Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 44/2003"
2 dómar fundust
Ágreiningur málsaðila sneri að viðskiptum með bifreið en þá greindi á um hvenær samningur komst á um kaup og sölu hennar og á milli hverra. Þá laut ágreiningur þeirra jafnframt að því hvort uppfyllt hafi verið skilyrði riftunar samningsins og um greiðslu skaðabóta vegna ætlaðra vanefnda hans. Í dómi Landsréttar var rakið að samkvæmt samskiptum aðila, sem lágu fyrir á meðal gagna málsins, væri ljóst að bindandi samningur um kaup og sölu bifreiðarinnar hafi komist á 26. nóvember 2019. Þá hafi fyrsta greiðsla kaupverðsins verið innt af hendi 6. desember sama ár með 1.500.000 króna innborgun IC ehf. á reikning N ehf. Með hliðsjón af atvikum, gögnum málsins og málatilbúnaði áfrýjenda, var hafnað málsástæðum þeirra um aðildarskort til sóknar og varnar. Þá var rakið að ekki hafi verið samið sérstaklega um gjalddaga greiðslna eða afhendingu bifreiðarinnar. Þótt IC ehf. hafi ekki greitt eftirstöðvar kaupverðsins innan þeirra tímamarka sem áfrýjendur settu fram einhliða, fælist ekki í því greiðsludráttur af hálfu IC ehf. Skilyrði riftunar samningsins hafi því ekki verið fyrir hendi er áfrýjendur tilkynntu IC ehf. að þeir hygðust selja bifreiðina þriðja aðila. Samningur málsaðila hafi því enn verið í gildi þegar bifreiðin var seld þriðja aðila degi síðar. Í sölu bifreiðarinnar til þriðja aðila hafi falist veruleg vanefnd áfrýjenda á samningi þeirra við IC ehf. Félagið teldist hafa rift samningnum 2. janúar 2020. Hafi áfrýjendum þá borið að endurgreiða IC ehf. þá fjárhæð sem greidd hafði verið inn á kaupverðið ásamt nánar tilgreindum dráttarvöxtum, en áfrýjendur voru ekki taldir hafa sýnt fram á að þeir hefðu öðlast rétt til að halda nokkru eftir af því sem móttekið var. Annað það sem áfrýjendur færðu fram til stuðnings sýknukröfu sinni í málinu var ekki talið geta haggað þeirri niðurstöðu. Samkvæmt framangreindu var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
...laga um verslunaratvinnu né reglugerð nr. 44/2003. Virða þurfi frestinn með tilliti til þess hversu langur tími var liðinn frá því að aðilar sammæltust um að ljúka bifreiðakaupunum. Í...
Stefndu, seljandi og bifreiðasali, voru dæmdir til að greiða óskipt stefnanda skaðabætur vegna galla í bifreið. Bifreiðasalinn var talinn hafa vanrækt starfsskyldur sínar. Seljandi bar ábyrgð samkvæmt lögum um lausafjárkaup.
...28/1998 og reglugerð nr. 44/2003 séu ítarleg ákvæði um þær upplýsingar sem bifreiðasali skuli afla og liggja frammi við sölu bifreiðar. Þessar skyldur hafi bifreiðasalinn eða starfsmenn hans...