Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 414/1997"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 28. janúar 1999

241/1998

Básafell hf (Kristinn Hallgrímsson hrl) gegn Barði ehf (Jónatan Sveinsson hrl)

Ú seldi E bátinn Í, sem hafði farist skömmu áður, og var tekið fram í afsalinu að báturinn væri seldur án kvóta, að honum fylgdu engar veiðiheimildir og að í raun væri verið að selja byggingarrétt sem fylgdi bátnum. Síðar heimilaði E B að nýta endurnýjunarrétt bátsins á fiskiskipið H sem var í eigu B. Með lögum nr. 105/1996 um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða var lögfest heimild til að úthluta viðbótaraflahlutdeild til skipa sem stundað höfðu línuveiðar á ákveðnum tímabilum, enda kæmi viðbótin í stað svokallaðrar línutvöföldunar. Á grundvelli lagabreytinganna var skipinu H í eigu B úthlutað viðbótaraflahlutdeild m.a. í þorski og ýsu sem grundvallaðist á aflareynslu skipsins Í. B neitaði að viðurkenna rétt Ú til aflamarksins og krafðist Ú bóta úr hendi B, sem svaraði til verðmætis hinnar auknu aflahlutdeildar. Talið var að Ú hefði átt réttmætt tilkall til viðbótar-aflahlutdeildarinnar, þrátt fyrir að hann ætti ekki fiskiskip þegar hún kom til úthlutunar, og með því að fara á mis við hana hefði hann bersýnilega orðið fyrir tjóni. B var því dæmdur til að greiða Ú bætur sem svaraði til gangverðs aflahlutdeildarinnar í viðskiptum.

...Með reglugerð nr. 414/1997 var aflamark Hafrafells ÍS á yfirstandandi ári í þorski aukið um magn sem nemur að verðmæti 1.390.890 krónum samkvæmt útreikningi stefnanda en ekki...