Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 46/1991"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 9. nóvember 2000

195/2000

Jökull Sigtryggsson og Valgerður Kristjánsdóttir (Andri Árnason hrl) gegn Héraðsnefnd Austur-Húnvetninga, Félagi eldri borgara í, Austur-Húnavatnssýslu, til réttargæslu, Íbúðalánasjóði, íslenska ríkinu, Kaupleiguíbúð, Kaupskylda. Sveitarstjórn. Innlausnarfrestur. Sératkvæði, Félag eldri borgara í A og héraðsnefnd A lögðu, fram umsókn um lán til Húsnæðisstofnunar ríkisins þegar undirbúningur hófst að, byggingu félagslegra íbúða á Blönduósi á árinu 1989. J og V fengu almenna, kaupleiguíbúð afhenta í janúar 1993. Í júní 1998 óskuðu þau eftir að F leysti, til sín íbúðina. Stjórn F samþykkti að verða við óskum J og V fyrir sitt leyti, en vísaði málinu að öðru leyti til H. Talið var að V og J hefðu beint, innlausnarkröfu sinni réttilega að F og hefði sú innlausnarkrafa bundið, nefndina ef því hefði verið að skipta. Hins vegar hefði krafan komið fram þegar, liðin voru fimm ár og fjórir mánuðir frá því að þau fengu íbúð sína afhenta, samkvæmt ákvæði 83. gr. laga nr. 97/1993, sbr. lög nr. 58/1995 hefði kaupskylda, framkvæmdaraðila á almennum kaupleiguíbúðum þá verið fallin niður, en við, tekinn forkaupsréttur hans, væri íbúðin boðin til sölu. Þar sem H hafði neitað, innlausnarskyldu sinni var hann sýknaður af kröfum V og J. Héraðsdómur hafði, fallist á kröfur J og V á hendur F og var sú niðurstaða staðfest, þar sem F og skilaði ekki greinargerð til Hæstaréttar (Jón Sveinsson hrl)

Félag eldri borgara í A (F) og héraðsnefnd A (H) lögðu fram umsókn um lán til Húsnæðisstofnunar ríkisins þegar undirbúningur hófst að byggingu félagslegra íbúða á Blönduósi á árinu 1989. J og V fengu almenna kaupleiguíbúð afhenta í janúar 1993. Í júní 1998 óskuðu þau eftir að F leysti til sín íbúðina. Stjórn F samþykkti að verða við óskum J og V fyrir sitt leyti, en vísaði málinu að öðru leyti til H. Talið var að V og J hefðu beint innlausnarkröfu sinni réttilega að F og hefði sú innlausnarkrafa bundið nefndina ef því hefði verið að skipta. Hins vegar hefði krafan komið fram þegar liðin voru fimm ár og fjórir mánuðir frá því að þau fengu íbúð sína afhenta og samkvæmt ákvæði 83. gr. laga nr. 97/1993, sbr. lög nr. 58/1995 hefði kaupskylda framkvæmdaraðila á almennum kaupleiguíbúðum þá verið fallin niður, en við tekinn forkaupsréttur hans, væri íbúðin boðin til sölu. Þar sem H hafði neitað innlausnarskyldu sinni var hann sýknaður af kröfum V og J. Héraðsdómur hafði fallist á kröfur J og V á hendur F og var sú niðurstaða staðfest, þar sem F skilaði ekki greinargerð til Hæstaréttar.

...86/1989 um kaupleigíbúðir og reglugerð nr. 46/1991 um félagslegar íbúðir og Byggingarsjóð verkamanna, er giltu á þeim tíma, sem hér er til álita. Í 32. gr. laganna var...

Hæstiréttur birt 18. febrúar 1999

379/1998

Íbúðalánasjóður (Friðjón Örn Friðjónsson hrl) gegn Akraneskaupstað (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Við nauðungarsölu félagslegrar íbúðar í apríl 1992 varð Byggingarsjóður verkamanna, B, hæstbjóðandi. Við nauðungarsöluna reis ágreiningur um hvort sveitarfélaginu A bæri skylda til þess að leysa til sín íbúðina samkvæmt 100. gr. laga nr. 86/1988 um Húsnæðisstofnun ríkisins, eins og því ákvæði hafði verið breytt með lögum nr. 70/1990. Afsal var gefið út til B í febrúar 1993 en B krafðist þess í júlí 1996 að A leysti til sín eignina. Talið var að orðalag 100. gr. laganna yrði ekki skýrt á annan veg en að skylda hefði hvílt á A til að kaupa umrædda íbúð og hann hefði ekki átt neitt val í þeim efnum. Þá var það engu talið breyta um skyldu A til þess að axla slíkt lögákveðið verkefni að B hafði dregið það lengur en þurfti að leita réttar síns. Að lokum var það ekki talið hafa þýðingu fyrir úrslit málsins að B hafði tekið við afsali án sérstaks fyrirvara um innlausnarskyldu A. Var fallist á kröfu Í, sem tekið hafði við hlutverki B, um að A yrði gert að leysa til sín íbúðna.

...Samkvæmt reglugerð nr. 46/1991 um félagslegar íbúðir og Byggingarsjóð verkamanna, sem sett hafi verið með stoð í lögum nr. 86/1988 sé það hlutverk sveitarstjórnar að taka ákvörðun um...