Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 397/2003"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 3. júní 2010

43/2010

Jens Líndal Bjarnason (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Vörubílstjórafélaginu Þrótti (Jóhannes Ásgeirsson hrl)

J höfðaði mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu V vegna ætlaðrar ólögmætrar brottvikningar hans úr félaginu. Talið var að J hefði leitt nægar líkur að því að brottvikning hans úr félaginu hefði valdið honum tjóni, sem fælist í tekjumissi. Hvað varðaði lögmæti þeirrar ákvörðunar V að víkja J úr félaginu var vísað til þess að ósannað væri að J hefði átt þess kost að koma sjónarmiðum sínum að áður en honum var tilkynnt að hann ætti ekki lengur aðild að félaginu. Þá hefði J ekki verið gefinn kostur á að bera mál sitt undir félagsfund, eins og lög félagsins miðuðu við er víkja ætti félagsmanni úr félaginu. Vegna þessara ágalla á málsmeðferðinni var fallist á að brottvikning J úr V hafi verið saknæm og ólögmæt og fallist á að V bæri skaðabótaábyrgð vegna þess tjóns sem leiddi af brottvikningu hans úr félaginu.

...Stefnandi byggi kröfu sína á lögum stefnda, reglugerð fyrir sjúkra- og styrktarsjóð stefnda, reglugerð nr. 397/2003 og almennum reglum skaðabótaréttarins. Málsástæður og lagarök stefnda Málsatvikum er af hálfu stefnda...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. október 2009

E-3231/2009

Jens Líndal Bjarnason (Arnar Þór Jónsson hdl) gegn Vörubílstjórafélaginu Þrótti (Jóhannes Ásgeirsson hrl)

Stefnandi krafðist að viðurkennd yrði bótaskylda stefnda vegna tjóns sem stefnandi hefði orðið fyrir vegna ólögmætrar brottvísunar stefnanda úr stefnda. Á kröfuna var ekki fallist þar sem stefnandi hafði ekki sýnt fram á að reglur hefðu verið brotnar þegar tekin var sú ákvörðun af hálfu stefnda að stefnandi nyti ekki lengur réttinda í stefnda og væri ekki lengur félagsmaður þar.

...Stefnandi byggi kröfu sína á lögum stefnda, reglugerð fyrir sjúkra- og styrktar­sjóð stefnda, reglugerð nr. 397/2003 og almennum reglum skaðabótaréttarins. Málsástæður og lagarök stefnda Málsatvikum er af hálfu...