Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 467/2015"
2 dómar fundust
Z höfðaði mál og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður H sem staðfesti ákvörðun L um að hafna því að gefa út til handa Z svokallað CCPS-vottorð, þ.e. vottorð um formlega menntun og hæfi sem staðfesti að nám Z hafi uppfyllt skilyrði tilskipunar 2005/36/EB. Héraðsdómur leitaði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um hvernig túlka beri ákvæði umræddrar tilskipunar að þessu leyti. Í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins kom fram að ef EES-ríki býður ekki upp á sérnám í tilteknu fagi, en hyggst gefa út vitnisburð um formlega menntun og hæfi á grundvelli náms, verði það að gera námsáætlun eða skipulag fyrir námskrá og heildstætt nám sem sýnt sé að standist kröfur 25. gr. tilskipunarinnar um sérnám í læknisfræði. Landsréttur vísaði til þess að lögbært yfirvald á Íslandi hafi ekki boðið upp á nám á sviði lýtalækninga sem fullnægi kröfum 2. mgr. 25. gr. tilskipunarinnar um fræðilegt og verklegt nám. Það verklag að fela sérfræðinefnd mat um það hvaða kröfur verði gerðar til fræðilegs og verklegs náms á þessu sviði tryggi ekki með fullnægjandi hætti gagnsætt kerfi sem geti tryggilega staðfest að uppfyllt séu skilyrði 25. gr. tilskipunarinnar. Þótt L hefði áður gefið út slík vottorð, sem samkvæmt framangreindu fóru í bága við efni tilskipunar 2005/36/EB, bar L við nýja ákvörðun að fara eftir þeim reglum sem voru í gildi um skilyrði þess að unnt væri að gefa út CCPS-vottorð. Að framangreindu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
...Lagaheimild skorti fyrir ákvörðun stefnda og ákvörðunin verði ekki byggð á reglugerð nr. 467/2015, enda hafi sérfræðileyfi stefnanda þegar öðlast gildi áður en sú reglugerð hafi verið sett. Þá...
Sænskur læknir krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður heilbrigðisráðuneytisins um að staðfesta þá ákvörðun embættis landlæknis um að synja lækninum um útgáfu svokallaðs CCPS-vottorðs. Kröfu læknisins var hafnað.
...Lagaheimild skorti fyrir ákvörðun stefnda og ákvörðunin verði ekki byggð á reglugerð nr. 467/2015, enda hafi sérfræðileyfi stefnanda þegar öðlast gildi áður en sú reglugerð hafi verið sett. Þá...