Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 563/1989"
2 dómar fundust
V ehf. og japanska fyrirtækið H voru í viðskiptum frá árinu 1999 til 2005 vegna sölu á beitu. H krafði V ehf. um eftirstöðvar skuldar samkvæmt reikningum útgefnum af H vegna þessara viðskipta frá 9. febrúar 2001 til 25. febrúar 2005. Í málinu lá fyrir skjal undirritað af fyrirsvarsmanni V ehf. sem H kvað geyma sundurliðun umkrafinnar skuldar og handritaða greiðsluáætlun V ehf. vegna hennar. Því var mótmælt af hálfu V ehf. sem gaf aðrar skýringar á tilurð og efni skjalsins. Ekki var fallist á að þær skýringar ættu við rök að styðjast og talið að skjalið hefði að geyma viðurkenningu V ehf. á skuld félagsins við H. Þá þótti H ekki hafa sýnt af sér tómlæti við að halda fram kröfu sinni og var niðurstaða héraðsdóms um greiðsluskyldu V ehf. staðfest. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu miðuðust dráttarvextir af fjárhæðinni við þær dagsetningar sem tilgreindar voru á skjalinu.
...sömu laga og reglugerð nr. 563/1989. Krafa um málskostnað styðjist við 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991. Niðurstöður Samkvæmt málatilbúnaði stefnanda og gögnum málsins krefst stefnandi greiðslu...
Stefnandi krafði stefnda um greiðslu reikninga og var krafan tekin til greina að mestu. Kröfu stefnda um skuldajöfnuð vegna tveggja reikninga stefnda á hendur stefnanda var hins vegar hafnað.
...sömu laga og reglugerð nr. 563/1989. Krafa um málskostnað styðjist við 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991. Niðurstöður Samkvæmt málatilbúnaði stefnanda og gögnum málsins krefst stefnandi greiðslu...