Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 585/2011"
3 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli F á hendur Í og A var vísað frá dómi. Málið höfðaði F til ógildingar á ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um útgáfu meistarabréfs í pípulögnum til handa A. Í hinum kærða úrskurði, sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna, var komist að þeirri niðurstöðu að F hefði borið að beina dómkröfum sínum að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem tekið hefði umrædda ákvörðun en ákvörðunin hefði ekki sætt endurskoðun á æðra stjórnsýslustigi. Krefðist Í frávísunar málsins á þessum grunni og yrði að fallast á hana af framangreindum sökum en stjórnvaldsákvörðuninni yrði ekki hnekkt fyrir dómi nema viðeigandi stjórnvald hefði aðild að úrlausn dómsmálsins. Þá var ekki fallist á með F að það hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómkröfunnar. Var kröfum F því vísað frá dómi.
...Með reglugerð nr. 585/2011 hafi ráðherra mælt nánar fyrir um framangreinda álitsumleitan og með 6. gr. hennar hafi ráðherra falið ENIC/NARIC að afla þeirra umsagna sem lögin áskilja...
Félag pípulagningameistara höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og A og krafðist ógildingar á ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um útgáfu meistarabréfs í pípulögnum til handa A. Stefndu kröfðust frávísunar málsins. Í úrskurði héraðsdóms var annars vegar talið að stefnanda hefði borið að beina kröfum sínum að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, sem tók hina umdeildu stjórnvaldsákvörðun. Hins vegar hefði Félag pípulagningameistara ekki þá lögvörðu hagsmuni sem áskildir væru til að krefjast ógildingar atvinnuréttinda annars manns fyrir dómi. Var málin því vísað frá dómi.
...Með reglugerð nr. 585/2011 hafi ráðherra mælt nánar fyrir um framangreinda álitsumleitan og með 6. gr. hennar hafi ráðherra falið ENIC/NARIC að afla þeirra umsagna sem lögin áskilja...
Hafnað kröfu stefnanda um að við uppgjör gagnvart honum um bætur vegna líkamstjóns skyldi miða við 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
...Þótt vera kunni að tilefni hafi verið til þess af hálfu stefnanda að bregðast við umfjöllun stefnda í greinargerð um þýðingu viðurkenningar iðnréttinda hans samkvæmt reglugerð nr. 585/2011 um...