Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 499/1997"
2 dómar fundust
Þ höfðaði mál og krafðist þess að nánar tiltekin ummæli, sem birtust í aðsendri grein eftir A á vefmiðlinum Kjarninn.is 13. júní 2016, yrðu dæmd dauð og ómerk. Jafnframt að A yrði dæmd til refsingar vegna þeirra og henni gert að greiða sér miskabætur. Héraðsdómur vísaði frá dómi kröfu Þ um að A yrði dæmd til refsingar fyrir ummæli sín en sýknaði hana af öðrum kröfum Þ. Í dómi sínum vísaði Landsréttur til þess að þar sem Þ hefði ekki gætt að því að skjóta til Landsréttar ákvæði héraðsdóms um frávísun eftir reglum XXIV. kafla laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, kæmi ákvæðið ekki til skoðunar fyrir réttinum, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 552/2017. Hvað varðaði ummæli A lagði Landsréttur til grundvallar að hún hefði eingöngu verið að lýsa sinni persónulegu upplifun og þar með skoðun sem henni yrði ekki gert að færa sönnur á. Þá taldi Landsréttur nægilega í ljós leitt að hluti ummæla A hefði ekki verið tilefnislaus með öllu eða úr lausu lofti gripinn auk þess sem hluti þeirra var ekki talinn fela í sér meira en vangaveltur hennar. Af þessum sökum voru ummælin ekki talin fela í sér ærumeiðandi aðdróttun í skilingi 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 eða móðgun í skilningi 234. gr. sömu laga.
...15/1994, um dýravernd og reglugerð nr. 499/1997, um dýrahald í atvinnuskyni. Stefnda rekur í greinargerð sinni deilur og opinbera umfjöllun um meðferð stefnanda á landinu í Laxnesi, samskipti...
Meiðyrðamál. Stefnda var sýknuð af kröfu um ómerkingu ummæla og af fjárkröfum, en kröfu um refsingu var vísað frá dómi.
...15/1994, um dýravernd og reglugerð nr. 499/1997, um dýrahald í atvinnuskyni. Stefnda rekur í greinargerð sinni deilur og opinbera umfjöllun um meðferð stefnanda á landinu í Laxnesi, samskipti...