Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 630/2008"
1 dómar fundust
A höfðaði mál gegn Í og krafðist bóta vegna tjóns sem hún taldi sig hafa orðið fyrir vegna háttsemi tollgæsluyfirvalda gagnvart henni. Tollgæslustjóri hafði synjað A um undanþágu frá greiðslu aðflutningsgjalda en yfirskattanefnd fellt úrskurð hans úr gildi. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að svo að ákvörðun verði talin saknæm vegna rangrar lagatúlkunar nægi almennt ekki að æðra sett stjórnvald hafi komist að niðurstöðu um að hún hafi verið röng heldur verði að áskilja að ákvörðunin teljist ekki hafa verið réttlætanleg eða verjanleg, það er að við töku hennar hafi verið vikið þannig frá almennt viðurkenndri réttarheimildafræði, hinni lagalegu aðferð, að saknæmt teljist. Þótt óumdeilt væri að lagatúlkun tollgæslustjóra hefði ekki verið rétt yrði ekki talið að úrlausnir stofnunarinnar, þar sem vísað hefði verið til gildandi laga- og reglugerðarákvæða og lögskýringargagna og komist að rökstuddri niðurstöðu, hefðu falið í sér slíkt frávik frá viðurkenndum sjónarmiðum um beitingu hinnar lagalegu aðferðar eða viðmiðum um háttsemi starfsmanna stjórnsýslunnar að úrlausnirnar yrðu metnar þeim starfsmönnum sem að þeim stóðu eða Í til sakar. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu Í af kröfum A.
...Í úrskurði tollgæslustjóra er vísað til helstu ákvæða sem hér skipta máli í tollalögum og reglugerð nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindi. Þar segir síðan að í 4 athugasemdum við...