Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 520/2015"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 21. nóvember 2024

732/2023

Bjarni Pálsson (Árni Ármann Árnason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórhildur Lilja Ólafsdóttir lögmaður)

B krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda R vegna breytinga á deiliskipulagi á jörð hans. Byggði B kröfu sína á 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem hefur að geyma hlutlæga bótareglu sem kveður á um að leiði skipulag eða breyting á skipulagi til þess að verðmæti fasteignar skerðist verulega, umfram það sem eigi við um sambærilegar eignir í næsta nágrenni, eigi sá sem geti sýnt fram á tjón af þeim sökum rétt á bótum frá viðkomandi sveitarfélagi. Í dómi Landsréttar kom fram að B beri sönnunarbyrði um að orsakatengsl séu á milli breytingarinnar og þess að verðmæti fasteigna hans skerðist verulega, umfram það sem við á um sambærilegar eignir í næsta nágrenni. Í málinu lægi fyrir matsgerð Ó og Þ. Voru niðurstöður matsgerðar- innar raktar og talið að hún fæli ekki í sér sönnun fyrir því að deiliskipulagsbreytingin hefði leitt til þess að verðmæti fasteigna B hafi orðið fyrir verulegri skerðingu, umfram það sem ætti við um sambærilegar eignir í næsta nágrenni. Þá hefði B ekki aflað yfirmats eða viðbótarmats og ekki vísað til annarra gagna sem fælu í sér sönnun á þeim bótaskilyrðum sem áskilið er að fullnægt sé svo fallist yrði á bótaskyldu. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu R af viðurkenningarkröfu B.

...Þar af leiðandi giltu fjarlægðarmörkin ekki um núverandi byggingar, enda væri ekki gert ráð fyrir slíku í reglugerð nr. 520/2015. Hvað varðaði athugasemdir stefnanda um að með breytingunni yrði...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. október 2023

E-3267/2021

Bjarni Pálsson (Árni Ármann Árnason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórhildur Lilja Ólafsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Skipulag.

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á stefndi hefði bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart stefnanda í samræmi við 51. gr. skipulagslaga með því að breyta deiliskipulagi fyrir Brautarholt á Kjalarnesi á árinu 2016 þannig að heimilt væri að reka þar alifuglabú. Ekki var talið að verðmæti fasteignar stefnanda hefði skerst verulega með deiliskipulagsbreytingunni eins og áskilið væri í lagaákvæðinu. Úrslitum réð að sambærileg starfsemi var þegar til staðar í Brautarholti en þar hefur verið rekið svínabú um langt árabil.

...Þar af leiðandi giltu fjarlægðarmörkin ekki um núverandi byggingar, enda væri ekki gert ráð fyrir slíku í reglugerð nr. 520/2015. Hvað varðaði athugasemdir stefnanda um að með breytingunni yrði...