Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 527/1997"
2 dómar fundust
Árekstur varð í ytri höfn Reykjavíkur með sæþotu og slöngubát með þeim afleiðingum að A, farþegi á sæþotunni, varð fyrir líkamstjóni. A höfðaði mál á hendur B og C, sem stýrðu sjóförunum, til viðurkenningar á bótaskyldu. Í hinum áfrýjaða dómi var viðurkennd óskipt skaðabótaskylda B og C. Áfrýjaði B dóminum fyrir sitt leyti. Í dómi Landsréttur var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest er varðar B. Litið var til alþjóðareglna um árekstra á sjó, matsgerðar dómkvaddra matsmanna og myndupptöku af atvikinu við mat á bótaskyldu. Var B ekki talinn hafa veitt slöngubátnum næga athygli, sem takmarkaði hvaða viðbrögð unnt var að grípa til þegar í óefni var komið. Jafnframt var B talinn hafa siglt of hratt miðað við aðstæður og að hann hefði ekki gætt að því hvort hætta væri á árekstri og ekki framkvæmt rétt stjórntök í tæka tíð til að forða árekstri. Var framangreint háttalag B ekki talið samræmast reglum 6, 7. 8 og 14. gr. nefndra alþjóðareglna. Var því siglingarlag B því metið honum til sakar. Hvorki var talið tilefni til að víkja frá meginreglu skaðabótaréttar um fulla og óskipta bótaábyrgð né að takmarka bótarétt A vegna eigin sakar eða áhættutöku.
...Réttargæslustefndi Samgöngustofa bendir á að um mælingu skipa gildi reglugerð nr. 527/1997 þar sem fjallað sé um skráningarlengd skipa og mestu lengd. Það sé ekki útilokað að bátur sem...
Ákærði sýknaður af broti gegn siglingalögum o.fl.
...Við mælingu báta væri farið eftir reglugerð nr. 527/1997 og verklagsreglu nr. 2503020202. Starfið annist viðurkenndir mælingamenn en meðal þeirra séu einhverjir starfsmenn Siglingastofnunar sem hafi haldið eldri réttindum...