Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 503/2005"

3 dómar fundust

Hæstiréttur birt 18. maí 2017

563/2016

Matvælastofnun (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Kræsingum ehf (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

K ehf. krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur sinn til skaðabóta vegna tilkynningar sem M hafði birt á heimasíðu sinni um niðurstöður rannsóknar á kjötinnihaldi íslenskra matvara. Hafði M m.a. keypt eina pakkningu með tveimur nautabökum frá K ehf. og hafði rannsókn á þeim leitt í ljós að ekkert kjöt var í bökunum. Kom sú niðurstaða fram í umræddri tilkynningu, sem birt var á heimasíðu M. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ljóst væri af ákvæðum laga nr. 93/1995 um matvæli og reglugerðum settum samkvæmt lögunum, að það hefði verið á verksviði Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að annast um eftirlit með framleiðslu og dreifingu K ehf. á matvælum. Þá hefði það verið sami eftirlitsaðili sem hefði haft heimild til þess að birta niðurstöður úr slíku eftirliti. Hefði M því brostið heimild að lögum til þess að standa að birtingu tilkynningarinnar, sem hefði samkvæmt því verið ólögmæt. Þá hefði M borið að gæta þess að rannsóknin á vörum K ehf. yrði hagað í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttarins og þess m.a. gætt að fullnægjandi rannsókn færi fram og þar með útilokað að um einstaka mistök eða óhappatilvik væri að ræða. Hefði rannsókn á innihaldi einnar pakkningar af nautabökum K ehf. ekki getað talist fullnægjandi grundvöllur þeirrar opinberu upplýsingamiðlunar um framleiðslu K ehf. sem átti sér stað í framhaldinu og hefði a.m.k. mátt gera þá kröfu að slík rannsókn yrði endurtekin með frekari sýnatöku áður en almenningi væri kynnt að umrædd vara K ehf. væri haldin þeim ágalla sem fullyrt var. Hefði meðferð málsins samkvæmt því einnig verið haldin slíkum annmörkum af hálfu starfsmanna M að skilyrðinu um saknæmi væri jafnframt fullnægt.Var niðurstaða héraðsdóms um viðurkenningu á skaðabótaskyldu M því staðfest.

...Stefnandi tekur fram að í reglugerð nr. 503/2005 um merkingu matvæla felist engin heimild til birtingar tilkynninga á borð við þá sem deilt er um í málinu. Þar komi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júní 2016

E-2478/2015

Kræsingar ehf (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Matvælastofnun (Óskar Sigurðsson hrl)

Krafist var viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda, Matvælastofnunar, vegna tjóns sem stefnandi, Kræsingar ehf., varð fyrir vegna tilkynningar sem birt var af stefnda á heimasíðu hans 27. febrúar 2013 um framleiðslu stefnanda. Fallist var á kröfuna.

...Stefnandi tekur fram að í reglugerð nr. 503/2005 um merkingu matvæla felist engin heimild til birtingar tilkynninga á borð við þá sem deilt er um í málinu. Þar komi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. febrúar 2014

E-2381/2011

HOB-vín ehf (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (Skúli Bjarnason hrl)

Ógildingarkröfum stefnanda var vísað frá dómi en hluti af skaðabótakröfu hans tekin til greina.

...Stefnda hafi einnig borið að taka mið af reglugerð nr. 503/2005 um merkingu matvæla. Þar hafi í 5. gr. verið kveðið á um að merking megi ekki vera villandi...