Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 425/2002"

1 dómar fundust

Landsréttur birt 27. mars 2020

471/2019

Þorsteinn Magnússon og Þóra Sumarlín Jónsdóttir (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn Vilhelmínu Sigríði Smáradóttur og Svanberg Guðleifssyni (Jón Magnússon lögmaður)

V og S, sem höfðu keypt fasteign af ÞM og ÞSJ, töldu að slíkir annmarkar væru á ástandi hússins að um væri að ræða verulegan galla í skilningi fasteignakaupalaga nr. 40/2002 og þau hefðu verið blekkt í viðskiptunum. Undir meðferð málsins var aflað undir- og yfirmatsgerðar þar sem einkum var lagt mat á frágang rakavarnar fasteignarinnar og var niðurstaða í báðum tilfellum sú að frágangi rakavarnarlags fasteignarinnar væri ábótavant. Í dómi Landsréttar var talið að frágangur rakavarnar fasteignarinnar hafi verið andstæður viðurkenndum vinnubrögðum og góðri venju og væri því um galla að ræða í skilningi 18. og 19. gr. laga nr. 40/2002 og leyndan galla, sbr. 2. mgr. 29. gr. sömu laga, sem rýri verðmæti eignarinnar verulega, sbr. 2. málslið 18. gr. laganna. Þá var talið að aðrir tilgreindir annmarkar, nánar tiltekið frágangur og ástand flísalagnar, vatnsheldni útihurða og ástand opnanlegra faga í gluggum, væru með þeim hætti að um leynda galla væri að ræða í skilningi 2. mgr. 29. gr. sömu laga, sem þau hafi ekki verið upplýst um, sbr. 26. gr. laganna. Með hliðsjón af framangreindu var ÞM og ÞSJ gert að greiða V og S skaðabætur að fjárhæð 5.735.690 krónur.

...Í grein 120.2, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 425/2002, sagði að byggingarvörur á markaði skyldu hafa vottun eða umsögn um að þær uppfylltu kröfur byggingarreglugerðar...