Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 416/2001"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 8. október 2009

39/2009

Íslenska ríkið (Sigurður Gísli Gíslason hrl) gegn Berghóli ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

B hóf að gera út skip til veiða á skötusel í maí 2000. Sjávarútvegsráðherra gaf út 16. ágúst 2001 reglugerð nr. 631/2001 um aflamark fyrir fiskveiðiárið 2001-2002. Reglugerðinni var ætlað að koma í stað reglugerðar, sem sett hafði verið 5. júní sama ár, en með nýju reglugerðinni var gerð sú breyting að takmörkun á veiðum tók til nýrra tegunda, keilu, löngu og skötusels, sem ekki höfðu áður verið bundnar ákvæðum um leyfilegan heildarafla. Í ákvæði til bráðabirgða var kveðið á um það að fiskiskipum, sem höfðu veiðileyfi með almennu aflamarki og veiðireynslu á tímabilinu 1. júní 1998 til 31. maí 2001, skyldi úthlutað aflahlutdeild í þessum tegundum á grundvelli veiðireynslu. B gerði athugasemdir við kvótasetninguna við sjávarútvegsráðherra og taldi að taka hefði átt tillit til þeirra sem hefðu hafið sérstaka sókn í skötusel og í því skyni fjárfest í tækjum og búnaði til veiðanna. Þar sem það var ekki gert taldi B að ekki væri lengur grundvöllur fyrir útgerðinni og lagði hann því skipinu. Höfðaði hann mál og krafðist bóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ekki hefði verið tekið tillit til aflareynslu á tímabilinu 1. júní til 16. ágúst 2001 við ákvörðun á aflahlutdeild hans í skötusel fyrir næsta fiskveiðiár. Í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða kom fram að þegar takmarka ætti leyfðan heildarafla í fyrsta sinn á tegund sjávardýra sem ekki hefði áður verið háð slíkri takmörkun skyldi úthluta aflahlutdeild á grundvelli þriggja síðustu veiðitímabila. Talið var að ákvæði í reglugerð nr. 631/2001 um lok viðmiðunartímabils veiðireynslu svo löngu fyrir útgáfudag hennar væri andstætt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/1990 er leitt hefði til tjóns fyrir B vegna veiðireynslu sem hann hefði aflað sér á umræddu tímabili. Var viðurkennd skaðabótaskylda Í og var krafa B tekin til greina.

...631/2001 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2001/2002 hafi eldri reglugerð nr. 416/2001 um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2001/2002 verið felld úr gildi. Sú breyting hafi meðal...

Hæstiréttur birt 23. febrúar 2006

371/2005

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl, Anton Björn Markússon hdl) gegn Síldey ehf (Logi Guðbrandsson hrl, Hilmar Gunnlaugsson hdl)

X var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft samræði við Y á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans, var talið sannað að X hefði haft samræði við Y gegn vilja hennar og þar með gerst brotlegur við 196. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi og til að greiða Y 800.000 krónur í miskabætur.

...júní 2001 reglugerð nr. 416/2001 um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2001/2002. Með henni var ákveðinn leyfilegur heildarafli á tímabilinu á fimmtán tegundum sjávardýra. Var hvorki langa né keila...