgeir Pálsson hrl)
S varð fyrir líkamstjóni 13. febrúar 2004 í umferðarslysi þegar B kom akandi á bifreið í eigu H úr gagnstæðri átt og hafnaði á bifreiðinni, sem S ók. Bifreið H var með ábyrgðartryggingu hjá SA. S fékk þungt höfuðhögg við áreksturinn en afleiðingar þess voru heilaáverki með dreifðum skemmdum. Óumdeilt var að SA, B og H báru fulla fébótaábyrgð á tjóni S. Uppgjör fór fram og tók S við greiðslum með fyrirvara og höfðaði máli til heimtu frekari bóta. Hafnað var aðalkröfu S um ómerkingu héraðsdóms, enda varð ekki litið svo á að slíkur misbrestur hefði orðið á því að taka afstöðu til einstakra af fjölmörgum málsástæðum S að varðað gæti ómerkingu dómsins. Einnig var hafnað kröfu S um frekari bætur fyrir varanlegan miska þar sem fallist hafði verið á boð um hærri miskabætur samkvæmt 3. mgr. 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Aftur á móti var tekin til greina krafa um miskabætur samkvæmt 26. gr. sömu laga þar sem B var talinn hafa sýnt af sér stórfellt gáleysi. Þá var talið að útreikningur bóta fyrir varanlega örorku S, sem var 18 ára að aldri á öðru ári í námi við framhaldsskóla þegar hún varð fyrir slysinu, ætti að fara fram miðað við lágmarkstekjur, sbr. 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Jafnframt voru ekki tekin til greina andmæli S við því að til frádráttar bótum kæmi eingreiðsluverðmæti greiðslna til hennar úr almannatryggingum. Krafa S um bætur vegna kostnaðar af sjúkraþjálfun, þjónustu á göngudeild sjúkrahúss og lyfjum var studd áliti læknis og í útreikningum í matsgerð, sem S hafði aflað, var tekið tillit til stuðnings af félagslegum toga, sem hún gæti notið í þessum efnum. Matsgerðinni hafði ekki verið hnekkt að þessu leyti og var krafa S því tekin til greina. Hins vegar var hafnað kröfu S um bætur vegna erfiðari heimilisstarfa, frekara náms eða starfsþjálfunar og aukins kostnaðar af framfærslu fatlaðra, þar sem tjón að þessu leyti hefði ekki verið leitt í ljós. Loks var ekki tekin til greina krafa S á hendur T um bætur úr slysatryggingu ökumanns og heldur ekki krafa foreldra S á hendur SA, B og H vegna tekjutaps, sem þau urðu fyrir vegna umönnunar S.
...vegna styrkja sem stefnandi geti fengið til reksturs bifreiðar vegna fötlunar sinnar, sbr. reglugerð nr. 752/2002. Hvað varði kostnað vegna sjúkraþjálfunar sé byggt á áætlun læknis og á því...
Í málinu var krafist skaðabóta vegna umferðarslyss en ágreiningur í málinu snerist um það hvort fullar bætur hefðu verið greiddar samkvæmt lögum. Dómurinn taldi stefnendur ekki eiga rétt á frekari bótum en þegar höfðu verið greiddar og var sýknað af öllum kröfum stefnenda í málinu.
...vegna styrkja sem stefnandi geti fengið til reksturs bifreiðar vegna fötlunar sinnar, sbr. reglugerð nr. 752/2002. Hvað varði kostnað vegna sjúkraþjálfunar sé byggt á áætlun læknis og á því...