Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 602/1997"

4 dómar fundust

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

372/2017

Jónína Björk Þorvaldsdóttir (Hlynur Jónsson hrl, Áslaug Árnadóttir hrl, 4. prófmál) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Lykilorð: Skuldabréf. Fyrning. Gjafsókn.

L krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður málskotsnefndar L þar sem ákvörðun stjórnar L var felld úr gildi og skuld J vegna námslána samkvæmt tveimur skuldabréfum felld niður. Vanskil urðu á endurgreiðslu J á námsláni frá og með gjalddaga í mars 2009, en J gaf út sérstakt vanskilaskuldabréf í mars 2015. Deildu aðilar einkum um fyrningarfrest skuldarinnar og við hvaða tímamark skyldi miða í því sambandi. Fallist var á með J að bæði skuldabréfin hefðu orðið gjaldkræf tveimur árum eftir ákvörðuð námslok, sem var sama tímamark fyrir bæði skuldabréfin. Á hinn bóginn var fallist á það með L að honum hefði verið rétt að ráðstafa greiðslum J samkvæmt 8. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna fyrst inn á eldra lánið. Það væri meginregla kröfuréttar að þegar kröfuhafi ætti margar kröfur á hendur sama skuldara ætti skuldarinn val um inn á hvaða skuld hann ráðstafaði greiðslu hverju sinni. Léti skuldari engin fyrirmæli fylgja greiðslu sinni bæri að miða við að hann eftirléti kröfuhafa frjálst val um inn á hvaða skuld greiðslunni skyldi ráðstafað. Með því að greiða athugasemdalaust greiðsluseðla sem L sendi hefði J samþykkt í verki fyrirkomulag innheimtunnar. Á meðan J greiddi inn á námslán sitt í samræmi við fyrirmæli 8. gr. laga nr. 21/1992 hefði hvorugt skuldabréfanna verið í vanskilum. Þá var vísað til þess að krafa L væri samkvæmt skuldabréfi sem samkvæmt 1. tölulið 4. gr. laga nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda fyrndist á 10 árum. Ekki var fallist á með J að rök stæðu til þess að fyrirmæli í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 21/1992 um aðfararheimild yrðu lögð að jöfnu við ákvæði áðurgildandi laga um lögtaksrétt þannig að 4 ára fyrningarfrestur 3. töluliðar 3. gr. laga nr. 14/1905 yrði talinn gilda um kröfuna. Þótti ljóst að kröfur L samkvæmt báðum skuldabréfunum væru ófyrndar. Í því ljósi hefðu ekki verið efni til þess að víkja til hliðar loforði J um greiðslu samkvæmt vanskilaskuldabréfinu á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga svo sem gert hafði verið í úrskurði málskotsnefndar L. Með vísan til alls framangreinds var úrskurður málskotsnefndar L því felldur úr gildi.

...Stefnandi kveðst einnig byggja á því að taka hefði þurft fram í reglugerð nr. 602/1997 ef ætlunin hefði verið að breyta framkvæmd innheimtu tveggja eða fleiri námslána í sama...

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

731/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Silvíu Rós Sigurðardóttur (Einar Hugi Bjarnason hrl, Þorsteinn I. Valdimarsson hdl, 1. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur S samkvæmt skuldabréfi sem hún gaf út til L vegna námslána. Bú S var tekið til gjaldþrotaskipta í desember 2014 og við lok þeirra 2. mars 2015 hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur S háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að S hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skuldar við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

...áður reglugerð nr. 602/1997, fyrir því að fá námslán eigi rétt á námslánum í samræmi við markmið og tilgang stefnanda. Stefnanda sé skylt að veita öllum þeim sem uppfylli...

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. maí 2017

E-276/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Jónínu Björk Þorvaldsdóttur (Hlynur Jónsson hrl)
Lykilorð: Ógildingarmál.

Ekki var fallist á að námslánaskuld stefndu væri fallin niður vegna fyrningar. Felldur var úr gildi úrskurður málskotsnefndar Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá 25. janúar 2017 þar sem námslánaskuld stefndu samkvæmt tveimur skuldabréfum var felld niður.

...Stefnandi kveðst einnig byggja á því að taka hefði þurft fram í reglugerð nr. 602/1997 ef ætlunin hefði verið að breyta framkvæmd innheimtu tveggja eða fleiri námslána í sama...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2016

E-554/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Sylvíu Rós Sigurðardóttur (Sigurður Árnason hdl)

Ágreiningur var uppi um hvort skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. um sérstaka hagsmuni af fyrningarslitum væri fullnægt, sem og skilyrði um hvort líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfu á fyrningartíma. Var hvorugu skilyrðinu talið fullnægt. Var kröfu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um fyrningarslit á kröfu á grundvelli námsláns því hafnað.

...áður reglugerð nr. 602/1997, fyrir því að fá námslán eigi rétt á námslánum í samræmi við markmið og tilgang stefnanda. Stefnanda sé skylt að veita öllum þeim sem uppfylli...