Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 667/1995"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 18. nóvember 2015

745/2015

Háfell ehf (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Vegagerðinni (Þórður Bogason hrl)

H ehf. krafðist þess að fjárnám yrði gert í eigum V til tryggingar kröfu sem félagið hafði öðlast á hendur V og íslenska ríkinu með dómi Hæstaréttar í máli nr. 778/2013. Í málinu lá fyrir að tollstjóri hafði, áður en aðfararbeiðni H ehf. var lögð fram, lýst yfir skuldajöfnuði gegn dómkröfu H ehf. vegna vangoldins virðisaukaskatts félagsins. Við fyrirtöku gerðarinnar féllst sýslumaður á kröfu V um að fella gerðina niður þar sem skuldin hafði þegar verið greidd með skuldajöfnuði. Talið var að skilyrðum skuldajafnaðar hefði verið fullnægt þegar tollstjóri lýsti yfir skuldajöfnuði og að þess réttar hefði hann notið sem innheimtumaður ríkissjóðs án tillits til þess hvort íslenska ríkið hefði verið dómfelldi í áðurgreindu máli. Var því fallist á það með V að krafa H ehf. hefði þegar verið greidd með skuldajöfnuði og að sýslumanni hefði verið rétt að stöðva framgang gerðarinnar.

...Á grundvelli laga um virðisaukaskatt hafi verið sett reglugerð nr. 667/1995 um framtal og skil á virðisaukaskatti. Mælt sé fyrir um skuldajöfnun í 5. mgr. 10. gr. hennar. Þar...