Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 516/2011"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 23. nóvember 2018

78/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Jens Gunnarssyni (Eiríkur Elís Þorláksson lögmaður) og Pétri Axel Péturssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

J var sakfelldur fyrir brot gegn þagnarskyldu í starfi sínu sem lögreglumaður og P fyrir hlutdeild í þeim brotum með því að J veitti P upplýsingar sem þagnarskylda ríkti um. Þá var J sakfelldur fyrir spillingu með því að hafa, í tengslum við framkvæmd starfa sinna, heimtað í SMS-skilaboðum peninga af P. Einnig var J sakfelldur fyrir brot í opinberu starfi sem lögreglumaður þar sem hann hafði ekki gætt lögmæltra aðferða við meðferð máls eða úrlausn þar sem hann var í upplýsingasambandi við P, án vitundar yfirmanna sinna og í andstöðu við ákvæði III. kafla reglna innranríkisráðherra um sérstakar aðgerðir við rannsókn sakamála og reglna ríkissaksóknara um samskipti lögreglu við upplýsingagjafa við rannsókn máls. Þá var P einnig sakfelldur fyrir fíkniefnabrot og vopnalagabrot. Hins vegar var J sýknaður af ákæru um spillingu fyrir að hafa tekið á móti tveimur símum frá P í því skyni að geta átt í upplýsingasamskiptum við P. Jafnframt var J sýknaður fyrir brot í opinberu starfi sem lögreglumaður með því að hafa varðveitt tiltekið magn af amfetamíni, vefaukandi sterum, testósterón prípíónati og tvær loftskammbyssur í skrifborðsskúffu á vinnustað sínum. Refsing J var ákveðin fangelsi í 15 mánuði, að frádregnu gæsluvarðhaldi. Refsing P var ákveðin fangelsi í níu mánuði. Þá voru gerð upptæk efni og vopn sem fundust hjá P.

...Fram hefur komið að reglur ríkissaksóknara misstu gildi sitt við gildistöku reglna innanríkisráðherra, sem einnig hafa verið gefnar út sem reglugerð nr. 516/2011. Framangreindar reglur voru ítarlega kynntar starfsmönnum...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2017

S-893/2016

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl), Y (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) og Z (Eiríkur Elís Þorláksson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Tveir ákærðu voru skafelldir fyrir brot í opinberu starfi og hlutdeild í þeim en einn sýknaður.

...Fram hefur komið að reglur ríkissaksóknara misstu gildi sitt við gildistöku reglna innanríkisráðherra, sem einnig hafa verið gefnar út sem reglugerð nr. 516/2011. Framangreindar reglur voru ítarlega kynntar starfsmönnum...