Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 411/1989"
3 dómar fundust
Ákvörðun Siglingamálastjóra um að veita stefnanda lausn frá störfum dæmd ólögmæt.
...Þessi viðbótarréttur hafi komið inn í kjarasamninga síðar, miðað við það sem hafi verið samkvæmt reglugerð nr. 411/1989. Ekki sé ljóst hvenær hann kom inn í kjarasamninga Rafiðnaðarmanna. Í...
K gegndi ýmsum störfum hjá íslenska ríkinu fyrir og eftir gildistöku laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, fram til ársins 2001 er hún réði sig til starfa hjá sjálfseignarstofnuninni H, þaðan sem hún að endingu réði sig til starfa hjá S á árinu 2003. K gegndi starfi hjúkrunarstjóra hjá sjálfseignarstofnuninni S frá árinu 2003 allt fram til þess er staða hennar var lögð niður á árinu 2009. K höfðaði mál þetta gegn S til heimtu biðlauna með vísan til 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 70/1996. Upplýst var í málinu að um starfskjör K gilti kjarasamningur S við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, þar sem mælt var fyrir um að starfsmenn skyldu njóta hliðstæðra réttinda og bera hliðstæðar skyldur og gert væri ráð fyrir í lögum nr. 70/1996. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að samkvæmt 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 70/1996 skyldu þeir ríkisstarfsmenn sem höfðu rétt til biðlauna eftir eldri lögum halda sínum rétti. Á hinn bóginn yrði að líta svo á að með orðinu starf í skilningi ákvæðisins væri átt við það starf sem viðkomandi starfsmaður gegndi í gildistíð eldri laga nr. 38/1954. Kröfu K um greiðslu biðlauna var því hafnað.
...70/1996, reglugerð nr. 411/1989 um veikindaforföll starfsmanna ríkisins og reglugerð nr. 410/1989 um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. Verður af málatilbúnaði stefnda ráðið að ekki sé ágreiningur um að...
Staða stefnanda hjá stefnda var lögð niður og krafðist stefnandi biðlauna. Samkvæmt ráðningarsamningi stefnanda við stefnda var réttarstaða hennar að öllu leyti hliðstæð réttindum og skyldum ríkisstarfsmanna samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996. Stefndi taldi að stefnandi uppfyllti ekki skilyrði 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis laganna til að eiga rétt til biðlauna þar sem hún hefði ekki starfað samfellt hjá ríkinu frá gildistöku laganna þar til staða hennar var lögð niður. Niðurstaðan var sú að stefnandi þótti eiga rétt til biðlauna úr hendi stefnda.
...70/1996, reglugerð nr. 411/1989 um veikindaforföll starfsmanna ríkisins og reglugerð nr. 410/1989 um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. Verður af málatilbúnaði stefnda ráðið að ekki sé ágreiningur um að...