Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 389/1996"
3 dómar fundust
S krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu K vegna líkamstjóns er hún varð fyrir í starfi sínu sem stuðningsfulltrúi við skólann B. Byggði S annars vegar á því að tjón hennar væri að rekja til ónægrar gæslu starfsmanna í B með A þegar tjónsatburðurinn varð og hins vegar að bótaréttur hennar yrði reistur á ákvæði í kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga fyrir hönd K og starfsmannafélags K. Með vísan til forsendna héraðsdóms staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu að ekki væri fram komið í málinu að starfsmenn B hafi í umrætt sinn vanrækt umsjónarskyldur sínar með A með þeim hætti að til bótaskyldu gæti leitt fyrir K. Þá var ekki talið að ákvæði í kjarasamningi mælti fyrir um bótarétt sveitarfélags þegar starfsmaður þess yrði fyrir líkamstjóni vegna háttsemi barns sem sökum æsku gæti ekki borið skaðabótaábyrgð á því. Staðfesti því Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms um sýknu K.
...stefnandi ennfremur til þágildandi 37. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla, sbr. reglugerð nr. 389/1996 um sérkennslu. Var í lagaákvæðinu mælt fyrir um það að börn og unglingar...
S krafðist viðurkenningar á bótaskyldu. Sýkna.
...stefnandi ennfremur til þágildandi 37. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla, sbr. reglugerð nr. 389/1996 um sérkennslu. Var í lagaákvæðinu mælt fyrir um það að börn og unglingar...
Ó krafði hreppinn Á og byggðasamlagið B um greiðslu ýmiss konar kostnaðar sem hlaust af því að hún þurfti að halda annað heimili vegna skólagöngu dóttur sinnar í sérskóla í Reykjavík. Ekki var á það fallist að 1. gr. og 37. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla eða reglugerð nr. 389/1996 leiddi til skyldu Á eða B til að greiða umræddan kostnað, þar sem hann taldist vera framfærslukostnaður en ekki kostnaður af skólagöngu. Á og B voru því sýknaðir af kröfu Ó.
...66/1995 um grunnskóla eða reglugerð nr. 389/1996 leiddi til skyldu Á eða B til að greiða umræddan kostnað, þar sem hann taldist vera framfærslukostnaður en ekki kostnaður af...